Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Page 10

Bæjarins besta - 17.12.1990, Page 10
10 BÆJARINS BESTA f Sr. Sigurður Ægisson sóknarprestur í Bolungarvík: Jólahugvekja Nýja testamentið greinir frá því á einum stað, að postularnir hafi eitt sinn verið teknir höndum og leiddir fyrir œðstaráðið í Jerúsalem. Vildu menn helst aföllu de'yða þessa aumu trúvillinga, þessa kristnu hunda, sem voguðu sér að ganga í herhögg við lögmálið og spámennina, ritning- arnar heilögu. En þá reis upp farísei nokkur í ráðinu, Gamalíel að nafni, virtur af öllum lýð. Hann hauð, að mennirnir vœru látnir fara út stundarkorn. Að því húnu sagði hann: „ísraelsmenn, athugið vel, hvað þér gjörið við þessa menn. Ekki alls fyrir löngu kom Pevdas fram ogþóttist vera eitthvað. Hann aðhylltust um fjögur hundruð manns. En hann var drepinn, og allir þeir, sem honum fylgdu, tvístruðust og hurfu. Eftir hann kom fram Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og snéri fólki til fylgis við sig. Hann fórst líka, og þeir dreifðust allir, sem fylgdu honum. Og nú segi ég yður: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð eða verk frá mönnum, verður það að engu, en sé það frá Guði, þá megnið þér ekki að yfir- buga þá. Eigi má það verða, að þér berjist við sjálfan Guð.“ Æðstaráðið féllst á mál hins vitra kenni- manns. Og hvað gerðist svo? Jú, við þekkjum framhaldið. Kristnir menn í heiminum í dag eru nœstum 2 milljarðar að tölu. Og kirkjudeildirn- ar um 300 talsins. Mannkynið allt losar 5 millj- arða. Má því segja, að þriðji hver jarðarbúi sé kristinnar trúar. Og enn koma því blessuð jólin innan skamms, færandi birtu og yl, eins og þau hafa gert í bráð- um 2000 ár í kristnum heimi. Margar kynslóðir, vítt um storð, hafa í aldanna rás fagnað þeim; menn, konur og börn lotið þessum eina og sama frelsara, Jesú Kristi, sem við innan skamms minnumst hér á landi, í kulda og snjó, þúsund- um kílómetra frá Betlehem í Gyðingalandi, fœð- ingarstað hans. Hér skiptir tími engu máli. Eða fjarlægðir. Boðskapurinn sameinar. Eiðið er á jólaföstu. Búið að kveikja á Spá- dómskertinu, Betlehemskertinu og Hirðakert- inu, og skammt í að logi á Englakertinu. Ogfyrr en varir er þessi Ijóssins hátíð komin til manna. Þú, faðir eða móðir, sem hyggst gefa barninu þínu gjöf um jólin: Gakktu framhjá stríðsleik- föngunum. Við erum að minnast þess senn, að líf var gefið á jörð, gegn myrkri, hatri og tortím- ingu. Pað er ekkert fallegt við dauðann, eða lík- ingu hans. Þú mótar barnið þitt framar öðrum. Veldu hið góða ogfagra. Pú, drykkjumaður, eða kona, sem œtlar að leggjast í vín á hátíðinni mestu, eins og venjulega, en átt fjölskyldu, sem þykir vænt um þig: Breyttu til. Pú ert ekki einn. Líttu í kringum þig. Hugs- aðu um aðra. Væntingar þeirra. Kvíða. Pú, lesandi minn, sem ert að búa þig undir að fagna Jesúbarninu á nœstu dögurn, taka á móti því, gefa því rúm í hjarta þínu: Gerðu það. En minnstu þess um leið, að þau eru mörg börnin sem þjást, bœði hér á landi og úti í heimi. Og það eru líka margir aðrir, sem líða. Svo ótal margir. Hugsaðu tilþeirra allra. Biðfyrir þeim. Gleym aldrei. Pannig gleður þú Jesúbarnið. Guð blessi þig um jólin. Gleðilega hátíð.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.