Morgunblaðið - 28.12.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Formlega var byrjað að bólusetja
með bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfi-
zer og BioNTech gegn kórónuveir-
unni í aðildarríkjum ESB í gær.
Lýstu leiðtogar sambandsins yfir
þeirri ósk sinni að bólusetningarher-
ferðin gæti orðið til þess að aflétta
þeirri „martröð“ sem heimsfarald-
urinn hefur valdið. Rúmar 1,7 millj-
ónir manns hafa nú látist af völdum
veirunnar um alla veröld, og rúm-
lega 80 milljón manns hafa smitast
af henni.
Ursula von der Leyen, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, fagnaði áfanganum í gær
og sagði upphaf herferðarinnar vera
„tilfinningaríka stund“ sem sýndi
fram á samheldni aðildarríkjanna.
Þá myndi herferðin gera íbúum álf-
unnar kleift að öðlast hægt og bít-
andi aftur eðlilegt líf.
Þjófstart í Þýskalandi
Sum ríkjanna höfðu raunar byrjað
á laugardeginum að veita fyrstu
bólusetningarnar, þó að formlegur
upphafsdagur herferðarinnar væri
ekki fyrr en í gær. Þannig fékk hin
101 árs gamla Edith Kwoizalla
fyrstu bólusetningarsprautuna í
Þýskalandi ásamt 40 sambýlismönn-
um sínum á elliheimili í Saxlandi-
Anhalt.
Þar í landi munu vistmenn á elli-
heimilum, fólk yfir áttrætt og fólk í
umönnunarstörfum fá fyrstu bólu-
efnisskammtana. Jens Spahn, heil-
brigðisráðherra Þýskalands, sagði
að upphaf bólusetningar markaði
„dag vonar“ fyrir Þjóðverja. „Bólu-
efnið er lykillinn í að sigrast á far-
aldrinum,“ sagði Spahn, en hann
varaði einnig við því að það myndi
taka langan tíma að ljúka bólusetn-
ingarherferðinni, en áætlað hefur
verið að um 60-70% almennings í
löndunum þurfi að bólusetja sig til
að ná upp svonefndu hjarðónæmi.
Á meðan stjórnvöld í Þýskalandi
og Frakklandi einbeita sér að eldra
fólki í fyrstu atrennu bólusetninga,
hafa Ítalir sett heilbrigðisstarfsfólk
fremst í röðina. „Það er með miklu
stolti og mikilli ábyrgðartilfinningu
sem ég lét bólusetja mig í dag. Þetta
er lítið skref sem hefur grundvall-
arþýðingu fyrir okkur öll,“ sagði
Claudia Alivernini, 29 ára hjúkrun-
arfræðingur frá Ítalíu, en hún var sú
fyrsta til að vera bólusett þar.
Milljón ný tilfelli á einni viku
Þó að bólusetningarherferðir séu
nú hafnar eða að hefjast í flestum
ríkjum heims er enn langt í land áð-
ur en hægt verður að lýsa yfir sigri í
baráttunni við kórónuveiruna.
Sem fyrr er ástandið einna verst í
Bandaríkjunum, en greint var frá
því um helgina að rúmlega 19 millj-
ónir manna hafi smitast þar frá upp-
hafi faraldursins. Höfðu þá bæst við
um milljón tilfelli á einni viku, en
fjöldi staðfestra tilfella vestanhafs
var um 18 milljónir á mánudaginn í
síðustu viku. Anthony Fauci, yfir-
maður sóttvarna í Bandaríkjunum,
varaði við því í gær að næstu vikur
gætu orðið þær verstu í faraldrinum
til þessa, og óttaðist hann að jólahá-
tíðin gæti orðið til þess að knýja upp
nýja bylgju faraldursins á fyrstu
vikum næsta árs.
Nú hafa rúmlega 332.000 manns
látist úr faraldrinum í Bandaríkjun-
um til þessa, en þar af eru um 63.000
dauðsföll í desembermánuði einum,
og er mánuðurinn nú orðinn sá
mannskæðasti í faraldrinum vestan-
hafs, á undan apríl, en þá létust
51.000 Bandaríkjamenn.
Nokkur önnur ríki hafa orðið vör
við skarpa aukningu tilfella á síðustu
dögum. Stjórnvöld í Ísrael brugðu á
það ráð í gær að boða tveggja vikna
útgöngubann, en þetta er í þriðja
sinn frá upphafi faraldursins sem
Ísraelsmenn þurfa að sæta slíku.
Bóluefnið dugi gegn afbrigðinu
Þá hafa fregnir af nýju afbrigði
veirunnar sem kom upp í Bretlandi
valdið áhyggjum af því að mögulega
kynnu þau bóluefni sem þróuð hafa
verið gegn henni ekki að virka á hið
nýja afbrigði.
Forsvarsmenn AstraZeneca
greindu frá því í gær að þeir teldu
ekki ástæðu til að ætla annað en að
bóluefni fyrirtækisins myndi einnig
virka gegn nýja afbrigðinu. Þá gera
þeir ráð fyrir því að bóluefni sitt
muni fá samþykki á næstu dögum,
en prófanir þess benda nú til þess að
það sýni svipaða virkni og bóluefni
Pfizers/BioNTech og bóluefni Mod-
erna.
AFP
Bólusetning Hin 101 árs gamla Edith Kwoizalla var sú fyrsta til að fá sprautuna í Þýskalandi á laugardaginn.
„Dagur vonar“ í Evrópu
ESB-ríkin hófu bólusetningarherferð sína í gær Vona að bólusetningin muni
„aflétta martröðinni“ Desember mannskæðasti mánuðurinn í Bandaríkjunum
Feykilegt tjón varð í miðborg Nash-
ville í Tennessee í Bandaríkjunum á
jóladagsmorgun þegar húsbíll hlað-
inn sprengiefni var sprengdur í loft
upp.
Talið er að um sjálfsmorðstilræði
hafi verið að ræða, en líkamsleifar
fundust í rústum bílsins. Honum
hafði verið lagt í götu, en svo tók að
gjalla upptaka frá bílnum þar sem
fólki var sagt að koma sér af svæð-
inu. Ekki löngu síðar sprakk
sprengjan.
Lögregluna grunar að þar hafi
verið að verki 63 ára gamall maður,
Anthony Quinn Warner, frá nálæg-
um bæ, en ekkert er vitað um mark-
mið hans með sprengjunni. Fleiri er
ekki leitað að svo stöddu.
TENNESSEE
Slökkvilið Nashville/AFP
Nashville Eyðileggingin var mikil.
Gríðarlegt tjón af
sprengju í Nashville
Hundruð sýr-
lenskra flótta-
manna í Líbanon
flúðu í gær
flóttamannabúð-
ir í Trípólí eftir
að tjaldbúðir
þeirra voru
brenndar til
grunna. Áður
höfðu brotist út
átök milli flótta-
manna og líbanskra ungmenna, en
þar særðust a.m.k. þrír flóttamenn.
Aukinnar ólgu hefur gætt milli
heimamanna og sýrlenskra flótta-
manna í Líbanon, sem bæði er rakið
til útlendingaandúðar og efnahags-
örðugleika. Meira en milljón Sýr-
lendinga hefur leitað hælis þar frá
2011, en grunnt var á því góða fyrir
vegna langvinns hernáms Sýrlend-
inga þar, sem lauk 2005.
LÍBANON
Flóttamannabúðir
brenndar til grunna
Trípólí Kona rótar
í rústum búða.
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is