Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.11.1990, Side 1

Bæjarins besta - 28.11.1990, Side 1
BÆJARINS RESTA 48. TBL. J 7. ÁRG - MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990 AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA Skálavík um helgina Pöbbinn opinnföstu- dagskvöld kl. 22-01. Dansleikur laugardags- kvöldkl. 23-03. ROKKBÆNDUR sjá umfjörið. SKÁLAVÍK Aldurstakmark 18 ára. Bolungarvík 0 7130 • Rækjusjómenn fá nú óbreytt verö fyrir rækjuna en til stóð af hálfu rækjuverkenda að fá verðið lækkað. ísafjörður: Rækjusjómenn halda áfram að róa - rækjuverkendur féllu frá kröfu sinni um lægra rækjuverð ísafjörður: Erílsamthjá lögreglunni TÖLUVERÐUR erill var hjá lögreglunni á ísafirði á síðustu helgi. Mikil ölvun og ólæti voru á götum bæjar- ins og gistu þrír menn fanga- geymslur lögreglunnar. Þá barst lögreglunni tilkynning um rúðubrot í heimahúsi og innbrot í annað. Engu var stolið, svo vitað sé og engar skemmdir voru unnar. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur á laugardaginn. Þá hafði lögreglan nóg að gera við að aðstoða fólk til vinnu á fimmtudag og föstudagsmorgun. Var þar aðallega um að ræða starfs- fólk Fjórðungssjúkrahúss- ins á ísafirði. Suðureyri: Vantar hjúkr- unarfræðing SÚGFIRÐINGAR hafa verið án hjúkrunarfræð- ings í tæplega þrjá mánuði, eða frá því Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur flutti af staðnum þann 1. september s.l. Búið er að auglýsa stöð- una lausa í nokkur skipti en eftirspurn er engin. í sam- tali við Snorra Sturluson sveitarstjóra, sagði hann það vera mikið óöryggi að hafa ekki hjúkrunarfræðing á staðnum. Ástandið væri þolanlegt ef að hjúkrunar- fræðingur væri á staðnum og læknir kæmi tvisvar í viku. Staðan verður áfram aug- lýst laus tii umsóknar. EINS og komið hefur fram í fréttum hafa ver- ið miklar sviptingar hjá rækjumönnum við Isafjarð- ardjúp. Forsvarsmenn rækju- verksmiðjanna við Djúp ákváðu á fundi sínum fyrir rúmri viku að hætta móttöku á rækju um miðja síðustu viku nema til kæmi lægra verð. Ástæðan fyrir kröfu rækjuverkandanna er mikið verðfall og sölutregða á frystri rækju sem hefur auk- ist eftir því sem rækjan hefur verið smærri. Rækjusjómenn funduðu einnig um málið í síðustu viku og ákváðu að hætta veiðum fremur en að sætta sig við verðlækkun. Niður- suðuverksmiðjan hf. var með nokkra sérstöðu meðal rækjuverksmiðjanna þar sem hún sýður niður alla sína rækju og er með góðan samning fram á mitt næsta ár. Forsvarsmenn Niður- suðuverksmiðjunnar hf. ákváðu því að kaupa áfram rækju á sama verði og gilt hefur. Forsvarsmenn rækjuverk- smiðjanna funduðu síðan á fimmtudag í síðustu viku og á þeim fundi var ákveðið að falla frá kröfunni um lækk- un. Gera má því ráð fyrir að veiðar haldi áfram til 14. desember næstkomandi. -s. ísafjörður: Álagningar- próseita ól- svars óbreytt BÆJARSTJÓRN fsa- fjarðar ákvað á síðasta fundi sínum sem haldinn var 15. nóvember síðastliðinn að álagningarprósenta útsvars fyrir árið 1991 yrði óbreytt frá fyrra ári eða 7,5%. Enn er eftir að taka ákvörðun um álagningarpró- sentu fasteignagjalda og er þeirrar ákvörðunar að vænta innan tíðar. Strandasýsla: Fimm staurar brotnuðu IÁHLAUPINU síðastliðinn fimmtudag brotnuðu fimm rafmagnsstaurar í línunni frá Selströnd að Drangsnesi. Mikl- ar truflanir urðu í Bjarnarfirði og Ámeshreppi. íbúar þessa sveita urðu án rafmagns í hálfan sólarhring en viðgerð stóð yfir fram á laugardagskvöld. Á meðan var díselvél keyrð á Drangs- nesi. Þetta var mesta tjón sökum óveðursins sem gekk yfir Vestfirði, bæði á fimmtu- dag og föstudag. __ Ódýrar bökunarvörur BUÐ SEM STENDUR UNDIR NAFNI LJÓNINU • SKEIÐI - ÍSAFIRÐI ST 4211 Vestfirðingar athugið! Jólagjafahandbók BB fylgir blaðinu miðvikudaginn 5. desember nk.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.