Morgunblaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
Hair Volume vítamínhlaup
fyrir – hár, húð og neglur
Fullkomið meðí jólapakkann
Bragðgóð vítamínhlaup sem:
•næra hárið innan frá
•geta minnkað hárlos
•hafa góð áhrif á neglur og húð
•styrkir og viðheldur heilbrigðu hári
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Áhrif samfélagsmiðla á líf og líðan
ungs fólks eru tvíbent. Hin jákvæðu
eru möguleikar sem bjóðast til þess
að fylgjast með atburðum og um-
ræðum um mál
líðandi stundar,
vera í sam-
skiptum við fólk
og fá upplýsingar,
ráðleggingar, af-
þreyingu og inn-
blástur. Neikvæð-
ar hliðar eru aftur
á móti hættan á að
eðlileg mannleg
samskipti bjagist,
að notendur falli
fyrir freistingum og kostaboðum eða
láti um of stjórnast af tískustraumum
og glansmyndum. Mikið er um slíkt í
netheimum, þar sem margir telja sig
dvelja of lengi. Þetta er meðal helstu
niðurstaðna í meistaraverkefni sem
Sveinbjörg Smáradóttir varði við
hug- og félagsvísindasvið Háskólans
á Akureyri nú á dögunum.
Efnið oft óáreiðanlegt
Í MA-verkefni Sveinbjargar tóku
25 manns á Norðurlandi, 20-30 ára,
þátt í rýnihópum og svöruðu spurn-
ingum. Upplegg í starfinu voru svo-
nefndir Þróunarvísar norðurslóða,
vísindatæki sem notaðir eru til að
fylgjast með lífsgæðum fólks sem
byggir nyrstu slóðir veraldar. Vís-
arnir eru efnahagsleg velferð, mennt-
un, heilsa, menning, tengsl við nátt-
úru og stjórn á eigin örlögum.
Niðurstöður þessa verkefnis verða nú
teknar inn í vísindastarf Stofnunar
Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri,
en þar er Sveinbjörg sérfræðingur í
norðurslóðamálum.
„Viðmælendur mínir í rannsókn-
inni sögðu að þeim þætti miður hve
efni á samfélagsmiðlum sé oft óáreið-
anlegt. Einnig að umræður og rök-
ræður um samfélagsleg og pólitísk
málefni vilji vera erfiðar, ósann-
gjarnar og ómálefnalegar. Því er
gagnrýnin hugsun mikilvæg við alla
notkun á þessum miðlum,“ nefnir
Sveinbjörg. Mikil notkun ungs fólks á
samfélagsmiðlum og nánast sítenging
sumra við þá kalli á vitundarvakningu
og fræðslu um hóflega notkun.
„Ég tel mikilvægt að draga úr
skjátíma svo við eyðum ekki meiri
tíma og orku í að fylgjast með öðrum,
heldur njótum okkar eigin tilveru.
Fyrir mína parta vildi ég helst sjá
samfélagssáttmála um að ung börn
fengju ekki snjallsíma eða að nota
samfélagsmiðla fyrr en þau hafa náð
tilteknum aldri, vegna mikillar
ábyrgðar sem þau eru kannski ekki
fær um að standa undir. Við sendum
börnin okkar ekki ein út í umferðina á
reiðhjóli fyrr en þau hafa náð þroska
til. Ég vil svipaða nálgun á snjallsíma
og samfélagsmiðla.“
Facebook hefur misst vægi
Sveinbjörg segir marga viðmæl-
endur hafa nefnt hve háðir þeir séu
samfélagsmiðlum og notkun þeirra.
Að þeir ótengdir séu að missa af ein-
hverju og finnist mikilvægt þegar
kveikt er á símum að athuga strax
þegar heyrist hljóð, til dæmis frá
Facebook.
„Mér finnst eins og við séum líka
orðin háð því að hafa eitthvað fyrir
augunum og meðtaka upplýsingar,
hversu vel sem þær svo sitja í minni.
Við kunnum ekki lengur að sitja bara
og gera ekki neitt og horfa út í loftið,“
segir Sveinbjörg og bætir við að notk-
un, vægi og hlutverk einstaka fé-
lagsmiðla breytist hratt um þessar
mundir. Facebook hafi augljóslega
misst vægi sitt sem flotti miðillinn og
sé orðinn vettvangur fyrir hagnýtar
upplýsingar, meðal annars í afmörk-
uðum hópum. Instagram sé fremur
notað fyrir afþreyingu, skemmtun og
til að byggja upp ímynd út á við. Í dag
sé miðillinn TikTok svo í mikilli sókn,
stækki hraðar en aðrir miðlar og
muni breyta myndinni.
„Samfélagsmiðlar veita þeim sem
eru veikir félagslega auðvelda leið til
að draga sig inn í skel og forðast
samskipti við aðra. Miðlarnir geta
aukið á tilfinningalegan og félags-
legan vanda þeirra sem glíma við
slíkt, án þess að vera bein orsök. Á
hinn bóginn geta samfélagmiðlar líka
hjálpað fólki að finna jafningja sína
og stuðning og þannig eflt félagsleg
samskipti.“
Freistingar og samskipti bjargast
Innblástur og afþreying á samfélagsmiðlum Tvíbent áhrif, skv. meistaraverkefni Umræður eru
oft ekki málefnalegar Ung börn fái ekki snjallsíma Miðlarnir geta aukið félagslegan vanda fólks
Sveinbjörg
Smáradóttir
AFP
Facebook Stafræn veröld á marga
kima sem nú eru rannsóknarefni.
Í dag, fullveldisdaginn 1. desember, kl. 18.00, verður
sendur út frá Valhöll fundur á vegum Félags sjálfstæð-
ismanna um fullveldismál, þar sem aðalræðumaður
verður Arnar Þór Jónsson héraðsdómari sem fjallar um
fullveldið.
Formaður félagsins, Styrmir Gunnarsson, segir nokk-
ur orð í upphafi fundarins.
Í fréttatilkynningu kemur fram að hægt verði að fylgj-
ast með fundinum á Fullveldisfelagid.is eða á fésbókar-
síðu Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál.
Fjarfundur um fullveldismál
Arnar Þór Jónsson
Hersir Aron
Ólafsson hefur
verið ráðinn sem
aðstoðarmaður
Bjarna Bene-
diktssonar, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra.
Hersir er stúdent
frá Verzl-
unarskóla Ís-
lands og hefur
lokið BA- og meistaraprófi í lög-
fræði frá Háskóla Íslands, auk
prófs í verðbréfaskiptum.
Að undanförnu hefur Hersir
starfað sem lögfræðingur og reglu-
vörður Ölmu íbúðafélags hf., en áð-
ur starfaði hann hjá LOGOS lög-
mannsþjónustu, sem fréttamaður
og þáttastjórnandi í Íslandi í dag á
Stöð 2 og sem blaðamaður hjá Ár-
vakri.
Hersir Aron ráðinn
aðstoðarmaður
Hersir Aron
Ólafsson
STUTT
Fiskvinnslan Guðmundur Runólfs-
son hf. gaf Fjölskylduhjálp sex
bretti af lausfrystri ýsu í gær. Það
eru um þrjú tonn af fiski sem fara í
matargjafir. Guðmundur Smári
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
segir að vel hafi gengið hjá þeim og
sælla sé að gefa en þiggja. Formað-
ur Fjölskyldurhjálpar segir gjöfina
ómetanlega og aldrei hægt að gefa
slíkar matargjafir án aðkomu mat-
vælafyrirtækja.
Morgunblaðið/Ómar
Matargjafir Koma sér vel þessa dagana.
Gáfu Fjölskylduhjálp
þrjú tonn af ýsu