Morgunblaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020 Þorsteinn Gunnarsson arkitekt hlaut á dögunum viðurkenningu Minjastofnunar Íslands fyrir mikil- vægt brautryðjendastarf á sviði varðveislu menningarminja; fyrir mikilvægt og merkilegt frum- kvöðlastarf á sviði endurgervingar sögulegra bygginga og rannsókna á íslenskri húsagerðarsögu. Þorsteinn Gunnarsson lauk námi í húsagerðarlist frá arkitektaskóla Konunglega danska Listaháskólans í Kaupmannahöfn árið 1966. Hann var fyrstur Íslendinga til þess að út- skrifast úr þeirri deild skólans sem sérhæfir sig í endurgervingu gam- alla húsa og könnun eldri byggðar. Samhliða náminu í Kaupmanna- höfn var Þorsteinn við sérnám í byggingafornleifafræði við École francaise d́archéologie d́Athénes í Grikklandi frá 1963 til 1964. Verk- efni hans, sem var hluti af viða- meiri fornleifarannsókn, fólst í ýtarlegri rannsókn og nákvæmri uppmælingu á leikhúsinu í Delfí. Þorsteinn fluttist til Reykjavíkur árið 1967 og hóf rekstur eigin teiknistofu. Með komu Þorsteins til starfa urðu þáttaskil í húsaverndar- málum hér á landi. Sem fyrsti ís- lenski arkitektinn með sérmenntun í byggingarsögulegum rann- sóknum og endurgervingu gamalla húsa innleiddi hann ný og fagleg vinnubrögð í þessum greinum hér. Meðal verkefna sem hann hefur komið að hér, með fleirum, var endursmíði Viðeyjarstofu og -kirkju, endurreisn Hóladómkirkju, endurreisn Bessastaðastofu og ann- arra húsa forsetasetursins, endur- gerð Nesstofu og endurbætur Dóm- kirkjunnar og Stjórnarráðshússins. Þorsteinn var líka einn hönnuða Borgarleikhússins. Hlaut viðurkenningu Minjastofnunar  Þorsteinn Gunnarsson heiðraður Arkitektinn Þorsteinn Gunnarsson. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Við Antonía ætlum að vera með bland í poka á þessum tónleikum. Við flytjum svolítið af óperutónlist sem hefur bæði beina og óbeina tengingu við jólin, og svo flytjum við tvær Ave Maríur og einhverja jóla- tónlist að auki. Þetta verður fjöl- breytt blanda í hálftíma,“ segir Bjarni Thor Kristinsson bassa- söngvari um tónleika þeirra Antoníu Hevesi píanóleikara sem hefjast í Hafnarborg kl. 12 í hádeginu í dag, þriðjudag. Vegna samkomu- takmarkana verða engir gestir í salnum en tónleikarnir sendir út í streymi. Hægt er að tengjast því á heimasíðu Hafnarborgar. Þetta verða síðustu hádegistón- leikar ársins í Hafnarborg og þar sem aðventan er gengin í garð verð- ur efnisskráin sveipuð hátíðlegum blæ. Verkin sem Bjarni Thor syngur og minntist á eru eftir Sigvalda Kaldalóns, Mozart, Puccini og fleiri. Til Þýskalands í febrúar Bjarni Thor er hópi þeirra ís- lensku óperusöngvara sem náð hafa hvað lengst á erlendri grund. Eftir söngnám hér heima hélt hann til Vínarborgar árið 1994 og nam þar við óperudeild Tónlistarháskólans. Vorið 1997 var Bjarni ráðinn aðal- bassasöngvari Þjóðaróperunnar þar í borg. Þar var hann fastráðinn til þriggja ára og að þeim tíma liðnum sneri hann sér einungis að lausa- mennsku. Hefur hann sungið mörg kunn bassahlutverk við fjölda óp- eruhúsa í mörgum löndum. Mörg undanfarin ár hefur Bjarni því eink- um starfað erlendis við óperuhús á veturna en vegna veirunnar er þessi aðventa ólík því sem hann er vanur. „Oftast hef ég verið einhvers stað- ar að syngja á þessum tíma úti í heimi. En þegar ég hef verið á Ís- landi í desember hef ég oft tekið þátt í tónleikaflóðinu en það er miklu minna að gera núna. Þess vegna er frábært að fá þetta tækifæri í Hafn- arborg til að syngja svolítið. Fyrir marga söngvara sem starfa fyrst og fremst á Íslandi er aðventan uppgripatíminn og þar af leiðandi er mikill tekjumissir nú hjá mörgum.“ Bjarni Thor er bæjarlistamaður Garðabæjar og var með aðra streymistónleika þar á dögunum. Hvernig finnst honum að halda tón- leika svona fyrir tómum sal? „Það hefur kosti og galla. Auðvit- að saknar maður samspilsins sem er alltaf við áhorfendur á tónleikum. Það er ekki til staðar þegar maður syngur inn í myndavélina. En ég reyni að sjá fyrir mér fólkið sem ég syng fyrir og ef vel tekst til þá er gaman að það sé til í streymi eða upptöku. Þetta er staðan í dag og ég fagna því að geta sungið fyrir fólk á þennan hátt.“ Hefði faraldurinn ekki skollið á væri Bjarni nú í Þýskalandi að syngja. „Ég verð að halda mér við og í febrúar hefjast mín verkefni í Þýskalandi og verða fram á vorið. Eins og staðan er í dag bendir ekk- ert til þess að þau verði felld niður. Ég horfi því fram á bjartari tíma,“ segir hann. Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir Flytjendurnir Antonía Hevesi píanóleikari og Bjarni Thor Kristinsson bassi. Hann segir frábært að fá þetta tækifæri til að syngja fyrir fólk. Fjölbreytt hátíðarblanda  Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari kemur fram á hádegistónleikum með Antoníu Hevesi  Verða í streymi Sala miða á jólatónleika Björgvins Halldórssonar, Jólagesti Björgvins, hefur gengið vonum framar en vegna Covid-19 verða þeir sýndir í streymi, bæði á netinu og í Sjón- varpi Símans og Vodafone. Fólk mun því geta not- ið jólatónlistar heima í stofu eða við tölvuna laugardaginn 19. desember kl. 20 og verða tónleik- arnir sendir út frá Borgarleikhúsinu. „Fólk er svo sannarlega til í þetta,“ segir Ísleifur Þórhallsson, fram- kvæmdastjóri Senu Live sem skipu- leggur tónleikana. „Við erum búin að selja til almennings tvö þúsund miða og ofan á það eru fyrirtæki búin að senda inn pantanir fyrir næstum því fjögur þúsund miðum,“ segir Ísleifur. Að samanlögðu nemi því seldir og pantaðir miðar tveimur fullsetnum Laugardalshöllum. Hátt í 30 þúsund að horfa Ísleifur segir einn miða keyptan fyrir hvert heimili og líklegt að fjórir til sex horfi á tónleikana fyrir hvern seldan miða. Því megi ætla að allt að 30 þúsund manns muni njóta tón- leikanna. Ísleifur bætir við að miðar hafi verið seldir í 15 löndum. „Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá hvað þetta er allt að virka. Út af Covid fara allir í streymi og maður leysir öll mál í kringum þetta, réttinda- og kostn- aðarmál og þetta er að opna nýjar víddir fyrir okkur. Það er jafnt að- gengi fyrir Íslendinga hvar sem þeir eru á landinu og Íslendingar í útlönd- um geta líka horft á þetta,“ segir Ís- leifur. Tónleikar í fullri stærð Ísleifur segir að áhersla hafi verið lögð á að hafa miðaverð eins lágt og mögulegt væri, 3.900 krónur. „Þetta eru tónleikar í fullri stærð, það er ekki verið að skera þá niður fyrir streymið. Það eru kórar, strengir, dansarar og allur pakkinn,“ bendir hann á en söngvarar sem syngja með Björgvini í ár eru Ágústa Eva Er- lendsdóttir, Eyþór Ingi Gunn- laugsson, Bríet, Gissur Páll Giss- urarson, Högni Egilsson, Logi Pedro Stefánsson, Margrét Eir Hönnudótt- ir og Svala, dóttir Björgvins. „Þetta gefur okkur byr undir báða vængi og trú á að fólk sé til í þetta þannig að við höldum bara áfram og gerum meira,“ segir Ísleifur. „Þetta er komið til að vera.“ helgisnaer@mbl.is Tvö þúsund miðar seldir á Jólagesti  Fjögur þúsund pantaðir að auki Ísleifur Þórhallsson Kraumsverðlaun- in verða afhent í þrettánda sinn nú í desember fyrir íslenskar hljóm- plötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frum- leika. Dómnefnd verðlaunanna hefur nú tilnefnt 20 plötur en þær eru (flytjandi fyrst og svo plötutitill skáletraður) 0 – Ent- ity, Andartak – Constructive Meta- bolism, Asalaus – Aaleysing, Bára Gísla – HIBER, Bríet – Kveðja, Bríet, Buspin Jieper – VHS Volc- anic/Harmonic / Sounds, Celebs – Tálvon hinna efnilegu, Gugusar – Listen to this Twice, Cyber – Vaca- tion, Ingibjörg Turchi – Meliae, K.óla – Plastprinsessan, Magnús Jó- hann – Without Listening, Mengun – Þrettán tólf, Salóme Katrín – Water, Skoffín – Skoffín hentar íslenskum aðstæðum, Supersport! – Dog Run EP, Tucker Carlson’s Jonestown Massacre – Ingilín, Ultraflex – Vis- ions of Ultraflex, Volruptus – First Contact og Yagya – Old Dreams And Memories. 20 tilnefnd til Kraumsverðlauna Bríet

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.