Morgunblaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
✝ VilhjálmurÞórhallsson
fæddist á Seyð-
isfirði 14. júní
1931. Hann lést 15.
nóvember 2020 á
hjúkrunarheim-
ilinu Hrafnistu
Nesvöllum í
Reykjanesbæ.
Faðir hans var
Þórhallur Vil-
hjálmsson, f. á Há-
nefsstöðum við Seyðisfjörð f.
25. júlí 1899, d. 15. janúar
1961. Móðir Vilhjálms var Sig-
ríður Jónsdóttir, f. á Breiða-
vaði í Hjaltastaðaþinghá 13.
september 1895, d. 7. júlí 1970.
Vilhjálmur kvæntist Sigríði
Guðmannsdóttur 22. júlí 1960,
f. í Keflavík 6. febrúar 1932, d.
16. maí 2014.
Börn þeirra: 1) Þórhallur, f.
í Keflavík 19. nóvember 1961.
2) Guðrún, f. í Keflavík 2. mars
hallur, f. 2012, og Guðmundur,
f. 2017. Sambýlismaður Elínar
er Aðalsteinn Ragnar Bene-
diktsson, f. í Reykjavík 1984.
Börn Guðrúnar og Sveins
Núma eru Sigríður, f. í Kefla-
vík 1991, og Marsibil, f. í
Keflavík 1993. Sambýlismaður
Sigríðar er Óli Þór Arnarson,
f. á Akureyri 1991. Dóttir
þeirra er Karen Lilja, f. 6.
febrúar 2019. Sambýliskona
Marsibilar er Kristín Péturs-
dóttir, f. 1997 í Kópavogi.
Dóttir Ólafíu og Ásgeirs er
Sara Rós, f. í Keflavík 2004.
Börn Ólafíu Sigríðar og Nat-
hans eru Ari Edward, f. í
Bandaríkjunum 2010, og Óðinn
Einar, f. í Bandaríkjunum
2012.
Vilhjálmur var yngstur fjög-
urra systkina. Elstur var Birg-
ir, f. 1925, d. 8. febrúar 2017.
Næstelstur var Bragi, f. 1927,
d. 1948, sem lést úr berklum.
Guðbjörg var næstyngst, f.
1929, d. 2015.
Vilhjálmur lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1953 og embættis-
prófi í lögfræði frá Háskóla Ís-
lands 1960. Hann öðlaðist mál-
flutningsréttindi fyrir
héraðsdómi 1961 og fyrir
Hæstarétti 1965. Hann starfaði
allan starfsferil sinn sem lög-
maður á Suðurnesjum. Fyrst á
skrifstofu sinni í Keflavík frá
1960. Um skeið starfaði hann
sem bæjarlögmaður Keflavíkur
og síðustu starfsár sín á lög-
fræðiskrifstofu Suðurnesja.
Vilhjálmur var virkur í félags-
og trúnaðarstörfum. Hann var
m.a. formaður Skákfélags
Keflavíkur 1957 og sama ár
formaður félags ungra
jafnaðarmanna. Formaður
stjórnar Sjúkrasamlags Kefla-
víkur 1968-1981. Hann var
einn stofnfélaga Oddfellow-
reglunnar Njarðar 1976. Fé-
lagi í Lionsklúbbi Keflavíkur
1963-1979 (formaður 1970) og
félagi í Málfundarfélaginu
Faxa í Keflavík frá 1987-1993.
Vilhjálmur verður jarðsung-
inn frá Keflavíkurkirkju í dag,
1. desember, klukkan 13. At-
höfninni verður streymt á:
https://www.facebook.com/
groups/utforvilhjalms
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
1964. 3) Ólafía
Sigríður, f. í
Keflavík 13. nóv-
ember 1977. Eig-
inkona Þórhalls
er Sólveig Bjarna-
dóttir f. á Akur-
eyri 21. febrúar
1961. Eiginmaður
Guðrúnar var
Sveinn Númi Vil-
hjálmsson, þau
slitu samvistir
1999. Eiginmaður Ólafíu Sig-
ríðar af fyrra hjónabandi er
Ásgeir Freyr Guðmundsson, f.
í Bandaríkjunum 1975. Seinni
eiginmaður Ólafíu Sigríðar er
Nathan Balo, f. í Bandaríkj-
unum 1980. Börn Þórhalls og
Sólveigar eru Vilhjálmur
Reyr, f. á Akureyri 1982, og
Elín, f. í Reykjavík 1984. Eig-
inkona Vilhjálms Reyrs er
Berglind Guðmundsdóttir, f.
1983, og þeirra synir eru Þór-
Þegar ég hugsa um föður-
bróður minn, Vilhjálm Þór-
hallsson hæstaréttarlögmann,
sem nú er nýlátinn, finnst mér
sem hann muni verða mér
lengi minnisstæður af ýmsum
ástæðum, en ekki síst vegna
sterkrar nærveru sem hann
hafði og sem var óvenjuleg að
því leyti að hún helgaðist ekki
aðeins af þeim mörgu gáfum
sem hann var gæddur og miðl-
aði til samferðamanna heldur
einnig og ekki síður af því
hvernig hann hlustaði. Sagt er
að hann hafi stundum verið
annars hugar og djúpt sokkinn
í sína þanka, en mín reynsla er
sú að í samræðum hafi hann
hlustað af mjög einbeittri at-
hygli á viðmælanda sinn. E.t.v.
var þessi eiginleiki honum í
blóð borinn en gæti líka hafa
eflst í þeirri þjálfun hugans
sem lögmennskan krefst. At-
hygli hans virtist hvorki vera
óvirk né hlutlaus, heldur var
eins og hann hlustaði og væri
jafn harðan að vega og meta
hugmyndirnar sem reifaðar
voru líkt og þegar sótt er og
varið í réttarsal. Hann spurði
mig stundum um eitthvað sem
ég þóttist vita að hann kynni
fyrir fram svar við, en þá var
það líklegast til að gefa mér
tækifæri til að skýra mál mitt
betur en í fyrstu tilraun svo að
sannleikurinn yrði á endanum
ljósari en áður. Ég hef fyrir
satt að í störfum sínum sem
lögmaður hafi hann átt auðvelt
með að samsama sig málstað
skjólstæðinga sinna þegar hann
taldi sig að athuguðu máli vita
hið sanna um málavexti og hafi
þá átt auðvelt með að fylgja
málum eftir. Það mætti segja
mér að eiginleikar af þessu tagi
séu ómetanlegir í fari lög-
manns, að vilja athuga allar
hliðar máls, en hafa jafnframt
eðlislæga löngun til að leiða
sannleikann í ljós. Ég minnist
orða sem hann lét einu sinni
falla í mín eyru: „Veistu,
frændi, ég hef eiginlega bara
haft eitt prinsipp í minni lög-
mennsku og það er þetta: að
segja umbjóðendum mínum
sannleikann um stöðu mála,
undanbragðalaust, – og veistu:
þetta hefur gefist mér mjög
vel.“ Og öðru sinni heyrði ég
hann segja að hann reyndi yf-
irleitt að kanna til þrautar
hvort hægt væri að sætta máls-
aðila fremur en leita til dóm-
stóla. Þetta hygg ég að lýsi
frænda mínum vel. Hann var
velviljaður að eðlisfari og frið-
arins maður, en jafnframt rétt-
sýnn, heiðarlegur og hrein-
skiptinn. Ekki spillti fyrir hve
stutt var í brosið sem lýsti hlý-
hug og góðu hjartalagi, og hlát-
ur hans var smitandi og gleym-
ist seint. Blessuð sé minning
Vilhjálms Þórhallssonar.
Snorri Sigfús Birgisson.
Vilhjálmur
Þórhallsson
✝ Rafn Þor-valdsson fædd-
ist 15. september
árið 1957 á Akra-
nesi. Hann lést 19.
nóvember 2020 á
líknardeild Land-
spítalans.
Foreldrar Rafns
eru Þorvaldur
Loftsson (11. júní
1933, Vík) og
Svanfríður Valdi-
marsdóttir (21. mars 1934,
Akranesi) og eru þau búsett á
Akranesi. Rafn var í hópi átta
systkina en tvíburabróðir hans
lést skömmu eftir fæðingu.
Eftirlifandi systkini Rafns eru
þau Valdimar Þorvaldsson
(1954), Erla Lind Þorvalds-
dóttir (1956), Hildur Þorvalds-
dóttir (1959), Þorvaldur Svan-
ur Þorvaldsson (1960), Fjóla
Þorvaldsdóttir (1961) og Atli
eiga þau börnin Mikael Rafn
Jónsson (2010), Helgu Birnu
Jónsdóttir (2011) og Elmu
Kristínu Jónsdóttur (2015).
Dag Hákon Rafnsson (27.
ágúst 1985) en sambýliskona
hans er Eygló Valdimarsdóttir
og saman eiga þau Kolbein Yl
Dagsson (2020). Friðrikku Ár-
nýju Rafnsdóttur (29. júní
1987) en sambýlismaður henn-
ar er Matthías Matthíasson og
saman eiga þau börnin Myrru
Hólm Matthíasdóttur (2013),
Aron Erni Gunnarsson (2015)
og óskírða Matthíasdóttur
(2020). Heiðrúnu Örnu Rafns-
dóttur (3. nóvember 1993).
Í apríl 2004 kvæntist hann
Ásdísi Ásgeirsdóttir (14. sept-
ember 1963), leiðir þeirra
skildi árið 2012. Bjuggu þau
saman ásamt börnunum Ernu
Sólrúnu Haraldsdóttur (2. júlí
1992) og Andra Viðari Har-
aldssyni (2. júlí 1992).
Eftirlifandi sambýliskona
Rafns er Björk Gunnarsdóttir
(30. sept 1952). Börn Bjarkar
eru Dagrún Matthíasdóttir
(18. september 1971), Guðný
Matthíasdóttir (24. mars 1973),
Steinunn Matthíasdóttir (2.
febrúar 1976) og Gunnar Júl
Matthíasson (7. desember
1977).
Rafn ólst upp á Akranesi, í
Vík við Steingrímsfjörð og
Hveravík. Miðbiki ævinnar
varði hann á Vestfjörðum, að-
allega á Þingeyri við Dýra-
fjörð. Hann varði árunum
1997 til andláts á höfuðborg-
arsvæðinu og einhverjum
hluta erlendis á Gran Canaria.
Hugur Rafns beygðist
snemma að sjómennsku sem
varð hans ævistarf eða fram
að árinu 2002.
Útför hans fer fram í Graf-
arvogskirkju 1. desember 2020
kl. 13 að viðstöddum nánustu
aðstandendum og verður
streymt á slóðinnihttps://
www.promynd.is/rafn
Virkan hlekk á slóð má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Þorvaldsson
(1963).
Um tíma bjó
hann með Elínu
Kristínu Helga-
dóttir og áttu þau
saman soninn Þor-
vald Sveinsson
(29. júlí 1979),
maki hans er Alr-
ún Ýr Stein-
arsdóttir. Börn
þeirra eru Elías
Ingi Þorvaldsson (2005), Helgi
Snær Þorvaldsson (2007), Arn-
ar Freyr Þorvaldsson (2009)
og Lilja Rakel Þorvaldsdóttir
(2013).
Hann kvæntist Kristínu
Auði Elíasdóttur 4. ágúst árið
1984 en leiðir þeirra skildu
1996. Saman áttu þau börnin
Hrafnhildi Ýri Rafnsdóttur
(19. júní 1984) sem gift er Jóni
Ólafi Gunnarssyni og saman
Rabbi kom inn í líf okkar
systkina þegar við vorum að
vinna úr sorg eftir föðurmissi.
Nú hefur hann kvatt okkur allt-
of fljótt og í hjörtum okkar rík-
ir aftur sorg. Þau eru ófá skipt-
in sem við systkinin höfum
mismælt okkur og sagt pabbi
og mamma í stað Rabbi og
mamma, enda er okkur hið
fyrra tamt í þessu samhengi og
svo rímar þetta svo skemmti-
lega saman. En þótt það komi
vissulega enginn fullorðnu
börnunum hennar Bjarkar í
föðurstað fyllti Rabbi upp í
stórt skarð og varð einn af fjöl-
skyldunni. Þannig varðveitum
við minningu um góðan mann.
Rabbi fékk stóran titil innan
fjölskyldunnar þegar fyrsta
langömmubarnið fæddist
mömmu. Honum þótti vænt um
að fá titilinn langafi og eiga það
hlutverk í lífi barns, jafnframt
því að mynda fjölskyldutengsl
við barnabörn og börn sam-
býliskonu sinnar. Í hjörtum
okkar ríkir mikið þakklæti fyrir
þann velvilja og hlýhug sem
Rabbi bar til okkar allra. Rabbi
og mamma tóku eitt barna-
barnið í fóstur í vetur svo hægt
væri að stunda nám á höfuð-
borgarsvæðinu og það fór vel
um ungan framhaldsskólanema
á heimili ömmu og Rabba.
Ævintýrið á Kanarí var þeim
Rabba og mömmu gott en þar
leigðu þau sér íbúð og nutu
vetrardvalar í sólarlandinu þar
sem hlýtt loftslag hafði einnig
jákvæð áhrif á líkamlega líðan
þeirra beggja. Ætlunin var að
halda Kanaríeyjaævintýrinu
áfram í vetur eftir sumardvöl á
Íslandi en til að byrja með var
það ástand Covid-heimsfarald-
urs sem frestaði þeirri ferð.
Eftir á að hyggja erum við
þakklát fyrir að Rabbi og
mamma voru heima á Íslandi
þegar áfallið kom og alvarleg
veikindi Rabba tóku völdin.
Veikindin voru stutt og tók
fljótt af. Rabbi, þessi dásamlegi
hvatvísi dugnaðarforkur, sýndi
einstaklega mikið æðruleysi og
tók því sem komið var. Hans
ósk var að verja sínum sein-
ustu dögum með konu sinni og
kveðja þetta líf í hennar örm-
um, sem Guð gaf. Og þakklátur
var hann fyrir heimsóknir
barna sinna og kveðju frá dótt-
ur sinni í Danmörku sem einn-
ig var væntanleg til landsins
þegar kveðjustundina bar að.
Við sendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur til
mömmu, barna og barnabarna
Rabba, tengdabarna, foreldra,
systkina og vina.
Guð blessi minningu Rafns
Þorvaldssonar.
Bjarkarbörnin,
Dagrún Matthíasdóttir,
Guðný Matthíasdóttir,
Steinunn Matthíasdóttir og
Gunnar Júl Matthíasson.
Rabbi minn! Nú ert þú kom-
inn heim, stendur í blóma-
brekkunni og bíður eftir gömlu
kerlingunni tengdamóður
þinni, þú þurftir að yfirgefa
mína fjölskyldu allt of fljótt.
Það fannst mér leiðinlegt, ég
gat ekki aðhafst neitt í því
sambandi, nema það eitt sem
ég sagði þér alltaf, þú hættir
aldrei að vera tengdasonur
minn. Þegar þú kvaddir mig
fyrir nokkrum árum sagðist þú
vilja biðja mig bónar, ég sagði
ég skal verða við henni ef ég
get. Bónin er sú að ef þú ferð á
undan mér, viltu þá taka á móti
mér þegar ég kem, auðvitað
jánkaði ég því skilyrði að ef þú
færir á undan kerlingunni tæk-
ir þú á móti mér. Við hand-
söluðum þetta og þú varst sæll
og ánægður þegar þú lokaðir
dyrunum. Ekki höfum við haft
mikil samskipti á síðustu árum,
ég hef þó alltaf haft fréttir af
fyrrverandi tengdasyni, þú
varst og ert alltaf besti tengda-
sonur minn að hinum ólöstuð-
um. Þú vildir allt fyrir mig gera
eftir að tengdapabbi þinn dó,
þegar þú varst í landi. Þið, þú
og synir mínir, voruð svo mörg
ár á togaranum Framnesi ÍS
708. Voruð þið góðir vinir alla
tíð og ég er viss um að þeir
bera þér góða sögu alla þá tíð,
samanber það þegar þegar þið
voruð nærri búnir að missa
Hrólf, minn yngsta son, í sjó-
inn, hann fór út með trollinu og
þegar þið voruð að ná honum
inn þá varðst þú til þess að ná í
höndina á honum og hann
ánægður að sjá þig og sagði við
þig „hvað segir kall?“ Nú vona
ég að þú sért laus við allar
þjáningar, það er nú meira en
von, það er vissa og að þér líði
vel í blómabrekku framhalds-
lífsins. Rabbi minn, bestu þakk-
ir fyrir allt og allt. Ég mun allt-
af hugsa hlýlega til þín Rabbi
minn.
Far þú í friði
að framandi strönd.
Og finnur ferskan í liði
framrétta hönd.
(ksv)
Kristjana Sigríður
Vagnsdóttir.
Rafn Þorvaldsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA PETREA ÞÓRARINSDÓTTIR,
Hábergi 30, Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
23. nóvember. Útför fer fram 1. desember
klukkan 15. að viðstöddum nánustu aðstandendum.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Íslands. Aðstandendur vilja þakka starfsfólks Hrafnistu og öðru
heilbrigðisstarfsfólki fyrir góða umönnun.
Bjarney Ólsen Richardsd. Gunnar Vagn Aðalsteinsson
Petrea Ólsen Richardsdóttir Þorsteinn Benediktsson
Ágústa Ólsen Richardsdóttir Hjörtur Jónasson
Arnar Ólsen Richardsson
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginkona mín, stjúpmóðir, dóttir
og systir,
LILJA DÓRA KOLBEINSDÓTTIR,
Hverfisgötu 72,
lést 26. nóvember. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 4. desember.
Vegna aðstæðna verða einungis nánasta fjölskylda og vinir
viðstödd. Athöfnin verður í streymi á www.mbl.is/andlat.
Þeim sem viljast minnast Lilju Dóru er bent á UN Women
Íslandi. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki
kvenlækningadeildar og líknardeildar Landspítalans fyrir hlýja
og góða umönnun.
Nelson Vaz da Silva
Arndís Amina Vaz da Silva Sjöfn Gunnarsdóttir
Gunnar Kolbeinsson
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA STEINUNN GÍSLADÓTTIR
frá Skáleyjum,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Seljakirkju fimmtudaginn 3. desember
klukkan 13 að viðstöddum nánustu ættingjum. Athöfninni
verður streymt frá vef Seljakirkju, seljakirkja.is.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
Flateyjarkirkju, reikningur 0309 - 26 - 012652, kt. 550169-5179.
Leifur Kr. Jóhannesson
Jóhanna Rún Leifsdóttir Kristján Á. Bjartmars
Sigurborg Leifsdóttir Hörður Karlsson
Heiðrún Leifsdóttir Lárentsínus Ágústsson
Eysteinn Leifsson Guðleif B. Leifsdóttir
Jófríður Leifsdóttir Ingimundur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn