Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 19

Bæjarins besta - 17.12.1990, Blaðsíða 19
BÆJARINS BESTA 19 m í hálfa öld íóra og seglasaumara, og Sigríði Jónsdóttur akonu en við færum á síldina. Og við fengum mikið af hákarli. Það varð til þess að Björgvin gerði út Gróttu til hákarla- veiða sumarið eftir, en það brást, þeir fundu lítið sem ekkert. Við fengum gríðar- lega mikið af hákarli þarna, 28 eða 30 stykki á 40 krók- ana. Þetta var eins og á stífasta þorski bara. Við vor- um með línu, sverari en venjulega línu náttúrlega, og langt á milli krókanna, einir fjórir eðafimmfaðmar. Vorum með tvær lagnir og drógum þær til skiptis. Svo skelltum við bara stroffunni á hákarlinn og hífðum hann innfyrir. Við vorum ekki nema rúman sólarhring þarna við Grænland, í brælu og ísreki, fengum samt þessi lifandis ósköp af hákarli. Þeir voru svo gráðugir að við fengum þá stundum hálfa; þá átu þeir hver annan. Nei, ég veit ekki til þess að það hafi aðrir farið á þessar veið- ar síðan." Niðurdýfmgarskím En hvernig fannst Guð- bjarti að vera alltaf víðs- fjarri, til dæmis þegar konan var að ganga með börnin? „Ég veit það ekki, það þekktist ekkert annað þá. Það var ekkert verið að tala um að fara í land. Það var nú ekki svo mikil atvinna að menn gætu sleppt því sem þeir höfðu.“ -Þið hafið þá verið kven- mannslausir meiripart árs- ins? „Neinei, vitleysa, við vor- um alltaf heima milli ver- tíða.“ „Heima! Það var vika sem þið voruð milli vertíða og þá voruð þið að hreinsa bát- inn.“ „Þetta gengur svona. Ég veit ekki hvort fólkið er nokkuð hamingjusamara núna en það var þá.“ „Enda sagði Björgvin einu sinni þegar ég var að tala um að betra væri yndi en auður: Já, en þið eruð þá eins og ný- trúlofuð þegar hann kemur í land.“ -Varstu ekki oft hræddur um hann þegar hann var á sjónum? „Jú, blessaður vertu. Ég bað oft fyrir honum, því ég er trúuð manneskja og er ekkert feimin að segja frá því.“ -Heldurðu að það að hann var á sjónum hafi styrkt þig í trúnni? „Það er nú líkast til. Skil- aði mér honum heilum heim. En ég er uppalin í trú. Það voru alltaf lesnir húslestrar heima í Furufirði áður en út- varpið kom. Maður lærði þá alveg reiðinnar dóm af sálm- um. Fóstri minn var sterk- trúaður enda erum við úr prestaætt. Ég hafði oft sálmabókina opna hjá mér þegar ég var að sauma í gamla daga.“ Sigríður var einn af stofn- endum kvenfélags kirkjunn- ar og hefur tekið svokallaðri niðurdýfingarskírn. „Jesús hafði niðurdýfingarskírn og þess vegna fannst mér ég verða að taka henni líka, hún er í hans anda. Það gerðist í Hafnarfirði. Ég var færð í hvítan slopp og látin fara öll ofan í kar með volgu vatni. Við förum aldrei svo suður að við för- um ekki á samkomu hjá nið- urdýfingarsöfnuðinum. Þar eru margir sem vitna, full- orðnir karlmenn meira að segja. Nei, ég hef nú lítið gert af að vitna, en svolítið meðan ég var yngri.“ Engin sérstök kúnst „Nei, þetta hefur verið um 1951 sem ég kem í land og svo hef ég líklega verið í fjögur til fimm ár hjá Tog- araútgerðarfélaginu eða þangað til það hætti. Já, þetta var nokkuð vel útbúið frystihús í þá daga. Þeir komu með mikinn fisk að landi togararnir, ísborgin og Sólborgin, og var hann unn- inn víðar en í ísfirðingi. “ Eftir að frystihúsið fer á hausinn ræðst Guðbjartur til heildsölufyrirtækisins Sand- fells og starfaði þar óslitið til skamms tíma. Én meðfram þessum störfum fékkst Guð- bjartur við nokkuð sem hann

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.