Bæjarins besta - 14.11.1990, Page 5
BÆJARINS BESTA
5
- þrír rækjuskipstjórar af tíu vildu ekki skrifa
undir löndunarsamning hjá Rækjuveri hf.
• Þrír rækjuskipstjórar vildu ekki skrífa undir löndunarsamning
hjá Rækjuveri hf. Það eru Ýmir BA, Driffell BA, og Katrín BA.
RÆKJUVER hf. á
Bíldudal hefur gert
löndunarsamning við sjö af
tíu rækjuskipstjórum á
Bíldudal. Hinir þrír vildu
ekki skrifa undir og létu þeir
keyra fimm tonnum af rækju
til Isafjarðar í Niðursuðu-
verksmiðjuna hf. á mánu-
dagsnóttina og hyggjast
halda því áfram, eða þar tii
nýja rækjuverksmiðjan hjá
Fiskvinnslunni á Bíidudal
tekur til starfa.
f samtali við Ólaf Óskars-
son frkvstj. Rækjuvers hf.
sagði hann ástæðuna fyrir
gerð þessa löndunarsamn-
ings væri sú að fyrirtækið
væri að tryggja sér hráefni
fyrir vertíðina, því búið væri
að úthluta öðrum aðila á
staðnum leyfi til rækju-
vinnslu. „Við gerðum okkur
strax grein fyrir því að eitt-
hvað af þessum bátum vilja
landa í nýju verksmiðjuna
þegar þar að kemur og það
var alveg eins gott að láta
það koma í ljós strax heldur
en að vera að bíða eftir því.
Við erum búnir að ráða fólk
og viljum reyna að tryggja
því fasta vinnu út vertíð-
inna“. sagði Ólafur Óskars-
son.
BB hafði samband við
Guðlaug H. Þórðarson
rækjuskipstjóra á Katrínu
BA, en hann er einn af þeim
þremur rækjuskipstjórum
sem ekki vildu skrifa undir
samninginn, og spurði hann
hvers vegna þeir vildu ekki
skrifa undir. „Fyrir mitt leyti
að þá get ég ekki séð neina
ástæðu til að gera löndunar-
samning við Rækjuver hf.
þegar við erum skikkaðir til
að landa okkar rækju þang-
að. Samningurinn er óupp-
segjanlegur og það er ekki
verið að gefa mönnum neinn
valkost. Maður hefur heyrt
að það sé verið að koma upp
nýrri rækjuverksmiðju hérna
á staðnum og mér þykir það
eðlilegara að komið sé með
svona samning þegar sú
verksmiðja er komin í gang.
Við höfum ekkert að gera
með neinn samning þegar
við megum ekki landa rækj-
unni á öðrum stað en í
Rækjuveri, það segir sig
sjálft. Þess vegna viljum við
ekki skrifa undir og munum
ekki gera það.“ sagði Guð-
laugur H. Þórðarson.
Eins og áður hefur komið
fram fór rækjan í Niðursuðu-
verksmiðjuna hf. á ísafirði
og samkvæmt upplýsingum
sem fengust þar ætlar fyrir-
tæjið að halda áfram að taka
við rækju frá þessum aðilum
ef um áframhald verður að
ræða. Rækjuveiði byrjaði í
Arnarfirðinum á föstudaginn
fyrir helgi og eftir tveggja
daga veiði var aflinn 30 tonn.
-r.
Glampafrí
gler
I öllum glerjum endurkastast ákveðið hlutfall þess Ijósmagns sem í
gegnum þau fara. Þetta veldur oft óþægilegum skuggum og glýju í aug-
um. Einnig virðast glerin oft gráhvít og stafar það af því að umhverfið
speglast í glerjunum. Flestirkannast við vandamálið sem fylgirmynda-
töku, þar sem augu gleraugnabera sjást ekki sökum glampa. Svona
mætti lengi telja. Óþægindi vegna endurkasts ogglampa eykst í hlutfalli
við stærð og styrkleika glerjana. Til eru glampafrí sjónglersem koma að
mestu leyti í veg fyrirþessi óþægindi og eru þau framleidd bæði í gleri
og plasti. Margir fá það á tilfinninguna að glampafrígler dragi að sér ryk
og óhreinindi en svo er ekki. Það er eingöngu vegna tæ'rleikans sem
meira berá öllum flekkjum og óhreinindum. Þrífið þessiglerásama hátt
og önnurgler, en varist þó að nota þurra klúta og skinnklúta. Efskipta
þarf um annað glerið, getur orðið lítilsháttar blæbrigðamunur á glerjun-
um en hann er þó oftast óverulegur.
Leiíaðu aðstoðar
fagmannsins og
líttu við í Gullauga.
ullauaa
Dýrfinna Torfadóttir,
sjóntækjafræðingur, ísafirði.