Morgunblaðið - 01.12.2020, Side 11

Morgunblaðið - 01.12.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Hair Volume vítamínhlaup fyrir – hár, húð og neglur Fullkomið meðí jólapakkann Bragðgóð vítamínhlaup sem: •næra hárið innan frá •geta minnkað hárlos •hafa góð áhrif á neglur og húð •styrkir og viðheldur heilbrigðu hári Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Áhrif samfélagsmiðla á líf og líðan ungs fólks eru tvíbent. Hin jákvæðu eru möguleikar sem bjóðast til þess að fylgjast með atburðum og um- ræðum um mál líðandi stundar, vera í sam- skiptum við fólk og fá upplýsingar, ráðleggingar, af- þreyingu og inn- blástur. Neikvæð- ar hliðar eru aftur á móti hættan á að eðlileg mannleg samskipti bjagist, að notendur falli fyrir freistingum og kostaboðum eða láti um of stjórnast af tískustraumum og glansmyndum. Mikið er um slíkt í netheimum, þar sem margir telja sig dvelja of lengi. Þetta er meðal helstu niðurstaðna í meistaraverkefni sem Sveinbjörg Smáradóttir varði við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri nú á dögunum. Efnið oft óáreiðanlegt Í MA-verkefni Sveinbjargar tóku 25 manns á Norðurlandi, 20-30 ára, þátt í rýnihópum og svöruðu spurn- ingum. Upplegg í starfinu voru svo- nefndir Þróunarvísar norðurslóða, vísindatæki sem notaðir eru til að fylgjast með lífsgæðum fólks sem byggir nyrstu slóðir veraldar. Vís- arnir eru efnahagsleg velferð, mennt- un, heilsa, menning, tengsl við nátt- úru og stjórn á eigin örlögum. Niðurstöður þessa verkefnis verða nú teknar inn í vísindastarf Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri, en þar er Sveinbjörg sérfræðingur í norðurslóðamálum. „Viðmælendur mínir í rannsókn- inni sögðu að þeim þætti miður hve efni á samfélagsmiðlum sé oft óáreið- anlegt. Einnig að umræður og rök- ræður um samfélagsleg og pólitísk málefni vilji vera erfiðar, ósann- gjarnar og ómálefnalegar. Því er gagnrýnin hugsun mikilvæg við alla notkun á þessum miðlum,“ nefnir Sveinbjörg. Mikil notkun ungs fólks á samfélagsmiðlum og nánast sítenging sumra við þá kalli á vitundarvakningu og fræðslu um hóflega notkun. „Ég tel mikilvægt að draga úr skjátíma svo við eyðum ekki meiri tíma og orku í að fylgjast með öðrum, heldur njótum okkar eigin tilveru. Fyrir mína parta vildi ég helst sjá samfélagssáttmála um að ung börn fengju ekki snjallsíma eða að nota samfélagsmiðla fyrr en þau hafa náð tilteknum aldri, vegna mikillar ábyrgðar sem þau eru kannski ekki fær um að standa undir. Við sendum börnin okkar ekki ein út í umferðina á reiðhjóli fyrr en þau hafa náð þroska til. Ég vil svipaða nálgun á snjallsíma og samfélagsmiðla.“ Facebook hefur misst vægi Sveinbjörg segir marga viðmæl- endur hafa nefnt hve háðir þeir séu samfélagsmiðlum og notkun þeirra. Að þeir ótengdir séu að missa af ein- hverju og finnist mikilvægt þegar kveikt er á símum að athuga strax þegar heyrist hljóð, til dæmis frá Facebook. „Mér finnst eins og við séum líka orðin háð því að hafa eitthvað fyrir augunum og meðtaka upplýsingar, hversu vel sem þær svo sitja í minni. Við kunnum ekki lengur að sitja bara og gera ekki neitt og horfa út í loftið,“ segir Sveinbjörg og bætir við að notk- un, vægi og hlutverk einstaka fé- lagsmiðla breytist hratt um þessar mundir. Facebook hafi augljóslega misst vægi sitt sem flotti miðillinn og sé orðinn vettvangur fyrir hagnýtar upplýsingar, meðal annars í afmörk- uðum hópum. Instagram sé fremur notað fyrir afþreyingu, skemmtun og til að byggja upp ímynd út á við. Í dag sé miðillinn TikTok svo í mikilli sókn, stækki hraðar en aðrir miðlar og muni breyta myndinni. „Samfélagsmiðlar veita þeim sem eru veikir félagslega auðvelda leið til að draga sig inn í skel og forðast samskipti við aðra. Miðlarnir geta aukið á tilfinningalegan og félags- legan vanda þeirra sem glíma við slíkt, án þess að vera bein orsök. Á hinn bóginn geta samfélagmiðlar líka hjálpað fólki að finna jafningja sína og stuðning og þannig eflt félagsleg samskipti.“ Freistingar og samskipti bjargast  Innblástur og afþreying á samfélagsmiðlum  Tvíbent áhrif, skv. meistaraverkefni  Umræður eru oft ekki málefnalegar  Ung börn fái ekki snjallsíma  Miðlarnir geta aukið félagslegan vanda fólks Sveinbjörg Smáradóttir AFP Facebook Stafræn veröld á marga kima sem nú eru rannsóknarefni. Í dag, fullveldisdaginn 1. desember, kl. 18.00, verður sendur út frá Valhöll fundur á vegum Félags sjálfstæð- ismanna um fullveldismál, þar sem aðalræðumaður verður Arnar Þór Jónsson héraðsdómari sem fjallar um fullveldið. Formaður félagsins, Styrmir Gunnarsson, segir nokk- ur orð í upphafi fundarins. Í fréttatilkynningu kemur fram að hægt verði að fylgj- ast með fundinum á Fullveldisfelagid.is eða á fésbókar- síðu Félags sjálfstæðismanna um fullveldismál. Fjarfundur um fullveldismál Arnar Þór Jónsson Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Bjarna Bene- diktssonar, fjár- mála- og efna- hagsráðherra. Hersir er stúdent frá Verzl- unarskóla Ís- lands og hefur lokið BA- og meistaraprófi í lög- fræði frá Háskóla Íslands, auk prófs í verðbréfaskiptum. Að undanförnu hefur Hersir starfað sem lögfræðingur og reglu- vörður Ölmu íbúðafélags hf., en áð- ur starfaði hann hjá LOGOS lög- mannsþjónustu, sem fréttamaður og þáttastjórnandi í Íslandi í dag á Stöð 2 og sem blaðamaður hjá Ár- vakri. Hersir Aron ráðinn aðstoðarmaður Hersir Aron Ólafsson STUTT Fiskvinnslan Guðmundur Runólfs- son hf. gaf Fjölskylduhjálp sex bretti af lausfrystri ýsu í gær. Það eru um þrjú tonn af fiski sem fara í matargjafir. Guðmundur Smári framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að vel hafi gengið hjá þeim og sælla sé að gefa en þiggja. Formað- ur Fjölskyldurhjálpar segir gjöfina ómetanlega og aldrei hægt að gefa slíkar matargjafir án aðkomu mat- vælafyrirtækja. Morgunblaðið/Ómar Matargjafir Koma sér vel þessa dagana. Gáfu Fjölskylduhjálp þrjú tonn af ýsu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.