Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Side 14

Bæjarins besta - 17.12.1990, Side 14
14 BÆJARINS BESTA gæti valið um fisk eða kjöt í matinn. Honum var ná- kvæmlega jafn mikið sama um það hvað hann borðaði eins og um jólin. Var honum kannski ekki sama um jólin. Vélin mundi ekki lenda í Keflavík fyrr en undir klukkan 10 að morgni aðfangadags. Aftur hafði hann gleymt að kaupa gjafirnar. Hann yrði að vera upp á náð Carolyn kominn í þessum efnum. Carolyn hef- ur þrengt sér alltof mikið inn í líf mitt síðustu daga. Þó höfðu þau aðeins hist tvisvar. í annað skiptið á veitingahúsið í Kínahverfi og í hitt skiptið heima hjá þeim Larry og auðvitað var Larry með í bæði skiptin. Fyrst var hún uppáþrengj- andi, svo fór hann að kunna vel við hana, miklu betur en Larry. En hann hafði nú leynt á sér. Kjartan átti það, þessum heiðurs- hjónum að þakka að komast heim fyrir jólin og að hafa meðferðis gjafir handa Dóru og strákunum. Hann hafði einmitt viljað komast heim. Þau höfðu boðið honum að dvelja hjá sér um jólin. Það hafði Kjartan ekki getað hugsað sér. Auðvitað var gaman að komast heim. Samt gat hann vel ímyndað sér að það hefði orðið gaman hjá Larry og Carolyn um jólin. „Veit maður þá aldrei hvað maður vill.“ Dóra hefði átt að kynn- ast Carolyn. Kannski hún hefði lifnað eitthvað við það? Svandís kom með matinn og spurði hvort hann vildi rautt eða hvítt vín. „Bara það sem er jólalegra" svaraði hann annars hugar. Hér var hann staddur í loft- inu á leið heim til íslands, en var í raun ýmist í New York eða á íslandi. „Maður þarf alltaf að vera að ákveða sig.“ Hann tók rauðvínið. Spurði svo hvort ekki væri hægt að kaupa ilmvötn og þvíumlíkt. Það var hægt. Kjartan vissi vel hvað hann vildi. Hann vildi jól með innihaldi. Carolyn hafði hleypt honum úr búr- inu. Hann hlyti að geta leyst Dóru úr prísundinni. fcað skal ég gera“ hugs- raði hann „en hver ætlar að hleypa jólunum úr fangelsinu?“ 33- Kannski yrðu þetta síð- ustu jólin þeirra Dóru saman. En svo sananrlega skyldi hann gera sitt til að þau yrðu full af lífi - af lífs- gleði - þótt það kostaði ef til vill átök. Jólunum á að fylgja Gestur Halldórsson, forstjóri: Góða bók Mig langar aldrei í neitt í jólagjöf, en ef ég verð að svara þér, þá langar mig í einhverja góða bók. Þar er efst á óskalistanum „Minning- ar Björns á Löngumýri". Hann er skemmtilegur karlinn svo að bókin hlýt- ur að vera góð.“ sagði Gestur. Benedikt Kristjánsson, kaupmaður: Halda heilsunni Efst á óskalistanum hjá mér er að halda heilsunni. Mig langar ekki í neinn hlut. Ég á allt sem mig langar í þannig að best væri að fá að halda heilsunni" sagði Bene- dikt. lífsgleði og fjör, lífsnautn, sem fær menn til að finnast þeir lifandi að þeir séu inni- hald. 1 g veit hvert ég er að /fara og hvert ég ætla. Þar með sofnaði Bryndís Friðgeirsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi: Friö r m m m ajorð Flrið á jörð langar mig mest að fá í jóla- gjöf.Ég myndi óska mér að migfnest í góða bók. Þar er efst á óskalistanum Bar- áttusaga Guðmundar Jaka og myndir úr lífi Pétur Eggertz. Ég hef lesið hinar bækurnar eftir hann og þær eru góðar. Pétur er skemmtilegur maður. Þá er bókin um Bíldudal kónginn mjög áhuga- verð“ sagði Pétur. Herdís Viggósdóttir, kaupmaður: Góða plötu eðabók VTeistu það, ég er t ekki farin að hugsa um jólagjafir. Mig myndi Ég les mikið þegar ég er í ró og næði og eins yrði æðislegt að hafa góða hljómplötu við hendina. Mig myndi helst langa í einhverja rómantíska músík og ég væri alveg til í að lesa bókina um Megas" sagði Herdís. Jólin: NÚ STYTTIST óðum í jólin, tíma friðar og rólegheita. En jólaundirbúningnum fylgir ýmislegt amstur s.s. þrif, smákökubakstur og að kaupa jólagjafir. Mörgum reynist erfitt að velja gjafir, aðrir eru löngu ákveðnir en flestir eru í vanda staddir og bíða oft fram á síðustu stundu með kaupin. BB leitaði til nokkurra þekktra Vestfirðinga og spurði þá hvað þá langaði mest til að fá í jólagjöf. allir gætu lifað í sátt og samlyndi og frið til handa stríðþjáðu og sjúku fólki. Mig langar ekki í neinn sérstakan hlut í jólagjöf. Mér finnst hugur á bak við gjafirnar skipta mestu“ sagði Bryndís. Pétur Sigurðsson, forseti ASV: Bókina hans GuðmundarJ. Flyrir utan Range Roverinn langar Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík: Geislaspilara r Eg myndi óska mér að fá að vera í ró og friði með fjölskyldunni. Af hlutum myndi ég velja mér góðan geislaspilara. Ég á einn gamlan garm og þegar að maður heyrir muninn á tóngæðunum segir maður alltaf við sjálfan sig, þetta verður maður að fara að eignast" sagði Ólafur. Hansína Einarsdóttir, skrifstofumaður: Mig myndi helst langa til að fá frið í heimin- um í jólagjöf. Mér finnst skorta mikið á að friður sé úti í hinum stóra heimi. Ég vii að allir haldi frið um jólin. Þá vil ég helst geta haldið jólin með börnum mínum og barnabörnum. Mér finnst jólin ekki vera jól gjafanna heldur jól friðar" sagði Hansína.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.