Morgunblaðið - 01.12.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Bíleigandi sem á gamlan Ford-bíl var
ekki sáttur við það þegar hann var
rukkaður um bifreiðagjöld fyrir þetta
ár, enda taldi hann bílinn vera orðinn
25 ára. Hann kærði álagninguna til
ríkisskattstjóra og krafðist þess að
álagningin fyrir árið 2020 yrði felld
niður.
Beiðni kæranda var hafnað og í úr-
skurði ríkisskattstjóra var vísað til
þess að gögn málsins bentu til þess að
bíllinn hefði verið framleiddur árið
1995 og væri því ekki eldri en 25 ára.
Bíleigandinn skaut úrskurðinum til
yfirskattanefndar og krafðist þess að
hann yrði felldur úr gildi. Bíleigand-
inn vitnaði til laga um bifreiðagjald
þar sem segir að bílar sem eru eldri
en 25 ára í upphafi gjaldárs, talið frá
og með árgerðarári þeirra, skuli vera
undanþegnir bifreiðagjaldi. Eigandi
bílsins benti einnig á að samkvæmt
ökutækjaskrá hefðibíllinn verið ný-
skráður í febrúar 1995 en árgerðar
ekki getið. Forskráning og toll-
afgreiðsla bílsins sé skráð í febrúar
1995. Einkafyrirtæki flutti bílinn inn
en ekki umboðið.
Bíleigandinn keypti bílinn árið
2003 og var hann þá sagður af árgerð
1995. Framleiðslunúmer bílsins benti
einnig til þess og fleiri atriði. Fram-
leiðsluár bílsins var tilgreint 1994 í
ökutækjaskrá en árgerð 1995 og þótti
vafalaust að svo væri. Ágreiningurinn
var um hvort bíllinn teldist vera orð-
inn eldri en 25 ára, í skilningi ákvæðis
laga um bifreiðagjald, í upphafi gjald-
árs 2020.
Yfirskattanefnd benti á að telja
ætti aldur frá og með árgerðarári, í
þessu tilfelli árinu 1995, og því var 25.
aldursárið 2019. Ekki geti verið áhöld
um að í upphafi árs 2020 beri að telja
bílinn vera eldri en 25 ára. Yfirskatta-
nefnd féllst því á kröfu kærandans.
gudni@mbl.is
Deilt um hvort
Ford væri forn
Yfirskattanefnd úrskurðar um fornbíl
AFP
Bíll Deilt var um hvort bíll væri orð-
inn fornbíll og undanþeginn gjaldi.
Tillögur um óbreytta útsvars-
prósentu hafa verið gagnrýndar. Á
bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði
felldi meirihlutinn tillögu Bæjar-
listans um hækkun útsvarsins í
14,52% með þeim rökum að ekki
eigi að hækka álögur á íbúa. Tals-
maður tillögunnar sagði að nýta
ætti hækkunina til þjónustu við
viðkvæma hópa. Fleiri fulltrúar í
minnihlutanum tóku undir það og
gagnrýndu meirihlutann fyrir að
ætla sér ekki að fullnýta útsvarið
en ákveða þess í stað að hækka
gjaldskrár. Fulltrúar Samfylking-
arinnar í bæjarstjórn Seltjarnar-
ness gagnrýna einnig að halda eigi
útsvarsprósentunni óbreyttri á
næsta ári á tímum viðvarandi
hallareksturs. „Covid-ástandið
kallar á aukna þjónustu sveitar-
félaga við íbúa sína og því er eðli-
legt að við sem höldum okkar
tekjum séum tilbúin að leggja
0,78% meira til samfélagsins til
þess að styðja við nágranna okkar
sem þurfa aukinn stuðning, við
eldri borgara bæjarins sem þurfa
aukna þjónustu og að börnin okkar
fái áfram aðgang að framúrskar-
andi skóla-, íþrótta- og frístunda-
starfi,“ segir í bókun þeirra.
Hækki fyrir viðkvæma hópa
FULLTRÚAR MINNIHLUTA GAGNRÝNA ÓBREYTT ÚTSVAR
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Efnahagsleg og félagsleg áhrif kór-
ónukreppunnar verða mikil á rekst-
ur sveitarfélaga á næsta ári. Sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu utan
Reykjavíkur hafa nú öll lagt fram til-
lögur að fjárhagsáætlunum fyrir
næsta ár, sem eru til umfjöllunar í
sveitarstjórnum bæjarfélaganna.
Gera þær ráð fyrir verulegum halla-
rekstri á næsta ári. Leggja á fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar
fram í borgarstjórn í dag.
Útsvarið er helsti tekjustofn sveit-
arfélaganna en í tillögum að fjár-
hagsáætlun allra sveitarfélaganna í
nágrenni höfuðborgarinnar er gert
ráð fyrir að útsvarsprósentan verði
óbreytt á næsta ári. Lægst er út-
svarið í dag á Seltjarnarnesi og í
Garðabæ eða 13,70%, í Kópavogi,
Hafnarfirði og Mosfellsbæ er út-
svarshlutallið 14,48%.
Í fjárhagsáætlun Kópavogs er
gert ráð fyrir 575 milljóna króna
rekstrarhalla á samstæðu bæjar-
félagsins á næsta ári.
Í Hafnarfirði er áætlaður
rekstrarhalli á A- og B-hluta sveitar-
félagsins talinn geta orðið 1.221
milljón króna á árinu 2021.
Í Garðabæ er gert ráð fyrir 499
milljóna króna halla á A-hluta bæj-
arsjóðs en samstæðureikningur bæj-
arfélagsins verði neikvæður um 71
milljón króna.
Í tillögu að fjárhagsáætlun Mos-
fellsbæjar er gert ráð fyrir 567 millj-
óna króna halla á rekstri sveitar-
félagsins (A- og B-hluta).
Á Seltjarnarnesi er gert ráð fyrir
að rekstrarniðurstaða samstæðu-
reiknings bæjarfélagsins verði nei-
kvæð um 136 milljónir kr.
Gangi þetta eftir verður saman-
lagður halli sveitarfélaganna fimm
nálægt þremur milljörðum króna á
komandi ári.
Verja grunnþjónustuna
Í kynningu á fjárhagsáætlun
Kópavogs kemur fram að megin-
markmiðið sé að verja grunnþjón-
ustuna og fylgja eftir öflugri fram-
kvæmdaáætlun. Framlög til
velferðarmála aukist um 16%, eink-
um vegna veirufaraldursins og fjár-
hagsaðstoðar, fjárfest verði fyrir 3,9
milljarða á næsta ári og vegur þar
þyngst bygging nýs húsnæðis Kárs-
nesskóla. Lagt er til að fasteigna-
skattur á íbúðar- og atvinnuhúsnæði
lækki, lóðarleiga, vatnsskattur og
holræsagjald haldast óbreytt milli
ára en sorphirðugjald í Kópavogi
hækkar á næsta ári skv. áætluninni.
Í kynningi á fjárhagsáætlun Hafn-
arfjarðar kemur fram að megin-
áhersla sé lögð á að lágmarka áhrif
faraldursins á íbúa bæjarins. Heild-
arálagning fasteignagjalda lækki
með lægri fasteignasköttum og
vatns- og fráveitugjöldum til að
koma til móts við hækkun fasteigna-
mats og almennt sé gert ráð fyrir að
gjaldskrá fyrir árið 2021 haldist
óbreytt eða hækki í takt við vísitölu.
Bærinn hyggst fjárfesta fyrir 4,3
milljarða á næsta ári, milljarði meira
en á þessu ári, og haft er eftir bæjar-
stjóra í kynningu á fjárhagsáætlun-
inni að sala á hlut í HS Veitum hjálpi
mjög mikið í viðspyrnunni og komi í
veg fyrir að lagðir séu skuldaklafar á
bæjarfélagið.
Í greinargerð fjárhagsáætlunar
Garðabæjar segir að ekki verði dreg-
ið úr grunnþjónustu vegna sam-
dráttar skatttekna, álögum haldið
eins lágum og kostur er og ýtrasta
aðhalds gætt. Álagningarhlutföll
fasteignagjalda breytast ekki milli
ára, gert er ráð fyrir framkvæmdum
fyrir rúma 3,5 milljarða á næsta ári.
Þá hækkar sorphreinsunargjald úr
31 þúsund krónum í 41 þúsund á
næsta ári svo dæmi séu tekin.
Í Mosfellsbæ eru framkvæmdir
fyrirhugaðar fyrir tæpa 2,6 millj-
arða, sem að mestu renna til skóla-,
gatna- og veitumannvirkja, leik-
skólagjöld eiga að lækka um 5% en
aðrar gjaldskrár á sviði skóla- og frí-
stundamála hækka til samræmis við
stefnumörkun lífskjarasamning-
anna, að því er segir í umfjöllun um
áætlunina.
Fram kemur í bókun bæjarstjóra
Seltjarnarness við fyrri umræðu um
fjárhagsáætlun næsta árs, sem fram
fór í seinustu viku, að ekki sé gert
ráð fyrir niðurskurði eða skerðingu á
þjónustu við íbúa, fjárhagsstaða Sel-
tjarnarnesbæjar sé sterk og skuldir
langt undir viðmiðunarmörkum.
Undir skuldaviðmiði
Heildarskuldir sveitarfélaga mega
ekki vera hærri en 150% af reglu-
legum tekjum. Í Kópavogi verður
áætlað skuldaviðmið 106,5% af
tekjum á næsta ári. Nettóskuldir
með lífeyrisskuldbindingum eru
áætlaðar 43,8 milljarðar. Í Hafnar-
firði er gert ráð fyrir 1.750 milljóna
króna lántökum og afborgunum lána
upp á um tvo milljarða. Skulda-
viðmiðið á að verða um 114% í lok
næsta árs. Í Garðabæ er áætlað að
skuldaviðmiðið verði 88,3% í lok
næsta árs og í Mosfellsbæ er það
áætlað 113,3% á næsta ári.
Þungur róður í kórónukreppu
Gert er ráð fyrir verulegum hallarekstri í fjárhagsáætlunum fimm sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu utan Reykjavíkur Meirihlutarnir í öllum bæjarstjórnunum leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Morgunblaðið/Hari
Í skugga faraldurs Umræður um fjárhagsáætlanir standa yfir þessa dagana í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.