Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 31

Bæjarins besta - 17.12.1990, Síða 31
 BÆJARINS BESTA 31 Svefnhjólið ÚT ER komin hjá Máli og menningu skáldsagan „Svefnhjólið" eftir Gyrði EI- íasson. í sögunni ber margt fyrir augu lesenda sem er bæði kunnuglegt og kátlegt, og jafnframt ævintýralegt, dularfullt og ógnvekjandi. Hér er lýst ferðalagi ungs manns um ísland, bæði of- anjarðar og neðan, hérna megin og hinum megn, frá litlu þorpi um stærra kaup- tún til dálítillar borgar og alls staðar séríslensk kenni- leiti sem lesendur þekkja mætavel en verða hér engu að síður torkennileg af sam- hengi sínu. Þetta er önnur skáldsaga Gyrðis Elíassonar en að auki hefur hann áður sent frá sér smásagnasafn og sex ljóða- bækur. Árið 1989 hlaut hann Stílverðlaun Þórbergs Þórð- arsonar, fyrstur manna. Bókin er 144 bls. Bubbi ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin „Bubbi“ eftir Silju Aðalsteinsdóttur og Ásbjörn Morthens. Bubbi Morthens fór fyrst af alvöru að láta að sér kveða í íslensku tónlistarlífi fyrir 10 árum, og vakti þá fádæma athygli. Margir töldu að þar hefði verið brotið blað í ís- lenskri dægurtónlist. Vin- sældir hans hafa ekki dvínað síðan. Bókin varpar ljósi bæði á feril Bubba og merki- legan þátt í íslensku menn- ingarlífi. ’ í henni segir Bubbi frá bernsku sinni og uppvexti, misheppnaðri skólagöngu og litríkum tíma sem farands- verkamaður, frá árunum í rokkinu en líka frá freisung- um dópsins, sorginni og ást- inni. í bókinni, sem er 286 blaðsíður, eru á annað hund- rað ljósmyndir, fjöldi texta er birtur, og sömuleiðis er þar að finna ítarlega plötu- og lagaskrá. Ódauðleikinn ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin „Ódauð- leikinn" eftir tékkneska rit- höfundinn Milan Kundera. Þetta er skáldsaga, byggð á mörgum ástarþríhyrningum og valsað er aftur og fram um evrópska sögu þótt aðal- sögusviðið sé Frakkland nú- tímans. Meðal þeirra sem leiddir eru fram á sjónar- sviðið eru Goethe og Hem- ingway sem lýst er í lifanda lífi og eiga svo spaklegar við- ræður eftir dauðann. Sem fyrr er það aðalsmerki Mil- ans Kundera hversu snjall hann er að tengja fjörlega frásögn við hugleiðingar um ástina, dauðann og ódauð- leikann mannlegt hlutskipti sem hann sér oft speglast í óvæntum hlutum. Ódauðleikinn kom fyrst úr í Frakklandi í janúar á þessu ári. Michel Braudeau, gagn- rýnandi Le Monde, komst þá svo að orði: „..verk Kundera er þéttofið, hnytt- ið, samþjappað, þar sem skotið er inn atburðum, þeir áréttaðir án þess að orði sé ofaukið. Þess vegna er skáldsagan svona áhrifarík, svona sterk, svona vel saman sett.“ Þjófurínn ÚT ER komin hjá Máli og menningu skáldsagan „Þjóf- urinn“ eftir sænska rithöf- undinn Göran Tunström í þýðingu Þórarins Eldjárns. Bókin ætti að höfða til fs- lendinga, því hún fjallar um þjófnað á handriti, þ.e. Silf- urbiblíunni í Uppsölum. Að- alsöguhetjan er afstyrmið Jóhann, þrettánda barn ídu og Friðriks í kumbaldanum á Torfunesi í sænska bænum Sunne. Við fylgjumst með lífshlaupi hans frá örbirgð- inni í Sunne á sjötta áratugi þessarar aldar til Uppsala og þaðan suður til Ítalíu þar sem leikurinn berst allt aftur á sjöttu öld, til Ravennu þar sem Þjóðrekur mikli ríkir yfir Gotum. Jóhann þráir hefnd fyrir þá auðmýkingu sem hann hefur mátt þola: hann vill sýna að hann sé einhver. En leiðin þangað er löng og viskudrykkurinn sem hann bergir á er göróttur. Frásögn Tunströms er sérlega litrík og lífleg, kátleg og harm- þrungin í senn. Áður hefur komið út á íslensku skáldsagan „Jólaóratórían“ eftir sama höfund. Elsku Elvis ROKK-KÓNGURINN Jól í Straum inn straumur Silfurgötu 5 ísafirði 3“ 3321 Mikið úrval gjafa sem gleðja

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.