Bæjarins besta - 14.11.1990, Blaðsíða 11
BÆJARINS BESTA
11
Rjúpnaspjall:
Á að fríða ijúpuna eða
stytta veiðitímabilið?
margir veiðimenn vilja stytta veiðitímabilið eða jafnvel friða stofninn í fáein ár
• Ásókn í ijúpnaveiði hefur aukist all verulega síðustu ár og
segja margir að það hafi töluverð áhrif á ijúpnastofninn.
Lítil rjúpnaveiði hefur
verið síðustu vikur á
Yestfjörðum samkvæmt
heimiidum biaðsins. Snjó-
laust hefur verið í langan
tíma og rjúpnaskyttur fara
síður til fjalla við siíkar að-
stæður. Þó hafa tveir menn
fengið sæmilegan afla.
Tómas Árdal á Bfldudal náði
51 rjúpu í fjórum ferðum og
Arnfinnur Jónsson frá Þing-
eyri náði 46 í fimm ferðum.
Á meðan skyttur sitja á
sínum byssum og fara lítið til
veiða er vert að athuga við-
horf þeirra til styttingu
rjúpnaveiðitímabilsins, eins
og margir þekktir veiðimenn
hafa verið að tala um upp á
síðkastið. í samtali við Árn-
finn Jónsson á Þingeyri segir
hann að það þurfi að skoða
þessi mál vandlega. „Ásókn
í rjúpuna síðustu ár hefur
farið ört vaxandi. Fjöldi
veiðimanna er orðin ótrú-
lega mikill og það hlýtur að
hafa áhrif á stofninn. Það
mætti vel friða rjúpuna í 2-3
ár eða stytta veiðitímann
niður í einn mánuð á ári.
Þessar sveiflukenningar sem
fuglafræðingar vilja halda
fram eru ekki markandi en
geta þó átt við einstaka
landshluta hverju sinni.“
sagði Arnfinnur.
Fleiri veiðimenn taka und-
ir þessi orð eins og til dæmis
Indriði á Skjaldfönn. Hann
er á því að aukin ásókn í
rjúpnaveiði hafi afgerandi
áhrif á rjúpnastofninn. Á
sumum stöðum er varla að
finna rjúpu þar sem áður
voru hundruðir fugla. Sem
dæmi voru veiddar 1000
rjúpur í Lambadalsskógi í
Dýrafirði árið 1967 á aðeins
þremur dögum af iafn mörg-
um mönnum. Þá sáu menn
100-200 fugla hópa en núna
telst það gott að sjá 10-20
fugla saman. Hlutur „sið-
lausu veiðimannanna" er
mjög stór í þessu dæmi. Þar
er átt við þá sem veiða utan
rjúpnaveiðitímabilsins og
nota fjórhjól, snjósleða og
nú síðast þyrlur til að komast
að rjúpunni. Svæðin eru
alltaf að þrengjast fyrir rjúp-
urnar og þess vegna hafa
margir verulegar áhyggjur af
þessu. Fleiri spurningar hafa
komið upp varðandi veiðiað-
ferðir eins og t.d. að leyfa
eingöngu einskota eða tví-
skota haglabyssur til rjúpna-
veiða. Þessu yrði án efa
mjög erfitt að framfylgja en
siðvandaðir veiðimenn geta
spurt sig þessarar spurning-
ar.
■r.
Sudureyri:
xfir
LEIKFÉLAGIÐ Hall-
varður Súgandi er um
þessar mundir að æfa söng-
Ieik í félagsheimili Súgfirð-
inga. Heimamenn hafa verið
fengnir til að semja texta við
ný og gömul lög, sem leik-
endur sjá síðan alfarið um að
æfa og sýna.
Æfingar hófust í síðustu
viku og er stefnt að frumsýna
verkið laugardaginn 24. nóv-
ember. Leikendur verða á
milli tólf og fjórtán talsins.
Atburðarrás söngleiksins
snýst að mestu leyti um
mannlíf í Súgandafirði og
verður stuttum leikþáttum
skotið inn í á milli söngat-
riða. Undirleikarar eru þau
Stefanía Sigurgeirsdóttir og
VignirBergmann.
-r.
Bæjarfógetinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Til sölu
er fasteignin Tangagata 10, suðurendi,
ísafirði eign dánarbús Guðmundu Rós-
mundsdóttur. Skriflegu tilboði í eignina
ber að skila á skrifstofu bæjarfógetaem-
bættisins á ísafirði fyrir 1. desember
1990. Nánari upplýsingar veitir Ágúst
Sindri Karlsson í síma 3733 og Ástvaldur
Björnsson í síma 3797.
Skiptaráðandinn á ísafirði
Ágúst Sindri Karlsson ftr.
RAMMA
MAGfE
/
ÍSAFU.
RÐ
ARÐAR
Gífurlegt úrval myndaramma!
Innramma:
Málverk Plaköt Ljósmyndir
ýV Saumamyndir og hvað eina.
Panta plaköt eftir ykkar óskum.
sendi í póstkröfu
Móttaka í Bolungarvík hjá
Jónu að Heiðarbrún 8.
Nánari upplýsingar
í síma 94-3472 og 94-4041.
BB - 6 ára í dag
Bæjarfógetinn á ísafirði
,,,i( Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Atvinna
Fólk vantar til starfa:
a) Við bókhald, innheimtu o. fl.
b) Við símavörslu, ritvinnslu o. fl.
(afleysingar)
Skrifstofustjóri veitir nánari upplýsingar.
7. nóvember 1990
Bæjarfógetinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein