Morgunblaðið - 28.12.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Björgunarsveitir sinna mik-
ilvægri neyðarþjónustu og því
þarf vel hlúa að fólkinu sem stend-
ur vaktina. Það þarf að vera tilbú-
ið að ganga inn krefjandi að-
stæður sem geta tekið á og valdið
áfallastreitu eða jafnvel áfalla-
streituröskun. Gæta þarf að for-
vörnum, styðja við og fylgjast vel
með líðan fólks. Sálræni þátturinn
vegur þungt,“ segir Elva Tryggva-
dóttir björgunarsveitarkona.
Elva hefur lengi hefur verið
virk í starfi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar (SL); liðsmaður í út-
kallssveit Hjálparsveitar skáta í
Garðabæ, aðgerðastjórnandi og
leiðbeinandi við björgunarskól-
ann. Aðalstarfið Elvu er verkefn-
isstjórn neyðarviðbúnaðar hjá
Isavia og því tengt er nýlegt loka-
verkefni hennar í mannauðs-
stjórnun við Háskóla Íslands. Sál-
rænn stuðningur meðal
viðbragðsaðila á Íslandi, er yf-
irskrift verkefnisins þar sem staða
SL er sérstaklega greind og tæki-
færi til úrbóta kynnt. Um þess efni
hefur Elva fjallað víða, m.a. á nám-
skeiðum og nú síðast á fundi full-
trúaráðs Slysavarnafélagsins
Landsbjargar og hjá stjórn félags-
ins. Á þeim vettvangi voru allir
sammála um að gera sálrænan
stuðning við björgunarsveitafólk
að forgangsmáli.
Eðlilegt að gefa eftir
„Fólk sem sinnir neyðarhjálp,
hvort sem það er í björgunarsveit-
unum, lögreglu, slökkviliði eða
annars staðar eru hetjur í flestra
vitund. Yfirbragð hetja er að geta
allt og að ekkert bíti á þær. En
auðvitað eru hetjur mannlegar. Að
gefa eftir eru eðlileg viðbrögð við
óeðlilegum aðstæðum. Einu sinni
var menningin sú að björg-
unarfólk mætti ekki sýna við-
brögð. Slíkt væru veikleikamerki.
Nálgunin er alls önnur í dag,“ seg-
ir Elva.
Fyrst var farið að gefa gaum
að andlegri líðan björgunar-
sveitafólks og annarra sem bjargir
veita upp úr árinu 1990. Þetta kom
svo enn sterkar inn í kjölfar snjó-
flóðanna á Vestfjörðum árið 1995.
Fjöldi björgunarsveitafólks fór þá
í verkefni sem reyndu mjög á líf og
líðan. Í kjölfarið farið að taka sál-
rænum stuðning við þessa hópa
föstum tökum.
Svo stuðningur sé markviss
þarf hann að fela í sér fræðslu. Til
þarf að vera viðbragðsáætlun með
skýrum verkferlum, félagastuðn-
ingur og aðgangur að fagaðstoð.
Einnig er gott að veita fræðslu til
aðstandenda björgunarfólksins.
Ferlar og félagastuðningur
„Áfallastreita og einkenni
frekari röskunar eru þekkt, auk
brotthvarfs úr starfi. Að fyr-
irbyggja slíkt er mikilvægt, björg-
unarsveitirnar þurfa að halda í vel
þjálfað fólk, “ segir Elva. „Alllangt
er síðan farið var að efla og inn-
leiða sálræna hjálp; til dæmis með
félagastuðningi og sjálf er ég í
þeim hópi sem sinni slíku. Í ein-
staka sveitum hafa verið settir upp
skriflegir ferlar um hvernig
standa skuli að málum, þó þau séu
oftar en ekki tekin óformlega.
Skrifstofa félagsins hefur einnig
haft milligöngu um viðrunarfundi
eða aðstoð eftir sérstaklega erfið
verkefni,“ segir Elva.
Fræðsluefni um þessi mál,
sem björgunarsveitirnar hafa
starfað samkvæmt, segir Elva lítið
hafa breyst í gegnum árin. Þar sé
hægt að gera betur. Þekkingin
hvernig best megi vinna úr áföll-
um verði æ meiri. Viðurkenning sé
mikilvægi sálræns stuðnings, sem
nú sé nú hluti af þeim áætlunum
sem til dæmis lögregla, Landhelg-
isgæslan, Neyðarlínan, Slökkvilið
millibili talsverða framþróun. Hún
segir að smæð íslensks samfélags
og samvinnu um að deila þekkingu
þarna tvímælalaust hjálpa til-
„Þung viðbrögð við áföllum eru
sálræn en eiga sér líka skýringar í
lífeðlisfræði. Flestir vinna sig
sjálfir út úr erfiðri reynslu á mán-
uði eða svo, stundum með sálræn-
um stuðningi. Ef ekki, er fagn-
aðarefni að nú sé þekking og geta
til grípa fljótt inn í málin sjáist að
þörf sé á slíku. Sömuleiðis er fólk
opnara en áður fyrir að leita sér
hjálpar og mannlegi þátturinn er á
yfirborðinu.“
Aðstandendur oft í angist
Elva Tryggvadóttir byrjaði í
björgunarsveit 16 ára gömul árið
1993 og hefur á þeim tíma farið í
hundruð útkalla og eftirminnileg
verkefni. „Ég var svekkt að vera
ekki send í snjóflóðin fyrir vestan
á sínum tíma, en skil þá ákvörðun í
dag. Þangað hefði unglingur ekki
átt neitt erindi. Í dag sinni ég að-
gerðastjórn í allskonar verkefnum
og þar kemur sálræni þátturinn
sterkt inn, að huga að líðan björg-
unarfólks og virkja stuðning innan
sveitanna ef svo ber undir. Eins
eru aðgerðastjórnendur oft í leit-
ar- og björgunaraðgerðum með
aðstanendum sem oft eru í angist,
líður illa og þurfa stuðning,“ segir
Elva.
höfuðborgarsvæðisins og Rauði
krossinn starfa eftir.
Í verkefni sínu ræddi Elva við
fulltrúa þessara stofnana, fyrst ár-
ið 2016 og svo aftur í sumar.
Greindi hún á þessu fjögurra ára
Andleg líðan björgunarsveitarfólks sem sinnir erfiðum verkefnum er í brennidepli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sálrænt Björgunarfólk er opnara en áður fyrir að leita sér hjálpar og
mannlegi þátturinn er á yfirborðinu, segir Elva Tryggvadóttir.
Hetjur eru
mannlegar
Elva Tryggvadóttir fæddist
1977 og ólst upp á höfuðborg-
arsvæðinu. Er B.Sc. í við-
skiptafræði með áherslu á
stjórnun og MS í mannauðs-
stjórnun frá Háskóla Íslands.
Elva hefur starfað í mannauðs-
málum til fjölda ára en starfar
nú hjá Isavia. Samhliða hefur
hún sinnt björgunarsveitar-
störfum frá unglingsaldri. Er
formaður svæðisstjórnar á
svæði 1 og situr í landsstjórn
björgunarsveita. Stundar nú
diplómunám í sálgæslu með
vinnu við HÍ.
Elva er gift Einari Ágústs-
syni vélfræðingi og eiga þau
þrjár dætur, 11-21 árs.
Hver er hún?
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Hjálparliðar stóðu í ströngu eystra eftir skriðuföll. Að-
gerðir tóku á, en þeim sinnti meðal annars fólk úr hundabjörgunarsveit.
Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
Lagt er til að starfshópur sem heil-
brigðisráðherra skipi hafi í byrjun
næsta sumars komið með tillögur
um bætta aðstöðu fyrir geðsvið
Landspítala. Komið verði með til-
lögur um hús sem mæti kröfum nú-
tímans um mannúðlega geðheil-
brigðisþjónustu. Þetta segir í þings-
ályktunartillögu þingmanna Sam-
fylkingar, sem Helga Vala Helga-
dóttir flytur.
Í dag er starfsemi geðsviðs Land-
spítalans við Hringbraut og á
Kleppi. Þau hús séu byggð skv. öðr-
um viðmiðum en nú gilda um mann-
úðlega meðferð sjúklinga. Í tillög-
unni er bent á að í Danmörku hafi
verið byggð sjúkrahús sem taki mið
af áhrifum umhverfis og húsakosts
á geð. Slíkt þurfi á Íslandi og að
starfsemi geðsviðs Landspítala
verði flutt í umhverfi útiveru.
Vilja tillögur um ný geðdeildarhús
Morgunblaðið/Kristinn
Landspítali Geðdeildarhúsið við Hring-
braut er sagt vera barn síns tíma.