Bæjarins besta - 29.08.1990, Side 12
Síðsumartilboð AEG
AEG þurrkari Lavatherm 630W m/ barka
og rakastilli kr. 48.980.- stgr. áðurAr. 56.570.-
Einsök /////
Gæði straumur
SILFURGOTU 5 - ISAFIRÐI
ísafjörður:
//
Isafjörður:
Bifreið hafn-
aði út í sjó
Tvær konur voru í bílnum og
sluppu þær með skrámur
SNEMMA á sunnudags-
morguninn fór bifreið
út af veginum fyrir neðan
Netagerð Vestfjarða og
hafnaði hann út í sjó. Tvær
konur voru í bifreiðinni og
sluppu þær með minniháttar
meiðsli.
Bifreiðin, sem er af gerð-
inni Mercedes Bcns er talin
gjörónýt eftir óhappið og má
það teljast mikill mildi að
konurnar hafi sloppið svo
vel. Þær voru báðar í bíl-
belti.
Bolungarvík:
Frosti h.f. í Súðavík
kaupir Sólrúnu ÍS1
FROSTI h.f. í Súðavík hefur keypt Sólrúnu ÍS 1 frá Bol-
ungarvík sem að Röst h.f. eitt af dótturfyrirtækjum Ein-
ars Guðfinssonar h.f. hefur átt og gert út. Arskvóti skipsins
er 840 þorskígildistonn auk 150 tonna rækjukvóta. Jafnframt
var gerður samningur um að Frosti h.f. leggi upp hjá Ishúsfé-
lagi Bolungarvíkur 400 tonn af bolfiski á ári næstu fimm
árin.
Sólrún ÍS 1 er 300 tonna Skipið hefur einkum stundað
frystiskip sem útbúið er til rækjuveiðar en einnig verið
rækjuvinnslu og heilfryst- á öðrum botnfiskveiðum.
ingu á karfa og grálúðu. framhald á bls. 9
Eldur laus í íbúðar-
húsi við Pólgötu
- fímm íbúðir skemmdust mikið af völdum reyks og vatns
íbúðin á jarðhæðinni er stórskemmd eftir brunann en hinar fimm eru skemmdar af völdum
reyks og vatns.
I* BÚÐARHÚSIÐ við Pól-
götu 6 skemmdist mikið í
eldsvoða á sunnudagskvöld-
ið síðasta. Tilkynnt var um
eldinn klukkan 22:50 og kom
slökkviliðið fljótlega á stað-
inn og náði að ráða niðurlög-
um eldsins á skömmum
tíma.
Eldurinn kom upp á jarð-
hæð hússins en hann náði
ekki að breiðast út í íbúðirn-
ar á efri hæðinni. Húsið er
tveggja hæða með risi og eru
sex íbúðir í húsinu og
skemmdust þær allar tölu-
vert af völdum reyks og
vatns. íbúðirnar eru allar óí-
búðarhæfar eins og stendur.
Reykkafarar voru sendir
inn í íbúðirnar og reyndust
þær vera mannlausar. Einn
köttur fannst dauður innan-
dyra. Slökkvistarfi lauk laust
fyrir miðnætti. Menn frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins
rannsaka nú eldsupptök og
er ekkert hægt að segja til
um orsök eldsins fyrr en að
rannsókn lokinni.
Bíldudalur:
Firmakeppni
í knattspyrnu
FIRMAKEPPNI í knatt- Bíldudal sunnudaginn 19.
spyrnu var haldin á ágúst í sól og steikjandi hita.
Sex lið voru skráð til
keppni.
Þau voru frá eftirtöldum
fyrirtækjum: Fiskvinnslan
Bíldudal, Rækjuver Bíldu-
dal, Hraðfrystihús Tálkna-
fjarðar, Flóki Barðaströnd,
Bjarg Patreksfirði og Oddi
Patreksfirði.
Keppnin var mjög spenn-
andi og skemmtileg og ólík-
legustu menn sýndu snildar-
takta með knöttinn. Lið
Hraðfrystihúss Tálknafjarð-
ar sigraði keppnina og hlaut
veglegan eignarbikar að sig-
.urlaunum.