Bæjarins besta - 29.08.1990, Blaðsíða 6
Flateyri:
6
BÆJARINS BESTA
SMÁ
AUGLÝSINGAR
Bátur
Vantar vel með farinn bát
með góðri vél. Helst „skel
26“. Góð útborgun eða
staðgreiðsla fyrir góðan bát.
Upplýsingar gefur Brynjar í
0 8283 eftir kl. .19.
Byssur
Til sölu er Sako 22-250 með
kíki og hleðslugræjum.
Upplýsingar í 0 4926.
Mazda 929
Til sölu er Mazda 929, árg.
79. Verð 110.000,-Upplýs-
ingar í 0 3742.
Barnavörur
Til sölu er Emmaljunga
barnakerra, barnarimla-
rúm, leikgrind og Hokus
Pokus stóll. Upplýsingar í
0 3742.
Nissan Sunny
Til sölu er Nissan Sunny
4x4, árg. '87. Upplýsingar í
0 4329 eftir kl. 19.
Hver á köttinn Alla?
Alli er farinn að heimsækja
læðuna mínaáhverjukvöldi
í Mánagötu. Þau eru indæl
saman en því miður get ég
ekki tekið hann að mér. Eig-
andi vinsamlega hafðu sam-
band við Huldu í 0 3162.
Ýmislegt
Til sölu er stór örbylgjuofn
með grilli, Hokus Pokus
stóll á 3.000.-, plötuspilari á
7.000.-, barnarúm f. 2-6 ára
á 5.000,- og rimlarúm á
5.500,-Uppl. í 0 4296.
Trommusett
Til sölu er eins árs gamalt
trommusett fyrir byrjendur.
Upplýsingar í 0 4632.
Dagmamma
Óska eftir dagmömmu fyrir
hádegi í vetur. Upplýsingar
gefur Fríða í 0 3178.
Hljómtæki
Til sölu eru Technics hljóm-
flutningstæki. Upplýsingar
gefur Rúna í 0 7333.
Tapað
Tapast hefur 10 gíra DBS
hjól, grátt að lit frá Engja-
vegi 9. Uppl. í 0 3448.
Barnakerra
Til sölu Emmaljunga barna-
kerra með skýli og svuntu.
Upplýsingar í 0 4465.
Escort
Tilboð óskast í Escort 86,
skemmdann eftir óhapp.
Upplýsingar í 0 3809.
Húsnæði í boði
Til leigu er 4ra herb. íbúð á
Hlíðarveg 45. íbúðin er
laus. Upplýsingarí0 4410.
Byssur
Óska eftir lélegum eða ónýt-
um Sako 222 kb. riffli og
púðri. Uppl. í 0 8217.
„Kraftarnir minnka
ef ekkert er aðhafst“
- segir Sigrídur Gudbjörnsdóttir 94 ára gamall Dýrfirðingur
YIÐMÆLANDI blaðamanns BB að þessu sinni er ná-
kvæmlega 69 árum eldri. Sigríður Guðbjörnsdóttir heit-
ir hún og er fædd 1895 á Alviðru í Dýrafirði þann 11. desem-
ber. Hún ólst upp á Gerðhömrum ■ Dýrafirði frá eins árs
aldri til fjórtán ára aldurs en þá flutti hún til Reykjavíkur.
Síðan fór hún vestur aftur og stofnaði heimilli á Flateyri og
bjó þar í 60 ár. Nú er Sigríður komin á Hrafnistu og hefur
reyndar verið þar á annað ár. Hún var í heimsókn fyrir
skömmu hér vestra og blaðamaður BB notaði tækifærið og
ræddi stuttlega við hana um daginn og veginn.
Hvernig er dvölin á Hrafn-
istu?
„Hún er dásamleg. Það er
mjög gott að vera þar, allir
eru svo elskulegir, hver ein-
asta manneskja. Það er ckki
hægt að gera meira fyrir
mann. En það er til fólk sem
vill að meira sé gert fyrir
það, en maður skiptir sér
ekkert af því.“
Hvað gerðirðu á Flateyri
þegar þú bjóst þar?
„Ég ól upp börnin og vann
í fiski. Það var engin önnur
vinna þar. I hjávinnu vann
ég við hannyrðir því maður
hafði ekki efni á að gera ann-
að. Auðvitað var verð á öll-
um mat svipað en kaupið var
ekki mikið miðað við það
sem nú er. En þetta blessað-
ist alltaf. Maður var spar-
samur og fór vel með allt, ég
varð að gera það því maður-
inn minn var alltaf svo mikið
í burtu á togurum frá Akur-
eyri. Síðan kom togari til
Flateyrar og þá kom hann
heim.“
Hvað áttu mörg börn?
„Ég á fjögur börn. Ég á
tvær dætur, önnur býr í
Grindavík og hin í Kópavogi
svo á ég son hér á Flateyri,
Garðar Þorsteinsson. Svo
missti ég tvítugan son sem
fórst með bát frá Flateyri.
Eiginmaðurinn minn hann
dó nú snemma blessaður. Þá
voru ekki komnir spítalar.“
Finnst þér mikið hafa
breyst á Flateyri frá því þú
komstfyrst þangað?
„Nei mér finnst ekkert
hafa breyst. Húsunum var
alltaf haldið svo vel til, en
það hefur verið byggt voða-
lega mikið frá því ég var
hérna fyrst. Ég var þá hjá
Snorra Sigfússyni, náms-
stjóra.
Þá var það heldur smátt í
stíl en því var haldið við og
fólkið var afskaplega vinnu-
samt. Maður vann mikið á
meðan maður var að komast
áfram.Ég vann í 20 ár í slát-
urhúsinu, alltaf við það
sama, að taka mörinn. Það
var orðið ágætt seinni árin
því þá var öllu skellt saman
en þegar maður varð að
merkja hvurn mör fyrir
hvurn bónda, þá var þetta
mikil vinna skal ég segja
þér.“
Er heilsan góð?
„Jájá heilsan er góð en
maður finnur að kraftarnir
minnka. Það er ekkert nema
cðlilegt vegna þess að ég hef
ekkert unnið í tvö ár. Það er
það sem fer með mann að
vinna ekkert.“
Er gott að koma á heima-
slóðirnar aftur?
„Já, ég hef komið hingað
tvö síðustu sumur og hér á ég
afskaplega góða og elsku-
lega tengdadóttur. Það er
búið að vera Ijómandi gam-
an. Ég er búin að fara til
Dýrafjarðar, Flateyrar og
Isafjarðar. Og það er svo vel
tekið á móti mér hérna, það
er alveg dásamlegt að eiga
minningar um það þegar þær
koma hlaupandi á móti mér
blessaðar konurnar.“ sagði
Sigríður Guðbjörnsdóttir að
lokum.
Tölvupappír frá Odda
Tölvumöppur frá Odda
Telefaxpappír frá Odda
Gœðavara
á góðu verði
H-PRENT HF.
S 4560 & 4570