Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
arionbanki.is * M.v. hámark 1 milljón kr. pr. viðskipti og 50 milljóna kr. hámarksveltu á dag.
Nýttu tímann vel
Við höfum ákveðið að framlengja þóknanalaus hlutabréfaviðskipti í netbanka
Arion banka út árið 2020. Þökkum góðar viðtökur fjárfesta í nóvember.
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra segir fagnaðarefni að
Evrópusambandið og Bretar skuli
hafa náð saman um gerð fríversl-
unar- og samstarfssamnings. Samn-
ingurinn var und-
irritaður á
aðfangadag og
tekur gildi um
áramót er Bretar
ganga úr Evr-
ópska efnahags-
svæðinu.
Í samningnum
er meðal annars
kveðið á um að
vöruviðskipti
milli Bretlands og Evrópusam-
bandsins verði að langmestu leyti
tollfrjáls og án innflutningskvóta.
Guðlaugur bendir á að þótt vöru-
viðskiptasamningurinn tengist Ís-
landi ekki með beinum hætti, þá
geri hann það óbeint. „Allar við-
skiptahindranir milli okkar helstu
viðskiptalanda geta þvælst fyrir
okkur, enda viðskiptin margbreyti-
leg og flókin,“ segir hann.
Viðskiptasamningur í vinnslu
Í september var undirritaður
bráðabirgðasamningur milli Bret-
lands annars vegar og Íslands og
Noregs hins vegar sem tryggir frí-
verslun þar til nýr fríverslunar-
samningur hefur verið undirritaður.
„Við erum því ekki að brenna inni á
neinu,“ segir Guðlaugur. Hann segir
að góður gangur hafi verið í við-
ræðum ríkjanna en Bretar hafi ekki
verið tilbúnir í að klára viðræður um
framtíðarfyrirkomulag fyrr en nið-
urstaða lá fyrir í samningaviðræð-
unum við Evrópusambandið.
Því til viðbótar þurfa Íslendingar
að semja við Breta um framtíðar-
samstarf á ýmsum sviðum sem áður
féllu undir EES-samninginn. Ljóst
er að Íslendingar munu missa ýmis
réttindi, sem áður þóttu sjálfsögð,
um áramót. Ekki verður lengur
hægt að setjast að í Bretlandi og
stunda nám eða vinnu án sérstaks
leyfis, evrópska sjúkratrygginga-
kortið mun ekki gagnast á ferðalög-
um í Bretlandi og starfsréttindi,
sem fengin eru í ríkjum ESB og
EES munu ekki sjálfkrafa verða
tekin gild í Bretlandi. Engin þessara
réttinda eru tryggð í samkomulagi
ESB og Bretlands, þótt ekki sé úti-
lokað að um þau verði samið sér-
staklega milli Íslands og Bretlands.
Höfum reynslu að miðla
Þó felast einnig tækifæri í út-
göngunni, segir Guðlaugur og nefnir
sem dæmi samstarf á sviði sjávar-
útvegs. „Bretar eru nú búnir að fá
stjórn á sínum fiskimiðum aftur. Nú
þurfa þeir að byggja upp sinn eigin
sjávarútveg og nútímavæða hann og
efla,“ segir hann. „Þeir munu örugg-
lega ekki reyna að finna upp hjólið
og þá er spurning hvort íslenskir að-
ilar nýti sér það, því við höfum svo
sannarlega sögu að segja þar. Það
er ekkert sem stjórnmálamenn
munu klára. Við getum bara opnað
dyrnar,“ segir Guðlaugur og vísar til
samkomulags sem stjórnvöld und-
irrituðu við Breta í nóvember um
samstarf í sjávarútvegsmálum.
Samningurinn
fagnaðarefni
Tækifæri fyrir sjávarútveg, segir ráðherra
AFP
Brexit Eftir ófáa samningafundina
hafa aðilar loks náð saman.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Sigurður Bogi Sævarsson
Alexander Kristjánsson
Í dag koma til landsins um 10.000
skammtar af bóluefni frá Pfizer, sem
þá duga fyrir 5.000 manns miðað við
að hver og einn þarf að fara í sprautu
aftur eftir um tvær vikur. Óskar
Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, segir að um
bólusetninguna gildi sú almenna
regla að fyrst verði bólusett það
starfsfólk Landspítalans og Sjúkra-
hússins á Akureyri sem einkum og
helst hefur sinnt COVID-sjúkling-
um, alls um 700 manns. Einnig fram-
línufólk á heilsugæslustöðvunum á
höfuðborgarsvæðinu, sem eru alls 19
talsins. Er þá miðað við að í fyrstu
bólusetningu fari 15-20 skammtar á
hverja þeira. Eftir það er komin röð-
in að íbúum og starfsfólki hjúkrunar-
og dvalarheimila. – Þau hin sömu eru
forgangshópur í bólusetningum út á
landi, sem og starfsfólk sjúkrahúsa
og heilsugæslustöðva þar, hringinn í
kringum landið.
„Við byrjum bólusetningar á
þriðjudaginn og ætlum að taka hluta
þeirra fyrstu við Suðurlandsbraut,
þar sem skimanir hafa meðal annars
farið fram. Að taka fyrri sprautuna á
íbúa á hjúkrunarheimilunum, sem
taldir hafa verið einn allra viðkvæm-
asti hópurinn, tekur okkur ekki nema
einn til tvo daga. Ferlið hefur verið
skipulagt mjög vel og ítarlega svo
þetta ætti að ganga greitt, líka þegar
fleiri skammtar af bóluefni komast til
landsins,“ segir Óskar.
Þeir fyrstu sem verða bólusettir
hafa þegar fengið boð í bólusetningu
á morgun. Heimilisfólk verður bólu-
sett á hjúkrunarheimilum en fram-
línustarfsmenn fá smáskilaboð þar
sem þeir eru boðaðir í bólusetningu.
Ljúka bólusetningu fljótlega
Á vegum Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands eru starfræktar heilsu-
gæslustöðvar og öldrunarstofnanir
frá Blönduósi í vestri allt til Þórs-
hafnar. Líkt og syðra kemst starfs-
fólk í framlínu og íbúar á dvalarheim-
ilum aldraðra fyrst allra í sprautu,
alls um 500 manns. Sjúkrahúsið á Ak-
ureyri er utan þessa hóps.
Í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi sagðist Jón Helgi Björnsson
forstjóri HSN eiga von á bóluefninu
norður síðdegis í dag, ellegar í fyrra-
málið. Þá strax yrði hafist handa við
aðgerðir, sem yrði lokið á einum til
tveimur dögum.
„Þegar búið er að bólusetja starfs-
fólk í framlínu og fólk í viðkvæmasta
hópnum, það er íbúa á hjúkrunar-
heimilum, er strax búið að taka ágæt-
an hluta út úr kerfinu. Svo er bara að
vona að við fáum meira af bóluefni á
allra næstu dögum, svo þetta gangi
greitt fyrir sig“, segir forstjórinn.
Distica sér um dreifingu
Stjórnvöld hafa samið við dreifing-
arfyrirtækið Distcia um dreifingu
bóluefnisins, en fyrirtækið sérhæfir
sig í dreifingu lyfja og lækninga-
tækja. Júlía Rós Atladóttir, fram-
kvæmdastjóri Distica, segir verkefn-
ið ótvírætt það stærsta sem fyrir-
tækið hefur séð um.
Efnið kemur frá Amsterdam með
flugi og er því haldið í 80 gráða frosti
með þurrís. Áður en bóluefninu er
keyrt út þarf að fara yfir flutnings-
ferlið og hitastigið í flutningnum en
sérstakir hitasíritar fylgjast með
hitastigi efnisins meðan á flutningn-
um stendur. Það er í höndum Pfizer
að gefa lokamat á að flutningurinn til
Íslands hafi verið í lagi, og að svo
búnu er hægt að keyra það út.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Suðurlandsbraut Húsið að Suðurlandsbraut 34, sem einu sinni nefndist Orkuhúsið, verður nýtt undir bólusetningar.
Bólusetning hefst
við veiru á morgun
10.000 skammtar til landsins Búið að boða fyrstu í skimun
Níu ný innanlandssmit kórónuveir-
unnar greindust á annan í jólum
samkvæmt bráðabirgðatölum. Átta
af þeim sem reyndust smitaðir voru í
sóttkví við greiningu. Þá greindust
sjö smit á landamærum.
Þetta staðfesti Jóhann K. Jó-
hannsson, samskiptastjóri almanna-
varnadeildar, við mbl.is.
Sýnataka fór fram með hefð-
bundnu sniði í fyrradag, en sýna-
tökustaðir voru lokaðir á að-
fangadag og jóladag. Tvö smit
greindust á jóladag, en sú tala getur
meðal annars náð til sýna sem
greind voru eftir að tölur þar á und-
an voru birtar. Þá greindust þrír á
aðfangadegi jóla.
Níu innanlandssmit,
þar af átta í sóttkví