Bæjarins besta - 14.11.1990, Blaðsíða 3
BÆJARINS BESTA
3
Vestfirðir:
„LÍÚ er bara af-
leitur samniflgsa ? «11
- þverhausar og það þarf að jafna um þá segir Reynir Traustason
AMNIN G ARNIR um
olíuverðstenginguna
voru samþykktir hjá yfir-
mönnum fiskiskipa á Vest-
fjörðum með yfirgnæfandi
meirihluta í atkvæðisgreiðsl-
um sem fram fóru á sunnu-
dag og á mánudagsnóttina
síðustu. Um 90% af þeim
sem tóku afstöðu voru sam-
þykkir, 69 með og átta á
móti.
f samtali við Reyni
Traustason formann Skip-
stjóra og stýrimannafélags-
ins Bylgjunnar, kvaðst hann
vera ánægður með útkom-
una og að hún hefði verið
eins og hann bjóst við. „Við
erum ánægðir með þessa
niðurstöðu. Hún segirokkur,
að það sem við höfum ver-
ið að gera er rétt, með
því að semja á þessum nót-
um, en aftur á móti er það
svo seinnitíma vandamál að
leysa þetta olíuverðsteng-
• Reynir Traustason, formað-
ur Skipstjóra og stýrimannafé-
lagsins Bylgjunnar.
ingamál. Það er ekkert leyst
þrátt fyrir þetta. Það er ein-
ungis búið að lagfæra hana
en það eru mjög margir sem
eru óánægðir með hana og
það hlýtur að kalla á einhver
samræmd viðbrögð allra sjó-
manna.
Það er mjög erfitt fyrir yf-
irmenn að ganga fram með
breytingar, þrátt fyrir að
þeir séu jafnframt að breyta
þessu fyrir undimenn, vegna
þeirrar áhrifastöðu sem við
erum í. Hún er nánast engin
og það er bent á okkur og
sagt að við séum best settir
og að við séum að berjast
gegn landverkafólkinu og
undirmönnum þrátt fyrir að
þessir samningar sem Bylgj-
an gerði yfirfærist sjálfkrafa
á undirmenn. Um það var
samið hjá þeim í vor, að vísu
óformlega með munnlegu
samkomulagi, að þeir fengju
allt sem við næðum fram.“
Hvað með Farmanna og
fiskimannasambands ís-
lands?
„Þeir fara fram á nákvæm-
lega það sama og við, nema
þeir fá ekki tímakaupið sem
við fengum. Tímavinnan hjá
okkur verður 0,6% af kaup-
tryggingu, sama og hjá vél-
stjórum á Vestfjörðum. Þar
stendur hnífurinn í kúnni.
LÍÚ vill ekki yfirfæra það
ákvæði á alla sjómannastétt-
ina þó að það sé smámál.
Tímakaup er sáralítið notað
hjá þessari stétt og í raun
ekkert því til fyrirstöðu að
menn samþykki það.
Það sem er að gerast núna
er það að Kristján Ragnars-
son er að stefna öllum flot-
anum í verkfall, eins og
dæmið lítur út núna, út á
skíterí og þvermóðsku að
geta ekki látið þá hafa allt
samkomulagið okkar, en að
vísu ekki allan Vestfjarða-
samninginn. LÍÚ er bara af-
leitur samningsaðili, það
verður að segjast eins og er.
Við höfum átt samskipti við
þá bæði beint og óbeint og
því miður eru þetta þver-
hausar og það þarf að jafna
um þá.“ sagði Reynir
Traustason að lokum.
-r.
Afskorin blóm • Pottablóm • Jólastjörnur
Gjafavörur • Kort • Búsáhöld • Leikföng
Sportvörur • Hestavörur • Heimilistæki
AEG handverkfæri • Raftæki • Hljómtæki
Hljómplötur ...og Lottó 5/38
Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga
kl. 10.00-12.30 og 13.30-18.00.
Föstudaga kl. 10.00-12.30 og 13.30-
18.30.
Laugardaga kl. 13.00-20.00
Sinarffuðfjinyisson k £