Morgunblaðið - 28.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Gleðilegt nýtt ár
Bjarni Benedikts-son sýndi
ámælisverða óvar-
kárni í Ásmundar-
sal, að minnsta kosti
eftir að fjölgaði í
salnum. Á því baðst
hann afsökunar,
sem sumir taka gott
og gilt, aðrir ekki.
Þetta var ekki
ósvipað hegðun Ni-
cola Sturgeon, for-
sætisráðherra Skot-
lands, sem sama dag
braut sóttvarna-
reglur, eða þegar
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra faðmaði Seyðfirð-
inga. Það hefur ýmsum orðið hált á
sóttvarnasvellinu og er ekki til eft-
irbreytni.
Vinnubrögð lögreglunnar, semtók það upp hjá sér að gera
fréttamál úr atvikinu með afar
óvenjulegum hætti eru einnig
ámælisverð. Háðsglósa um „hátt-
virtan ráðherra“, annarlegar dylgj-
ur um ölvun og kossaflangs, rangar
staðhæfingar um aðstæður, og
furðuleg undanbrögð þegar fjöl-
miðlar grennsluðust nánar fyrir,
hafa skaðað trúverðugleika henn-
ar. Ekki síður þegar haft er í huga
að tvennir fjölmennir tónleikar
voru í miðbænum sama kvöld, án
þess að það kæmi fram í „Dagbók
lögreglunnar“.
Afstaða stjórnarandstöðunnnarkom ekki mikið á óvart. Það er
ekki mjög fréttnæmt að hún vilji
stjórnina feiga. Hvað þá tilboð Pí-
ratans siðprúða, Þórhildar Sunnu
Ævarsdóttur, um að hún styddi
minnihlutastjórn Framsóknar og
vinstri grænna ef Bjarni og íhaldið
hypjuðu sig. Hún var fyrst þing-
manna til að vera fundin sek um
brot á siðareglum Alþingis, en
sagði þó hvorki af sér þingmennsku
né formennsku í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd.
Bjarni
Benediktsson
Hált á
sóttvarnasvellinu
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Frekari efnistöku í Þórustaðanámu í
Ingólfsfjalli, vestan við Selfoss, eru
ýmis skilyrði sett skv. nýju áliti
Skipulagsstofnunar. Áform eru um af
hálfu forsvarsmanna Fossvéla ehf. að
taka allt að 27,5 milljónir rúmmetra af
möl og grjóti af 42,5 ha. svæði á há-
sléttu fjallsins, en efninu er þaðan ýtt
fram af fjallsbrún, niður hlíðar og í
gryfju þar sem því er mokað á bíla.
Í áliti Skipulagsstofnunar árið 2006
sagði að sú stækkun námusvæðisins
sem þá var í bígerð breytti ásýnd Ing-
ólsfjalls varanlega og mótvægisað-
gerðir dygðu ekki. Þetta eigi sterkar
við nú. Því sé mikilvægt verði af
auknu malarnámi að laga efnistöku-
svæðið jafnóðum að þeim náttúrulegu
línum sem þarna séu í landinu. Einnig
þurfi að gæta að vinnslusvæði við
fjallsrætur og jafna út manir og
hauga. Þessar aðgerðir bæti þó skað-
ann óverulega. Skýr ákvæði þurfi í
deiliskipulagi um frágang vinnslu-
svæða.
Námurnar í Ingólfsfjalli hafa verið
nýttar frá 1957. Nú telur Skipulags-
stofnun mikilvægt að dregið verði úr
efnistöku í þurriviðri þegar vindur
stendur að byggð til að draga úr ryk-
mengun. Einnig þurfi við útgáfu
starfs- og framkvæmdaleyfis að hafa í
huga við að vatnsból séu nærri.
sbs@mbl.is
Frekara malarnámi sett skilyrði
Efnisnám áfram Ásýnd Ingólfs-
fjalls breytist Skaðinn er óbættur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ingólfsfjall Þórustaðanáma er
áberandi í landinu og verður áfram.
Til stendur að flugeldasölur björg-
unarsveitanna á höfuðborgarsvæð-
inu verði opnaðar nú kl. 9 sem þær
svo verða til kl. 23:30 í kvöld og
dagana fram að
áramótum. Sölu-
staðirnir í
Reykjavík og
nærliggjandi
bæjum eru í
flestum hverfum,
en á landsvísu
verður hægt að
kaupa flugelda af
björgunarsveit-
unum á um 90
stöðum. „Þetta
er heilmikil vertíð og flestir sem
sveitunum tengjast gefa sig fram
og taka þátt í þessu skemmtilega
verkefni,“ segir Róbert H. Hnífs-
dal, verkefnisstjóri hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
Til stóð að fækka leyfilegum
söludögum flugelda nú milli jóla og
nýárs, það er að salan hæfist ekki
fyrr en 29. desember. Frá því var
horfið vegna Covid-ástandsins í
samfélaginu svo ekki myndaðist
mannmergð á sölustöðum með
smithættu.
„Úrvalið af skottertum og fjöl-
skyldupökkum er mikið en rakettur
með gamla laginu eru á undanhaldi,
meðal annars vegna slysahættu,
segir Róbert og bætir við að góð
veðurspá fyrir gamlárskvöld viti á
góða flugeldasölu næstu daga.
Flugeldasala KR í Frostaskjóli í
Reykjavík hefst á morgun og stend-
ur fram eftir gamlársdegi. „Veð-
urspáin lofar góðu og eftir þetta
óvenjulega ár er sterkur uppsafn-
aður skotvilji meðal landsmanna,“
segir Jónas Kristinsson fram-
kvæmdastjóri KR. sbs@mbl.is
Sterkur skotvilji
er uppsafnaður
Flugeldasalan
er nú að hefjast
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugeldar Gamla árið verður
sprengt í loft upp með tilþrifum.
Róbert H.
Hnífsdal