Bæjarins besta


Bæjarins besta - 17.12.1990, Qupperneq 25

Bæjarins besta - 17.12.1990, Qupperneq 25
BÆJARINS BESTA 25 Galtarviti „Svínahryggur, qúpurog hangikjöt í jólamatínnu - segir Valur Fannar vitavörður á Galtarvita, en hann og kona hans, Guðlaug Tryggvadóttir eru búin að vera á þriðja ár á Galtar- vita ásamt Lindu Rós dóttur þeirra, sem verður I árs 29. desember HALLÓ er þetta Valur Fannar? „Jú það er hann.“ Komdu sæll og bless- aður, Róbert hérna á BB. „Já komdu margblessaður og sæll.“ Hvað syngur í ykkur þama á Galtarvita? „Það syngur allt gott í okkur, þakka þér fyrir.“ Er fólkið byrjað á jólaundirbúningn- um? „Já blessaður vertu, það er ekki seinna vænna, þetta líður svo hratt. Eg var að panta jólamatinn áðan og jólaskipið kemur líklega tuttugusta.“ Hvað á svo að hafa í jólamatinn? „Já, það verður gott skal ég segja þér, maður fitnar örugglega um þessi jól. Við ætlum að hafa svína- hamborgarahrygg á aðfanga- dag, rjúpur á jóladag og hangikjöt á annan í jólum. Síðan verðum við með gæs á milli jóla og nýárs.“ Hvað með Þorláksmessu- skötuna? „Jú, auðvitað verð- um við með skötu, skárra væri það nú. Mér var lofað skötu inn á Suðureyri, en á bara eftir að nálgast hana, hvernig sem það nú fer.“ Þú ert búinn að ná í jólarjúp- urnar? „Nei, en ég fer upp í hlíð í vikunni og næ mér í nokkrar. Þær hafa verið að spóka sig hérna í hlíðinni undanfarið." Hænurnar verpa vel Hvernig er tíðarfarið búið að vera í haust? „Alveg stór- kostlegt, ég get ekki sagt annað. Það er allur snjór far- inn, allt autt núna. Maður bíður bara eftir snjónum til að komast á milli á sleðan- um.“ Hvernig líður hænun- um? „Þeim líður bara vel. Þær eru hérna úti á túni að spóka sig í blíðunni. Þær verpa vel, nema þegar gerir mikið frost, þá dregur veru- lega úr varpi. Kannski ég gefi þeim hitablásara í jóla- gjöf.“ segir Valur og skelli- hlær. En hvernig dafnar dóttir- in? „Hún dafnar svakalega vel. Við höfum verið sér- staklega heppin með það hvað hún er hraust. Hún verður 1 árs 29. desember.“ Hvað ætlið þið að vera lengi á Galtarvita? „Ég veit það nú ekki, við ætluðum bara að vera hér í tvö ár, en það er liðið á þriðja ár núna. Jú, ætli við verðum ekki í eitt ár í yiðbót, ég hugsa það. Okk- ur líður svo vel hérna.“ • Valur Fannar vitavöröur á Galtarvita. Hann seglst örugg- lega eiga eftir að fltna vel um þessl jól, til að birgja sig fyrir veturinn. Jólabækurnar á leiðinni Á ekkert að lesa yfir jólin? „Jújú, jólabækurnar eru á leiðinni til okkar. Við fáum blöð, tímarit og bækur sent að sunnan. En maður er alltaf aðeins á eftir í blaða- lestrinum eins og gefur að skilja. Við fáum BB frá Suð- ureyri reglulega, þannig að við reynum að fylgjast með hvað er að gerast í kringum okkur.“ Eigið þið von á heimsókn um jólin? „Nei, eða jú, jóla- sveinarnir koma væntanlega hingað held ég, þeir eiga heima í fjöllunum er það ekki? Við höfum fengið tals- vert af göngufólki í heim- sókn í haust. Svo búumst við að fá hingað snjósleðafólk eftir áramótin, þegar snjór- inn er kominn." Gleðileg jól Vestfirðingar Þið eruð þá komin í jóla- skap á Galtarvita? „Jájá, það þýðir ekkert annað. Við eigum nóg að borða og fáum væntanlega jólalesefnið á réttum tíma. Við höfum skarf einu sinni í viku og salt- fisk líka. Ég verka saltfisk hérna, veiddi dálítið af þorski í sumar á slöngubátn- um, en mig vantar bita af há- karli til að verka. Ég er bú- inn að leita til „hákarlanna“ á Suðureyri, þá Leifa Nogga og Ölla en þeir eiga ekkert. Nú, svo vona ég bara að Þor- láksmessuskatan komi á Þor- láksmessunni. Við viljum nota tækifærið og óska öllum Vestfirðingum gieðilegra jóla og farsæls komandi árs og vonum að allir hafi það gott yfir jólin.“ Ég skal koma þessu til skila Valur. „Já þakka þér fyrir og gleði- leg jól.“ Sömuleiðis, skilaðu kveðju. „Já, ég geri það, vertu blessaður og sæll.“ sagði Valur Fannar að lok- um. Róbert Schmidt Óska öllum skólabömum á ísafirði ogíHnífsdal gleðilegrajóla ogfarsæls nýs árs, með þökkfyrirárið sem erað líða. Kærkveðja. Geiri. Vestfirðingar Eigum ávallt til mikið úrval af vöru til vökva-, vatns- og loft- lagna. Sérhæfð viðgerðar- og vara- hlutaþjónusta. ¥ Vélvirkinn hf. Hafnargötu 8 415Bolungarvík A.T.V.R. ÁFENGIS- OQ TOBAKSVERSLUW RÍKISINS ÍSAFIRÐI Opnunartímar yfir hátíðarnar Mánudagur til fimmtudags 17., 18., 19. og 20. desember kl. 10-18 Föstudagur 21. desember kl. 10-20 Fimmtudagur 27. desember kl. 10-18 Föstudagur 28. desember kl. 10-19 Mánudagur 31. desember kl. 9-12 Gleðilega hátíð!

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.