Bæjarins besta - 14.11.1990, Síða 16
40 dagar til jóla
Full búð af raftækjum
og heimilistækjum. /////
straumur
Opið á laugardag kl. 10-13. &1K™/
Vestfirðir:
Ölvuð
við
akstur
UNG stúlka var tekin
grunuð um ölvun við akstur
á götum ísafjarðar, aðfar-
arnótt sunnudagsins. Sömu
nótt var lögreglunni á ísa-
firði tilkynnt um að maður
hefði skorist á púls í Súða-
vík. Maðurinn var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á ísa-
firði þar sem gert var að sár-
um hans. Hann reyndist ekki
eins illa skorinn og haldið
var í fyrstu. Maðurinn mun
hafa dottið á rúðu með fram-
angreindum afleiðingum.
Óskuðu
eftir
gistingu
HELGIN var frekar róleg
hjá lögreglunni þrátt fyrir að
mikið hafi verið um dans-
leiki. Dansleikir voru bæði
föstudags- og laugardags-
kvöld í Suðavík, á laugar-
dagskvöld á Suðurevri og
bæði kvöldin á ísafirði. Talið
er að á annað þúsund manns
hafi verið að skemmta sér á
ísafirði og nágrenni um helg-
ina og að allir hafi skemmt
sér vel a.m.k. ef miðað er
við þau litlu afskipti sem lög-
reglan þurfti að hafa af dans-
gestum.
Tveir utanbæjarmenn ósk-
uðu eftir gistingu hjá lögregl-
unni aðfararnótt sunnudags-
ins þar sem þeir áttu ekki í
önnur hús að venda. Að
sögn lögreglunnar er nokkuð
um svona beiðnir og er reynt
að verða við þeim ef svo ber
undir.
Vestfirðir:
Góð loðnuveiði
út af Vestijörðum
GÓÐ loðnuveiði hefur
verið út af Vestfjörð-
um undanfarna daga. Loðnu-
skipið Víkingur fann loðnu-
göngu 50 mílur norður af
Hornbjargi aðfararnótt
föstudags og eru nokkur skip
á miðunum núna. Veiðin
norður af Hornbjargi var
góð og fékk Víkingur um 600
tonn þá nóttina. Um var að
ræða blandaða loðnu og var
mikið af smáloðnu í aflan-
um.
Loðnuskipið Höfrungur
frá Akranesi landaði 700
tonnum í Bolungarvík á
laugardaginn. Sama dag
landaði Júpíter 500 tonnum
af loðnu. A sunnudagskvöld
lönduðu svo fjórir bátar
slatta, Víkurberg og Erling,
40-50 tonnum hvor, Júpíter
150 tonn og Höfrungur 200
• Loðnusldpið Höfrungur kom til Bolungarvíkur á laugardaginn með um 700 tonn af loðnu og var þá
myndin tekin. Skipið kom síðan aftur að landi á sunnudagskvöld með 200 tonn.
tonnum. Loðnuverksmiðjan I 400 tonnum af loðnu á sólar- I duga langt fram í þessa viku.
í Bolungarvík bræðir um 3- 1 hring og ætti því þessi afli að -5.
Bolungarvík:
Bæjarráð samþykkir 200
þúsund króna styrk til Emis
BÆJARRÁÐ Bolungar-
víkur samþykkti á síð-
asta fundi sínum tillögu
Kristins H. Gunnarssonar,
bæjarráðsmanns um að veita
Flugfélaginu Ernir hf. styrk
að fjárhæö kr. 200.000.-.
Málið verður síðan tekið fyr-
ir á bæjarstjórnarfundi á
morgun, fimmtudag þar sem
endanleg ákvörðun verður
tekin.
Að sögn Ólafs Kristjáns-
sonar, bæjarstjóra í Bolung-
arvík sendi hann 1. nóvem-
ber sl. Ólafi Ragnari
Grímssyni, fjármálaráðherra
og Sighvati Björgvinssyni,
formanni fjárveitingarnefnd-
ar Alþingis, skeyti að beiðni
Fjórðungssambandsins þar
sem skorað er á fjármálaráð-
herra að veita heimild til
Flugmálastjórnar til kaupa
flugskýli Flugfélagsins Ernis
á Isafirði fyrir stofnunina,
vegna þess að það myndi
leysa hinn bráða fjárhags-
vanda félagsins.
Er það von sveitarstjórna
á Vestfjörðum svo og allra
Vestfirðinga að fjármálaráð-
herra verði við þessari
áskorun svo að Flugfélagið
Ernir geti haldið áfram að
halda uppi þeirri nauðsyn-
legu sjúkraflugsþjónustu
sem félagið hefur gert frá
stofnun.
Sharp myndbandstæki
Bauknecht heimilistækl rafsjá
Góðir greiðsluskilmálar
HAGSTÆTT VERÐ
Hólastíg 6
Bolungarvík
Sfmi 7326
Jólagardínuefni I úrvali
Smar Qutynnszon k £