Morgunblaðið - 28.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.12.2020, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Matur er mannsins megin og bókin Saga matarins. Frá steinöld til okkar tíma eftir Ólaf Halldórsson er fróðleg lesning um mat og matarhefðir. Ólaf- ur rekur söguna í gegnum nokkrar orku- og tæknibyltingar, byggir á staðreyndum og fyllir í götin með ágiskunum. Í inngangi getur hann þess að hugmyndir um matseld á steinöld séu tilgátur byggðar á rann- sóknum fornleifafræðinga og upp- skriftir frá fornöld og miðöldum séu úr rituðum heimildum. Bókin sé ekki hugsuð sem fræðirit heldur til ánægju og upplýsinga fyrir almenn- ing. Saga alheimsins, Frá miklahvelli til mannheima, eftir Ólaf og Lúðvík E. Gústafsson jarðfræðing kom út fyrir um þremur árum. Þar er mikið fjallað um orkuhugakið og Ólafur segir að í kjölfarið hafi hann mikið velt fyrir sér ástandinu þegar mannkynið hafi fyrst náð verulegum tökum á orkunni með tólum og tækjum, eldinum og svo framvegis. „Það var byrjunin á þessari bók og eftir því sem ég kafaði dýpra í heimildir þeim mun forvitnari varð ég.“ Ólafur segir að ýmislegt hafi komið á óvart og í því sambandi nefnir hann meðal annars Bót og bita I-II, vand- aðar bækur, sem komu út 2015 á fær- eysku um færeyskan mat eftir Joan Pauli Joensen. „Það er fróðlegt að bera saman færeyskar og íslenskar matarhefðir,“ segir hann. Breyting með kokkunum Við lestur bókarinnar má ætla að Ólafur sé mikill matgæðingur og áhugamaður um mat, en hann segist ekki hafa getað flokkað sig sem slíkan þótt hann sé ýmsu fróðari eftir skrif- in. „Ég kom auðvitað inn í þetta bak- dyramegin, í gegnum þessar orku- pælingar, en upplýsingarnar hafa leitt mig áfram, ég hef prófað ýmsar uppskriftir, sem ég þekkti ekki áður, og áhuginn á mat og matargerð hefur aukist til muna.“ Ólafur segir að ákveðin verkaskipt- ing sé í eldhúsinu heima og hún hafi lítið breyst. „Ég elda mikið hvers- dagslegan mat en konan sér um við- hafnarmatinn.“ Bætir við að hann geri stundum tilraunir með pottrétti en haldi sig annars að mestu við soðn- inguna og annað einfalt. „Vinnan hef- ur samt víkkað sjóndeildarhringinn.“ Í bókinni, sem Óðinsauga gefur út, eru um 90 uppskriftir og um 40 vísur og kvæði, sem tengjast mat og drykk. Ólafur segist ekki síst hafa heillast af uppskriftum í um 2.000 ára gamalli rómverskri matreiðslubók, De re co- quinaria, eftir Marcus Gavius Api- cius. „Þar eru ýmsar forvitnilegar uppskriftir, meðal annars hvernig matreiða á isicia omentata eða róm- verskan hamborgara og gufusoðnar kótilettur í hvítvíni.“ Lífsgæði jukust til muna þegar maðurinn hóf að nota eld við mat- argerðina. Ólafur bendir á að þegar byrjað hafi verið að elda eða steikja mat hafi í raun bæst framan við melt- ingarfasann. „Matur sem við borðum, soðinn eða steiktan, er hálfmeltur,“ segir hann. „Segja má að kokkarnir hafi breytt okkur í siðmenntað fólk.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fræðimaður Ólafur Halldórsson er reynslunni ríkari, hefur prófað ýmsa nýja rétti og lætur vel af. Á vængjum bragðlauka  Saga matarins frá steinöld merkileg og fróðleg lesning MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 363. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson hefur leikið vel með Blackpool í ensku C-deildinni í fótbolta á leiktíð- inni en hann kom til félagsins frá Álasundi í Noregi. Mikið er um stóra og stæðilega framherja í deildinni og fær miðvörðurinn að glíma við erfiða andstæðinga, sem eru óhræddir við að beita hinum ýmsu brögðum á knattspyrnuvellinum. Daníel missti hluta úr tönn eftir onbogaskot í leik á dögunum, en hann segist reglulega fá slík högg. Dómararnir í C-deildinni kippa sér lítið upp við slíkt. »26 Grindvíkingurinn fær að finna fyrir því í ensku C-deildinni í fótbolta ÍÞRÓTTIR MENNING Áður en jólahátíðin brast á var byrjað að streyna frá Salnum í Kópavogi fyrstu streymistónleikum af fjórum í tónleikaröð með heitið „Jazz í Salnum streymir fram“, undir listrænnni stjórn Sunnu Gunnlaugsdóttur. Í kvöld, mánudag, kl. 20 er komið að þriðju tónleikum raðarinnar: „Enginn standard spuni“. Fram koma munnhörpuleikarinn Þorleifur Gaukur Davíðsson og píanóleikarinn og tónskáldið fjölhæfa Davíð Þór Jóns- son. Uptöku af leik þeirra félaga verður streymt á Face- book-síðu Salarins og Jazz í Salnum. Davíð Þór og Þorleifur Gaukur spinna í streymi frá Salnum í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.