Morgunblaðið - 01.12.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2020
Í dag kveð ég
elskulegu ömmu
mína og nöfnu,
Dóru Maríu. Amma
var sú hlýjasta og
yndislegasta manneskja sem til
er. Það er óhætt að halda því
fram að hver sem varð á vegi
hennar myndi fljótt samþykkja
að amma hreint og beint geislaði
af góðmennsku. Hún umvafði
alla með ástúð og hlýju og því
ekki að undra að mínar æsku-
vinkonur kölluðu hana ömmu
Dóru.
Ég ólst upp hjá afa og ömmu í
Álfheimunum. Ég var eins og
skugginn hennar ömmu þegar
ég var lítil og margir héldu að
ég væri yngsta barnið hennar.
Við amma vorum alla tíð mjög
nánar þótt seinna meir kæmi
fjarlægðin á milli heimsálfa í veg
fyrir að við hittumst daglega.
Við bættum úr því með að eyða
mörgum gæðastundum saman á
sumrin þegar ég kom í heim-
sókn með elstu langömmustrák-
ana. Einnig kom ég oft ein í sér-
staka ömmuheimsókn í kringum
afmælið hennar í október. Það
var oft glatt á hjalla, mikið
spjallað, spilað á spil fram á nótt
og endalaust hlegið. Amma elsk-
aði að spila á spil. Hún kenndi
öllum börnunum og barnabörn-
unum að spila og það var ynd-
islegt að sjá hana kenna strák-
unum mínum líka. Þeir voru oft
undrandi yfir hve amma langa
tapaði oft.
Amma var alltaf mjög glæsi-
leg og vel til höfð, og fór aldrei
út úr húsi án þess að setja á sig
rauðan varalit og eyrnalokka.
Hún var bæði fróð og skemmti-
leg, mikill krossgátu- og Su-
doku-meistari, listakokkur og
ekki má gleyma allri fallegu
handavinnunni hennar. Hún var
líka með svo skemmtilegan og
smitandi hlátur. Hún var algjör
brandarakerling og stríddi mér
oft hvernig stæði á því að ég,
nafna hennar, skuli enn ekki
kunna að meta staup af koníaki.
Amma var með mikið á sinni
könnu. Fyrir utan langan vinnu-
dag við að reka matvöruverslun
og sjoppu í Álfheimunum með
afa, þá sá hún jafnframt um að
halda fallegt heimili og ala upp
stóran barnahóp. Hún var alltaf
fyrst á fætur og síðust í háttinn,
en aldrei varð maður var við að
amma hefði ekki tíma fyrir
mann. Amma hló dátt þegar ég
spurði hana eftir að ég átti mín
eigin börn hvernig hún hefði
eiginlega farið að þessu. Hún
var hreint út sagt ofurkona og
það yrði vandfundið að finna
ósérhlífnari manneskju en hana
ömmu mína. Hún var með
hjarta úr gulli.
Elsku besta amma mín,
Þetta eru ótrúlegir tímar.
Aldrei hefði ég trúað því að ör-
lögin myndu haga því þannig að
ég kæmist ekki til Íslands til að
fylgja þér síðasta spölinn. Einn-
ig mikil vonbrigði að hafa ekki
getað eytt síðasta sumrinu þínu
með þér. Við eigum svo margar
góðar minningar en sú sem ég
mun ávallt geyma efst í huga er
að þétt faðmlag og knús frá þér
var allra meina bót. Þótt ég
kveðji þig nú með sorg í hjarta,
þá hugga ég mig við það, að afi
er búinn að bíða lengi og hefur
tekið á móti þér með faðminn
opinn.
Hvíl í friði, elsku amma og
amma langa. Við elskum þig öll.
Dóra María, Eric,
Magnús og Thor.
Dóra María
Ingólfsdóttir
✝ Dóra MaríaIngólfsdóttir
fæddist 20. október
1926. Hún lést 13.
nóvember 2020.
Útförin fór fram
30. nóvember 2020.
„Neineineineinei-
nei … ertu kom-
inn?“ heyrist með
umhyggjusamri
röddu sem endar á
hátíðni þegar ég
hugsa til baka.
Kominn til
ömmu … kominn í
Álfheima 4 … kom-
inn heim. Hausinn
þinn hallar lítillega
til hliðar, hendur
koma hljóðlega saman í spenntar
greipar og breitt, hlýlegt bros er
á andliti þegar þú tekur á móti
manni með mjúkum faðmi.
Allt mátti og allar kræsingar
voru í boði. Ristað brauð með
osti dýft í heitt kakó, gamalt
Oreo-kex og mjólk, veiðimaður
sem maður tapaði aldrei í og svo
virtist sem nammiskápurinn
hefði verið einhvers konar
ótæmandi auðlind af góðgæti.
Töfrum líkast! Í mörg ár stóð ég
í þeirri trú að svona væru allar
ömmur, en uppgötvaði síðar
hversu einstök mannvera þú
varst í raun og veru. Alla leið inn
í kjarna varstu yndisleg og virk-
aðir sem viðmið, jafnvel öfga-
kona fyrir hvað góðmennska og
einlægni lítur út í verki. Þú
kaust að sjá aðeins það besta í
fólki, sem margir hræðast nú á
tíðum, því tortryggni og efa-
semdir eru ákveðinn varnar-
skjöldur sem fólk setur upp
gegn vonbrigðum og sársauka. Í
raun er þessi trú á náunga sín-
um gríðarlegur eiginleiki sem
krefst ótrúlegs hugrekkis og
dirfsku.
Utan frá séð segðu flestir
hversu heppin þú varst að eiga
mikið af góðu fólki í kringum þig
sem veitti þér sífellda umhyggju,
félagsskap og eftirlit. Ég tel
þetta síður en svo vera heppni.
Þú veittir þessum kjarnahópi í
kringum þig uppeldi, leiðsögn og
ótakmarkaða ást sem skilaði sér
margfalt aftur til þín. Því var
engin lukka í þínum spilum held-
ur uppskarstu það sem þú sáðir.
Dauðinn er óumflýjanlegur en
styrk til að takast á við sorgina
finn ég í boðskapnum sem þú
skilur eftir þig. Að gefa sífellt af
sér, sýna góðmennsku og þakk-
læti, hafa ósigrandi jákvæðni og
hugarfar um að allt muni bless-
ast að lokum. Þessum boðskap
finn ég mig skyldugan til að lifa
eftir og kenna áfram.
Takk fyrir mig amma. Ég
elska þig.
Sigurður (Siggi).
Elsku besta amma Dóra
kvaddi þennan heim hinn 13.
nóvember síðastliðinn.
Amma var mjög ástrík, kær-
leiksrík og hlý og alltaf tók hún á
móti okkur systkinunum með op-
inn faðm, tilbúin að spila, púsla
eða lita með okkur. Þessi ein-
staka hlýja sem umlukti ömmu
var engu lík og okkur leið of-
boðslega vel hjá henni. Amma
var líka mikill húmoristi og oft
veltumst við um af hlátri saman.
Við áttum margar góðar
stundir með afa og ömmu bæði á
Spáni og í Álfheimunum þar sem
þau pössuðu okkur. Þegar við
áttum að fara heim settum við
upp leik og þóttumst vera sof-
andi svo við gætum gist hjá
ömmu og afa og það tókst oft hjá
okkur.
Amma var sú sem maður gat
alltaf treyst og sýndi mikinn
áhuga á því sem við vorum að
gera hverju sinni. Þegar við
Siggi vorum í dansinum var hún
okkar stuðningsmaður númer
eitt, mætti á keppnir bæði innan-
lands og utan. Amma var hann-
yrðakona mikil og nýttist það vel
þegar þurfti að laga og sauma
danskjóla.
Eftir að afi dó og amma flutti í
Miðleitið áttum við margar dýr-
mætar stundir þar tvær saman
þar sem spjallað var um heima
og geima. Amma var alltaf
áhugasöm um það sem við
barnabörnin vorum að gera og
fylgdist vel með því.
Ég er afskaplega þakklát fyr-
ir að börnin mín Karitas og
Markús Alexander hafi fengið að
kynnast ömmu (löngu) Dóru.
Eftir að hún flutti á Seltjörn
komum við oft eftir leikskóla í
heimsókn. Alltaf ljómaði amma
þegar hún sá okkur, og ljómaði
hún enn meira þegar hún sá
glitta í litla spékoppa. „Hvað er
hægt að biðja um meira,“ sagði
hún alltaf.
Ég kveð ömmu mína með
sorg, en á sama tíma er ég svo
glöð og þakklát fyrir allar góðu
minningarnar sem við eigum um
hana.
Takk amma fyrir að hafa ver-
ið svona góð við okkur, við sökn-
um þín.
Þín
Sandra.
„Taktu hár úr hala mínum og
leggðu það á jörðina. Legg ég á
og mæli ég um, að þú verðir að
svo stóru fjalli, að enginn komist
yfir nema fuglinn fljúgandi.“
Amma svæfði mig oftar en ég
get talið með sögunni af Búkollu,
þegar ég gisti hjá ömmu og afa í
Álfheimunum. Þær eru ófáar
minningarnar sem ég á um sam-
verustundirnar þar.
Í gömlu brúnu kojunni, amma
sá til þess að búa svo um að ekki
myndi drengurinn rúlla fram úr
um nóttina. Um morguninn fékk
ég yfirleitt heitt kókó og ristað
brauð til að dýfa í. Þær eru ótelj-
andi spilastundirnar, hvort sem
það var olsen-olsen eða veiði-
maður þá stóð ég yfirleitt á ein-
hvern óskiljanlegan hátt eftir
sem sigurvegari og þá sagði ég
alltaf „amma er svooo aum“. Við
rifjuðum þetta oft upp síðar meir
og höfðum gaman af. Í seinni tíð
eftir að amma þurfti á meiri að-
stoð að halda þá sagðir hún við
mig:
„Æ, Alex minn, nú er amma
orðin aum.“
Minningarnar eru óteljandi,
öll ferðalögin sem við fórum í um
Evrópu og sérstaklega allar
samverustundirnar á Spáni.
Þær eru mér svo minnisstæð-
ar og dýrmætar sögurnar sem
amma sagði mér um gömlu tím-
ana, þegar hún var ung og
hvernig lífið var í þá daga.
Ég er svo þakklátur fyrir að
hafa átt þig sem ömmu.
Takk, elsku amma, fyrir alla
góðu tímana. „Eigum við ekki að
splitta einum?“
Þinn
Alex.
Elsku amma kvaddi okkur á
fallegum heiðskírum degi þann
13. nóvember.
Það er svo margt sem við höf-
um upplifað saman í gegnum tíð-
ina: púslað á Spáni, spilað í eld-
húskróknum í Álfheimunum,
ferðalög um Evrópu og svo
margt, margt annað.
Amma hefur alltaf verið stór
hluti af mínu lífi. Ég var aðeins
nokkurra vikna gömul þegar ég
fór í pössun til ömmu fyrst.
Þessar samverustundir áttu eftir
að verða margar og góðar, alltaf
var opið ömmu- og afahús ef ég
vildi gista hjá þeim sem var
nokkuð oft.
Við eigum sérstaklega margar
minningar frá húsinu á Spáni
þar sem við eyddum mörgum
góðum stundum. Nýkreistur
ferskur appelsínusafi vekur upp
góðar minningar, en amma var
alltaf með tilbúið kreist handa
mér á hverjum morgni.
Ég var svo heppin að fá að
fara ein í frí með afa og ömmu
þegar ég var 5 ára. Stjórnin var
að spila á Benidorm og lagið
„Við eigum Samleið“ var uppá-
haldslagið mitt á þeim tíma –
laglínan „á milli okkar er streng-
ur, sterkari en stál“ á svo vel við
samband okkar ömmu og við
lögðum sérstaka áherslu á þessa
línu þegar við sungum lagið sam-
an aftur og aftur.
Ég var svo stolt þegar hún
kom í útskriftina mína í Sviss og
ég fann að hún var það líka.
Ég vildi óska þess að hún
hefði haft heilsu til að koma í
brúðkaupið mitt í Cornwall,
vegna þess að hún var alltaf
hluti af stóru stundunum í mínu
lífi.
Í seinni tíð þegar elsku amma
var hætt að geta ferðast rædd-
um við oft um minningar sem við
áttum saman.
Hennar uppáhaldssaga var
þegar amma, mamma, Sandra
og ég þriggja ára þurftum að
millilenda á Heathrow-flugvelli á
leiðinni heim til Íslands – það
var að sjálfsögðu mikill farangur
sem fylgdi okkur og það var víst
ekki mikill tími á milli flugvéla,
smá stress. Ég hélt á minni eigin
tösku og fylgdist með þeim
burðast með allt annað sem okk-
ur fylgdi, en mér hefur greini-
lega ekki fundist þær vera með
nógu margar töskur eða kannski
bara að ég vissi hversu mikil of-
urkona hún amma var. Þá sagði
ég við ömmu: „Þú mátt alveg
halda á minni tösku líka.“ Það
varð víst smá spennufall hjá
mæðgunum og ekki annað hægt
en skellihlæja á þessu augna-
bliki. Við höfum svo oft rifjað
upp og hlegið að þessari sögu, ég
heyri hláturinn hennar núna.
Elsku amma mín, mér þykir
svo vænt um síðasta símtalið
okkar, en það var örfáum dögum
áður en þú kvaddir þennan heim.
Þú söngst fyrir mig og kvaddir
mig með: „Ég hef elskað þig frá
okkar fyrstu kynnum.“ Það er
svo sannarlega gagnkvæmt því
ég hef og mun elska þig alla tíð.
Á milli okkar er strengur
sterkari en stál.
Á meðan þú við hlið mér gengur
ríkir gleði í minni sál.
(Jóhann G. Jóhannsson)
Elsku amma, ég veit að þú
munt alltaf ganga við hlið mér
og vernda mig.
Þín
Díana.
Tárin streyma niður kinnarn-
ar þegar ég sit hér og reyni að
finna orð til þess að kveðja þig.
Það er bara svo óraunverulegt
að geta ekki lengur kysst mjúku
kinnarnar þínar, haldið í höndina
á þér, spjallað um heima og
geima, heyrt smitandi hlátra-
sköllin þín eða sungið með þér.
Þú umvafðir mann kærleika
og hlýju og einhvern veginn
léstu mér alltaf líða eins og ég
væri einstök. Þegar ég kom í
heimsókn til þín fannstu alltaf
strax á þér ef eitthvað var að
angra mig og þú varst ekki lengi
að kippa því í liðinn. Áður en ég
vissi af voru allar áhyggjur
heimsins á brott og ekkert var til
fyrirstöðu lengur. Þegar ég kom
út frá þér fannst mér ég vera
ósigrandi ofurkona – eins og þú.
„Nú setjumst við,“ sagðir þú
alltaf þegar maður var með
fréttir sem þú varst spennt að
ræða. Þegar við hittumst aftur
verða heldur betur endurfundir
og þá setjumst við, elsku amma.
Setjum í okkur carmenrúllur,
skellum á okkur rauðum varalit
og setjum lit í brúnirnar. Ég
myndi spyrja þig hvernig ég
náði að plata þig til þess að leyfa
mér að fara í alltof stórum há-
hæluðum leðurstígvélunum nið-
ur í bæ á 17. júní þegar ég var 10
ára. Síðan ræðum við allt sem
hefur drifið á okkar daga á með-
an þú spennir greipar og snýrð
þumalputtunum hring eftir
hring hvorum utan um annan,
rifjum upp Spánarferðirnar okk-
ar, fáum okkur kannski nýk-
reistan appelsínusafa eða heitt
kókó og ristað brauð með osti og
miklu smjöri, leggjum kapal og
spilum gömlu jónku, fléttu og
Svarta Pétur langt, langt fram á
nótt.
Ég er svo þakklát fyrir það að
eitt af því síðasta sem ég náði að
segja þér var að ég væri ófrísk
og þú ættir þar af leiðandi von á
níunda langömmubarninu þínu.
Ég hlakka til að kenna því allt
sem þú hefur kennt mér í gegn-
um ævina eins og til dæmis að
borða nóg, klæða mig vel, halda
alltaf í höndina á mömmu á leið-
inni yfir bílagötu og að beiskur
brjóstsykur sé allra meina bót.
Ég legg lokahönd á þessi orð
með ljóðinu, sem ég samdi fyrir
þig, „Góða ferð amma“.
Með trega og söknuði ég þig kveð,
þar til ég fæ að vera með þér.
Minningar okkar ég ávallt geymi.
Ég veit þú vakir yfir mér,
fallegasti engill í heimi.
Þú ert fyrirmyndin mín og
verður alltaf.
Elska þig,
þín
Snædís.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist
endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elsku hjartans amma, engla-
drottningin okkar. Þá er komið
að kveðjustund. Minningar og
tár streyma en fyrst og fremst
minnumst við þín með óendan-
legu þakklæti og kærleika.
Þakklæti fyrir allan þann góða
og dýrmæta tíma sem við áttum
saman, allt sem þú gerðir fyrir
okkur og kenndir okkur, barna-
börnunum og langömmubörnun-
um. Í huga okkar varstu hold-
tekja góðmennskunnar, einstök
fyrirmynd, alltaf ljúf, góð og fal-
leg með hlýjan, mjúkan faðminn
og svignandi hlaðborð af góð-
gæti. Nærvera þín var einstök,
alls staðar þar sem þú varst
nærri varð allt betra, fallegra,
jákvæðara, öruggara og gleði-
legra. Þú komst alltaf auga á
lausnir, sást alltaf það góða og
fallega í öllu og öllum.
Minningarnar eru óteljandi
um þig elsku hjartans amma, að
spila „Bertu“ í sumarbústaðnum,
ráða krossgátur í sólbaði á
Spáni, reiðandi fram konungleg-
ar krásir í Álfheimunum á hátíð-
isdögum í fínu stofunni og dýr-
indishversdagskaffi í
eldhúskróknum, alls staðar var
dásamleg gleði og gaman þar
sem þú varst nærri og allir svo
mikið meira en velkomnir inn á
þitt heimili. Þú varst mikill tón-
listarunnandi og fannst alltaf
gaman að hafa góða músík og
fjör í kringum þig og söngst þá
gjarnan með og dillaðir þér með
bros á vör eins og unglingsstelpa
þrátt fyrir að vera orðin mikið
veik undir það síðasta. Elsku
amma, þú hefur kennt okkur svo
ótrúlega margt sem er okkur
dýrmætt veganesti út í lífið,
þrautseigju, að gefast ekki upp
þótt á móti blási, jákvæðni og
bjartsýni, að halda alltaf í vonina
þó að allar dyr virðist lokaðar,
góðvild og náungakærleika, að
sjá alltaf það góða og fallega í
öllu og öllum og láta gott af sér
leiða.
Elsku hjartans amma, megi
Guðs englar taka á móti þér með
þeim glæsileik og útgeislun líkt
og þú tókst ávallt á móti þínum
gestum. Blessuð sé minning þín
einstaka perla.
Sesselja, Lilja, Edda,
Konráð og Unnar Leo.
Mín fyrstu kynni af Dóru voru
fyrir 13 árum, er hún flutti inn í
næstu íbúð við okkur hjónin.
Það var mitt lán, því með okk-
ur tókst fljótt einlæg vinátta sem
aldrei bar skugga á.
Hún var einstaklega hlý kona,
alúðleg og móðurleg, en jafn-
framt bráðskemmtileg, spaug-
söm og mikill húmoristi. Við átt-
um margar góðar stundir saman
yfir kaffisopa og jafnvel víntári.
Dóra var ættfróð og minnug
með afbrigðum og gat rifjað upp
kímnislegar sögur af löngu liðn-
um atburðum.
Dóra glímdi við mikla van-
heilsu undanfarið ár, en ekki
heyrðist hún kvarta.
Hún naut fáheyrðrar og aðdá-
unarverðrar umhyggjusemi
barna sinna alla tíð, svo ekki sé
minnst á sólarhringsvöktun
þeirra síðustu vikurnar.
Það er með mikilli eftirsjá
sem við hjónin kveðjum Dóru
Maríu Ingólfsdóttur.
Við samhryggjumst börnum
hennar og þeirra fjölskyldum.
Blessuð sé hennar minning.
Edda Gísladóttir.
Dóra var mennt-
aður kennari og
tölvunarfræðingur
og starfaði lengst
af sem tölvunarfræðingur á
Landspítalanum. Við skólasyst-
ur úr tölvunarfræðinni höfum
haldið hópinn og hist reglulega í
Halldóra
Magnúsdóttir
✝ HalldóraMagnúsdóttir
fæddist 9. ágúst
1954. Hún lést 1.
nóvember 2020.
Útför Halldóru
fór fram 19.
nóvember 2020.
hátt í 40 ár. Höfum
ferðast saman og
brallað ýmislegt.
Því höfum við
fylgst með skini og
skúrum í lífi Dóru
gegnum árin og
dáðst að því hvern-
ig hún komst í
gegnum skaflana
og stóð við bakið á
drengjunum sínum
þremur.
Það var almennt ekkert hik á
Dóru, það var alveg skýrt hvað
henni fannst um hlutina og hver
hennar áhugamál voru. Framan
af var það fyrst og síðast bridge
sem hún hafði áhuga á en svo
góðu heilli bættist golfáhuginn
við. Hún tók golfið með trompi
og fór flesta sumardaga beint úr
vinnu út á völl. Fjórar úr hópn-
um stofnuðu golfklúbb sem spil-
aði saman nokkrum sinnum á
sumri, alltaf á nýjum og nýjum
völlum. Þetta voru alltaf
skemmtilegar ferðir sem enduðu
með að við borðuðum saman og
höfðum gaman.
Dóra var góður félagi og vin-
ur hvort sem var í leik, námi,
vinnu eða golfinu. Hennar er
sárt saknað af okkur sauma-
klúbbskonum og sendum við
fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðbjörg, Guðrún Ösp,
Kristín, Hulda, Valdís,
Elín Margrét, Þórunn, Elín,
Hafdís, Björk og Guðfinna.