Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 30

Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 30
30 BÆJARINS BESTA hvað leiður og við ákvöðum að demba okkur til Bíldu- dals, heim í heiðan dalinn. Hingað komum við í vor. Ég fór beint í beitingu og svo á dragnót í sumar. Þegar sumrinu lauk fór ég aftur að beita, og er núna með nokkr-. um Pólverjum. Þeir eru skemmtilegir og harðdugleg- ir í vinnu. Maður er orðinn sleipur í pólskunni, það þýðir ekkert annað. Þetta eru allt ungir strákar sem störfuðu í skipasmíðastöðinni í Gdansk. Tjáningarsamskipt- in eru oft æði skrítin því þeir kunna ekki ensku, aðeins einn af þeim kann pínulítið í ensku. Það þarf að teikna hlutina og leika þá til að skýra út fyrir þeim hvað á að gera.“ Heima er best „Sumir eru hissa þegar þeir heyra að ég sé kominn vestur í slorið. Ég kann alltaf jafnvel við beitingalyktina, en það er engin beitingalykt af Hamlet!“ Hlátur. „Nei, nei, frægðin hefur ekki stigið mér til höfuðs, langt því frá. Það var eins og ég hafði aldrei farið suður, þegar ég kom aftur vestur. Ég var hræddur um að ég væri bú- inn að gleyma hvernig ætti að beita, en það kom fljótt. Hérna eru foreldrar mínir og þrír bræður. íris á systur sem er gift eldri bróðir mín- um, honum Valdimar. Svo það er bara gott að vera kominn aftur heim. Ég er ekkert voðalega hrifinn af að búa í Reykjavfk. Ég gæti ekki hugsað mér að búa þar samfleytt í 2-3 ár án þess að koma heim í millitíð- inni. Á hverju sumri hef ég komið heim, bæði þegar ég var í skyldunáminu og í leik- listinni. En aðalvandamálið hefur verið flughræðslan, ég er svakalega flughræddur. Áður þurfti ég að fara með rútu til Stykkihólms og það- an með ferjunni yfir Breiða- fjörð og svo heim í bíl. Ég flýg ekki nema í ítrustu neyð. Ég er líka sjóveikur, var sjóveikur í allt sumar, en ældi þó aldrei. Mér finnst mjög gaman á sjónum og fer væntanlega á sjóinn aftur næsta sumar.“ Fjörugreifar „Það er svo gott að vera laus við umferðina og hrað- an, maður getur labbað út alla götuna án þess að það komi bíll. í sumar heimsótti skólabróðir minn, Jakob Þór Einarsson, mig hingað til Bíldudals. Við fórum niður í fjöru eitt kvöldið, söfnuðum saman spýtnarusli og kveikt- um bál. Síðan sátum við eins og greifar á stólum við eld- inn og drukkum kaldan bjór. Við ræddum um það, að slíkt væri ekki hægt að gera í • „Ég sem hélt að ég væri búinn að gleyma þessu.“ segir Þröstur um beitinguna, en hann vinnur við beitingu á Geysl BA á Bfldudal I dag og líður bara vel. Jól og áramót „Mér finnst ekki vera nein jól eða áramót nema hér heima. Við reynum að koma saman, systkinin, á jólunum og áramótunum heima hjá pabba og mömmu. Fjöl- skyldan er mjög samrýmd. Ég man vel eftir því þegar ég var í bænum yfir áramótin, þá var ég í símanum í beinni línu vestur til að heyra hvað væri að gerast. Heimþráin er sterk því ég er svo mikill sveitamaður í mér. Við borðum öll saman, skjótum flugeldunum upp og förum • „Síðan kemur „Elns og skepnan deyr 2“ - Nei, nei, ég er bara að bulla.“ segir Þröstur og skellihlær á eftir. þátt í að veiða í dýru ánum, það er algjört rugl, alltof dýrt. Svo er ég með skot- vopnaleyfi og hef mjög gam- an að fara á fuglaveiðar, en ég geri lítið af því. Bræður mínir veiða talsvert með byssu og hver veit nema ég skelli mér út í það seinna. Ég er líka með mótorhjóla- dellu, hef átt mörg hjól og á núna Yamaha 350 torfæru- hjól, sem ég nota í vinnuna." Leikstjóri í heimabyggð Þá er þessu viðtali að Ijúka. Lesendur eru væntan- lega eitthvað fróðari um þennan unga og hæfileika- ríka Bílddælings, sem ætlar að verða gamanleikari. Þröstur ætlar að leikstýra leikritinu - Við borgum ekki, eftir Dario Fo, sem Leikfé- lagið Baldur á Bíldudal er að byrja að æfa um þessar mundir. Þröstur hyggst flytja aftur til Reykjavíkur í ágúst á næsta ári ef að allt gengur að óskum. Hann er búinn að fá mörg tilboð, bæði fyrir leikrit, kvikmyndir og sjón- varp. Hann hefur litlar áhyggjur af Reykjavík og stingur beitunni fagmann- lega á öngulinn og sendir bugtina í balann. Lífið geng- ur sinn vanagang og leiklist- arklukkan er stopp. Lykill- inn er í rassvasanum á leikaranum unga frá Bíldudal. Viðtal: Róbert Schmidt Myndir: Róbert Schmidt og Guðmundur Ingólfsson/ Imynd Reykjavík. Slökkviliðið væri komið eins og skot til að slökkva eldinn. En það var svo þægileg tilfinning að sitja þarna í fjörunni við eldinn og tala saman um liðnar stundir. Það tók mig ekki nema korter að aðlagast mannlíf- inu hér eftir að ég kom vest- ur. Lífið snýst um veður- spárnar, verður flugveður, verður sjóveður á morgun? Ég hlustaði aldrei á veður- fréttir í útvarpinu í bænum og fylgdist ekkert með veðr- inu, mér var alveg sama. Núna liggur maður yfir veð- urfréttunum, bæði í sjón- varpi og útvarpi. Hér eru margir gamlir karlar sem geta spáð ótrúlega nákvæmt um veðurhorfur, alveg lýgi- lega nákvæmir karlar. Verst af öllu er kvótakerf- ið. Kvótakerfið er að setja þessi pláss á hausinn. Þetta er hrikalegt ástand, verðið fyrir þorskkílóið er aðeins um 45 krónur hérna en 120 krónur í bænum. Þetta stefn- ir allt niður á við ef að ekki verður eitthvað að gert.“ svo á ball á eftir. Áramótin eru manni svo eftirminnileg, allir svo glaðir og mikið að gerast.“ Áhugamálin „Jú, ég á mér áhugamál. Ég er forfallinn í stangaveið- inni. Geri víst lítið annað á sumrin en að veiða silung og lax. Ég veiddi 15 laxa í sum- ar, stærsti var 13 pund. Svo veiddi ég helling af sjóbirt- ing og silungi hérna í vötnun- um. Aðallega veiði ég á maðk og flugu. Ég hnýti dá- lítið og finnst það mjög skemmtilegt. Ég hef alltaf haft gaman að veiða. Sem púki var maður alltaf niður á bryggju að veiða kola og ufsa, sem var síðan hert. Stangaveiðin byrjaði fyrir alvöru þegar ég var 17 ára gamall. En ég tek ekki

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.