Bæjarins besta - 28.11.1990, Qupperneq 15
BÆJARINS BESTA
15
veiði í áratugi og er því öll-
um hnútum kunnugur í þess
orðs fyllstu merkingu. Hann
er líka fjölmörgum stang-
veiðimönnum að góðu kunn-
ur, ekki síst fyrir það að hafa
skapað ýmsar laxaflugur sem
náð hafa vinsældum meðal
þeirra sem iðka fluguveiði á
stöng.
í kynningu Forlagsins seg-
ir m.a.: í bók Kristjáns
Gíslasonar lifnar íslensk
náttúra fyrir hugskotssjón-
um lesandans, blíð og
grimm, nísk og gjafmild, allt
eftir atvikum. Frásögn hans
af veiðiferðum sínum skír-
skotar bæði til byrjenda og
gamalreyndra veiðimanna.
Hún er allt í senn - nákvæm,
lífleg og fjörug - og ekki síst
krydduð ósvikinni glettni
hins pennafæra manns.
Kristján lýsir heimagerðu
flugunum sínum ítarlega
með litmyndum og nákvæm-
um uppskriftum, svo að les-
andinn fær notadrjúga leið-
sögn ram á árbakkann á vit
ævintýranna.
Bókin er 207 bls. auk 8 lit-
myndasíðna.
Blódbrúðkaup
BÓKAÚTGÁFAN For-
lagið hefur sent frá sér skáld-
söguna „Blóðbrúðkaup" eft-
ir franska rithöfundinn Yann
Queffélec. Guðrún Finn-
bogadóttir þýddi söguna og
titar eftirmála um höfund-
inn. Blóðbrúðkaup er sagan
um drenginn Ludovic - saga
um óvelkomið líf sem kvikn-
ar í kviði þrettán ára móður.
Fyrstu ár ævinnar er hann
geymdur uppi á háalofti svo
að enginn frétti af tilvist
hans, því ekki má falla blett-
ur á heiður fjölskyldunnar.
Síðan hefst hraksaga hans
um heiminn.
í kynningu Forlagsins seg-
ir m.a.: Höfundurinn lýsir
fordómum smáborgara sem
umhverfið og fáfræðin gera
heimska og grimma. En sag-
an fjallar þó ekki um þetta
fólk, heldur fómarlamb
þeirra - eitt af hinum ást-
lausu og óvelkomnu börnum
á jörðinni. Um þessi börn
hafa verið ritaðar miklar
bókmenntir og hér hefur
Yann Queffélec skapað eitt
slíkt listaverk - í senn spenn-
andi og tilfinningaþrungið -
enda hefur „Blóðbrúðkaup"
hlotið frægustu og eftirsótt-
ustu bókmenntaverðlaun
sem veitt eru frönskum rit-
höfundum - Goncourt verð-
launin.
Bókin er 302 bls. og kem-
ur samtímis út í kilju og
bandi.
Sól í Norðurmýri
BÓKAÚTGÁFAN For-
lagið hefur gefið út bókina
„Sól í Norðurmýri“ eftir þau
Pórunni Valdimarsdóttur og
Megas. Varla þarf að kynna
þau tvö: Megas, skáld ljóða
og laga, og sagnfræðinginn
Pórunni, en fyrir ári síðan
sendi hún frá sér bókina
„Snorri á Húsafelli“ sem til-
nefnd var til íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
í kynningu Forlagsins seg-
ir m.a.: Hér er ekki verið að
útskýra heiminn eða bera á
borð óskeikulan sannleik um
liðna tíma. Sannleikurinn í
þessari bók er jafn tvíræður
og skyrhræringu. Allir vita
að skyrhræringur er annar í
munni föður sem kann að
meta hann §n í munni barns
sem hatar hann. Samt er
heimildargildi sögunnar ein-
stætt. Pau Þórunn og Megas
hafa bæði lagt bernskuminn-
ingar sínar, drauma og
ímyndunarafl að veði í ævin-
týralega og töfrandi bók.
Petta er ekki ævisaga, heldur
fantasía eða rabbsódía um
Reykjavík, umhverfi og at-
vik í lífi lítillar píslar.
Bókin er 236 bls. og prýdd
miklum fjölda mynda.
Axlabönd og
bláberjasaft
BÓKAÚTGÁFAN For-
lagið hefur sent frá sér bók-
ina „Axlabönd og bláberja-
saft“ eftir Sigrúnu Eldjárn.
Petta er önnur bókin sem
Sigrún semur og mynd-
skreytir um geimveruna Bét-
vo, en fyrir fyrri bókina um
hann hlaut hún Barnabóka-
verðlaun Reykjavíkurborgar
árið 1987.
Sögur Sigrúnar njóta mik-
illa vinsælda meðal barna
segir m.a. í kynningu For-
lagsins, enda sameina þær
leiftrandi frásagnargleði og
fjörlegar myndir. Hér segir
frá Áka litla sem dag einn
verður hugsað til vinar síns,
Bétveggja. Hvað skyldi hann
vera að bauka núna? Hann
var búinn að lofa því að
bjóða honum í heimsókn á
stjörnuna til sín. Allt í einu
heyrir Áki skrýtið suð og
ofan úr geimnum kemur lítið
bleikt farartæki. Par er vinur
hans kominn og þeir Áki og
Bétveir halda rakleitt út í
geiminn á vit ævintýranna.
Bókin er 36 blaðsíður.
Sögur úr
Skuggahverfínu
BÓKAÚTGÁFAN For-
lagið hefur gefið út bókina
„Sögur úr Skuggahverfinu“
eftir Ólaf Gunnarsson. Ólaf-
ur hefur áður sent frá sér
fjórar skáldsögur, en síðast
sendi hann frá sér skáldsög-
una „Heilagur andi og
englar vítis“ árið 1986.
I kynningu Forlagsins seg-
ir m.a.: Hér sýnir Ólafur
Gunnarsson nýja hlið á list
sinni. Við fyrstu sín eru þetta
ærslafullar og angurværar
Viðskiptavinir
Sjóvá-
Almennra trygginga hf.
athugið
Skrifstofan að Hafnargötu 8, Bolungarvík
er opin:
Mánudaga - föstudaga kl. 10.00- 17.00.
Alla mánudaga liggja frammi myndir og
aðrar upplýsingar um tjónabifreiðir sem
boðnar eru upp samdægurs í Reykjavík.
Sjóvá Almennar tryggingar hf.
Umboðið í Bolungarvík
Víðir Benediktsson
Sími: 7348
Fax:7347
;a|fc Bæjarfógetinn á ísafirði ptjýJI Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Atvinna Fólk vantar nú þegar til starfa á skrifstofu embættisins. Skrifstofustjóri veitir nánari upp- lýsingar. 27. nóvember 1990. Bæjarfógetinn á ísafirði Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, Pétur Kr. Hafstein.
Til sölu í Bolungarvík Vitastígur 19, neðri hæð, þriggja herbergja séríbúð til sölu á góðu verði og með góð- um kjörum. Veití verður aðstoð við húsbréfafyrirgreiðslu ef óskað er. Tryggvi Guðmundsson hdl. Hafnarstræti 1, ísafirði. Sími: 94-3244.