Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020 England Sheffield United – Everton .................... 0:1  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton og skoraði sigurmarkið á 80. mínútu. Arsenal – Chelsea.................................... 3:1  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal í leiknum. Leeds – Burnley....................................... 1:0  Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla. Leicester – Manchester United .............. 2:2 Aston Villa – Crystal Palace.................... 3:0 Fulham – Southampton ........................... 0:0 Manchester City – Newcastle ................. 2:0 West Ham – Brighton.............................. 2:2 Liverpool – WBA...................................... 1:1 Wolves – Tottenham ................................ 1:1 Staðan: Liverpool 15 9 5 1 37:20 32 Everton 15 9 2 4 26:19 29 Leicester 15 9 1 5 28:19 28 Manch. Utd 14 8 3 3 30:23 27 Tottenham 15 7 5 3 26:15 26 Manch. City 14 7 5 2 21:12 26 Aston Villa 13 8 1 4 27:13 25 Chelsea 15 7 4 4 30:17 25 Southampton 15 7 4 4 25:19 25 West Ham 15 6 4 5 23:21 22 Wolves 15 6 3 6 15:20 21 Leeds 15 6 2 7 25:30 20 Newcastle 14 5 3 6 17:24 18 Crystal Palace 15 5 3 7 19:28 18 Arsenal 15 5 2 8 15:19 17 Brighton 15 2 7 6 18:24 13 Burnley 14 3 4 7 8:20 13 Fulham 15 2 5 8 13:23 11 WBA 15 1 5 9 11:30 8 Sheffield Utd 15 0 2 13 8:26 2 B-deild: Barnsley – Huddersfield ......................... 2:1 Blackburn – Sheffield Wed ..................... 1:1 Bristol City – Wycombe........................... 2:1 Cardiff – Brentford .................................. 2:3 Coventry – Stoke...................................... 0:0 Derby – Preston ....................................... 0:1 Nottingham F. – Birmingham ................ 0:0 QPR – Swansea ........................................ 0:2 Reading – Luton....................................... 2:1 Watford – Norwich................................... 1:0 Staðan: Norwich 21 13 4 4 29:19 43 Swansea 21 11 6 4 25:12 39 Bournemouth 20 10 8 2 35:16 38 Brentford 21 10 8 3 34:20 38 Watford 21 10 7 4 24:15 37 Reading 21 11 3 7 32:27 36 Stoke 21 9 7 5 25:20 34 Middlesbrough 20 9 6 5 24:15 33 Bristol City 21 10 3 8 22:22 33 Barnsley 21 9 4 8 25:27 31 Blackburn 21 8 5 8 35:25 29 Cardiff 21 8 5 8 28:23 29 Preston 21 9 2 10 28:30 29 Huddersfield 21 8 4 9 25:29 28 Luton 21 7 6 8 18:23 27 Millwall 20 5 10 5 17:18 25 Birmingham 21 5 8 8 17:23 23 Coventry 21 5 8 8 20:28 23 QPR 21 4 8 9 19:29 20 Nottingham F. 21 4 6 11 14:25 18 Rotherham 19 4 4 11 18:27 16 Derby 20 3 7 10 10:23 16 Wycombe 21 2 6 13 13:31 12 Ítalía B-deild: Brescia – Empoli...................................... 1:3  Birkir Bjarnason lék fyrstu 77 mínút- urnar með Brescia en Hólmbert Aron Frið- jónsson var ekki í hóp vegna meiðsla. Venezia – Salernitana............................. 1:2  Bjarki Steinn Bjarkason lék allan leikinn með Venezia og Óttar Magnús Karlsson kom inn á sem varamaður á 52. mínútu. Staða efstu liða: Salernitana 31, Empoli 30, Cittadella 26, Monza 26, SPAL 26, Frosinone 25, Lecce 24, Venezia 23, Chievo 20, Pisa 19, Brescia 18. Holland Utrecht – AZ Alkmaar............................ 2:2  Albert Guðmundsson var allan tímann á varamannabekk AZ. Staðan: Ajax 34, PSV Eindhoven 33, Feyenoord 29, Vitesse 29, AZ Alkmaar 27, Groningen 26, Twente 24, Heerenveen 20, Sparta Rotter- dam 18, Utrecht 17, Zwolle 16, Heracles 15, Fortuna Sittard 13, Waalwijk 12, Willem II 9, Venlo 9, ADO Den Haag 7, Emmen 5. Belgía OH Leuven – Oostende ........................... 1:2  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende. Staða efstu liða: Club Brugge 39, Genk 35, Charleroi 33, Anderlecht 32, Antwerpen 31, Oud-Hever- lee 29, Beerschot 28, Kortrijk 26, Gent 25, Oostende 25, Standard Liege 25. Tyrkland B-deild: Akhisarspor – Giresünspor.................... 0:1  Theódór Elmar Bjarnason var ekki í leikmannahóp Akhisarspor. Katar Al Sailiya – Al-Arabi ............................... 0:1  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið.  ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Það hefur verið skrítið að búa sig undir leiki og svo koma þeir ekki en það er allt í lagi. Ég hef verið í fríi síðustu sex ár á þessum tíma árs, svo ég er vanur því,“ sagði knatt- spyrnumaðurinn Daníel Leó Grét- arsson í samtali við Morgunblaðið. Daníel leikur með Blackpool í ensku C-deildinni, en síðustu tveim- ur leikjum liðsins hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita. Hann kom til enska suðurstrandarfélagsins frá Álasundi í Noregi þar sem hann var í tæp sex ár, en hann er uppalinn Grindvíkingur. „Ég var kominn á endastöð hjá Álasundi. Ég var búinn að vera þar í fimm og hálft ár og hlutirnir voru ekkert að ganga upp á þessu ári. Ég þurfti á nýrri áskorun að halda,“ sagði Daníel, en Álasund féll úr norsku úrvalsdeildinni fyrr í mánuðinum. Auðveld ákvörðun Það var auðveld ákvörðun fyrir miðvörðinn að velja Blackpool um leið og hann heyrði af áhuga félags- ins. „Ég get sagt það. Blackpool setti sig snemma í samband við mig og sýndi mér mjög mikinn áhuga og mér leist vel á það. Ég skoðaði ekki margt annað. Það eru ekki margir sem hafa prufað að spila í neðri deildum á Englandi og mér fannst það spennandi og öðruvísi áskorun.“ Áratugurinn hefur verið vægast sagt skrautlegur hjá Blackpool. Árið 2010 var liðið í ensku úrvalsdeildinni en sex árum síðar var félagið næst- um því gjaldþrota og liðið fallið nið- ur í D-deildina. Blackpool vann sér aftur inn sæti í C-deildinni fyrir þremur árum síðan og stefnir að sæti í B-deildinni, en liðið er sem stendur í 12. sæti með 27 stig eftir 18 leiki og aðeins með eitt tap í síð- ustu níu leikjum. Daníel er töluvert hrifnari af heimavelli Blackpool, Bloomfield Road, heldur en æf- ingasvæðinu „Þetta er öðruvísi. Æfingaað- staðan er ekki alveg eins flott og ég bjóst við. Hjá Álasundi æfðum við á keppnisvellinum og á gervigrasi. Æfingasvæðið sem við erum á núna er tímabundið. Planið er að byggja nýtt æfingasvæði. Eigandinn sem átti félagið var ekki að eyða miklum peningum í það. Völlurinn er hins vegar mjög flottur og rúmar um 16.000 manns. Þetta lið var í efstu deild fyrir nokkrum árum. Leik- mennirninr hérna eru hæfileikaríkir og góðir og liðið er mjög gott.“ Metnaðarfullur eigandi Hinn skrautlegi Owen Oyston, sem sat í fangelsi frá 1996 til 1999 fyrir nauðgun, og fjölskylda hans áttu Blackpool frá 1988 til 2019 og voru vægast sagt ekki vinsæl hjá stuðningsmönnum félagsins enda oftar en einu sinni sökuð um að ræna af því peningum. Illa var staðið við samninga leikmanna og stuðn- ingsmenn hættu að mæta á völlinn. Varð mikil veisla þegar fjölskyldan seldi loks félagið á síðasta ári og Simon Sadler, sem er fæddur í Blackpool, tók við stjórnartaum- unum. „Eigandinn núna er frá Blackpool og hann hefur ástríðu fyr- ir félaginu og er tilbúinn að gera margt fyrir það. Hann er að setja pening í verkefnið og það komu 17 leikmenn fyrir tímabilið á meðan margir fóru. Þetta er nýtt lið sem er verið að setja saman. Stefnan er sett upp um deild og ég var til í að vera með í því verkefni,“ útskýrði Grind- víkingurinn. Aðeins einu sinni í tapliði Hann fékk lítið að spila í upphafi leiktíðar, þrátt fyrir slæmt gengi í deildinni framan af tímabili. Hann lék loks fyrsta leikinn sinn 31. októ- ber gegn Burton á útivelli og vannst sá leikur 2:1. Síðan þá hefur Daníel Leó leikið sex deildarleiki til við- bótar og aðeins einu sinni verið í tapliði. „Það var erfitt að koma inn í þetta þegar hinir leikmennirnir fengu undirbúningstímabilið þar sem þeir voru að standa í stórum lið- um. Þeir komust í 2:0 á móti Liver- pool og gerðu 3:3-jafntefli við Ever- ton. Það gekk hins vegar ekki vel í upphafi tímabilsins og þegar ég kom voru þeir rétt fyrir ofan fallsæti. Ég var ekki í liðinu fyrst en svo fékk einn hafsentinn rautt og fór í þriggja leikja bann. Þá fékk ég tækifærið og finnst ég hafa nýtt það. Ég hef bara einu sinni verið í tapliði, það var á móti Doncaster þar sem við kom- umst 2:0 yfir og töpuðum 2:3.“ Hann segir ensku C-deildina vera öðruvísi en tvær efstu deildir Nor- egs og þá fær hann oft að finna fyrir því hjá stórum og stæðilegum fram- herjum andstæðinganna. „Þetta er öðruvísi. Fólk heldur kannski að C- deildin á Englandi sé ekkert góð en það er mikið af góðum leikmönnum hérna. Þetta snýst mikið um lík- amlegan styrk. Í Noregi var mikið sent í svæði á framherjana en hér er boltinn settur upp í loftið og í skalla- einvígi. Þú þarft að vera tilbúinn að fá olnboga í andlitið og dómarinn er ekki að fara að flauta á það. Ég er búinn að fá nokkra olnboga í andlitið og hef fundið fyrir því,“ sagði Daní- el, sem missti hluta úr tönn í leik gegn Hull 15. desember. „Það var búið að vara mig fyrir leikinn að framherjinn væri svolítið í þessu. Ég fékk tvisvar olnbogann í kjaftinn og það brotnaði upp úr tönn. Liðsfélög- unum fannst rosalega fyndið að ég væri að kæla á mér kjammann eftir leik. Þetta hefur gerst oft en þetta var sérstaklega mikið þarna.“ Neil Critchley er knattspyrnu- stjóri Blackpool en hann stýrði U18 og U23 liðum Liverpool áður en hann tók við aðalliði Blackpool í mars á þessu ári. „Hann veit hvað hann er að gera. Þetta er í fyrsta skipti sem hann tekur við aðalliði og hann er að sanka að sér reynslu á því sviði, þar sem þetta er ekki alveg eins. Hann er samt sem áður mjög fær og lofar góðu. Hann hringdi í mig þegar ég var í viðræðum við félagið og sagði mér að hann væri búinn að fylgjast með mér og væri að leita að manni með mína styrkleika. Ég fann strax að hann hafði mikinn áhuga á mér og það hjálpaði til við að taka þessa ákvörðun.“ Kórónuveiran hefur verið skæð á Bretlandseyjum og Daníel Leó því lítið fengið að njóta sín á suður- ströndinni. „Fyrsta mánuðinn sem ég var hérna var ég á hótelherbergi en eftir það kom konan og litli strák- urinn minn og ég eyði miklum tíma heima bara. Það er allt í lagi en ég væri alveg til í að geta kíkt út á kaffi- hús og svona, en það er ekki mikið um það. Það eru alltaf einhverjir fé- lagar að fá þetta. Við þurfum að fara á okkar eigin bíl á æfingasvæðið og megum ekki fara í sturtu á æf- ingasvæðinu. Þetta er öðruvísi en ég er vanur og vonandi fer þetta að lagast,“ sagði Grindvíkingurinn. Fengið nokkra olnboga í andlitið og fundið fyrir því  Daníel Leó í hörkunni í ensku C-deildinni  Hefur nýtt tækifærið mjög vel Ljósmynd/Blackpool Harka Daníel Leó Grétarsson gekk til liðs við Blackpool frá Álasundi í Noregi í byrjun október. Bjarki Már Elísson er markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handknattleik en hann skoraði fimm mörk fyrir Lemgo í 23:29-tapi liðsins á heimavelli gegn Füchse Berlín í deildinni í gær. Bjarki Már hefur skorað 107 mörk í sextán leikjum á tímabilinu en Viggó Kristjánsson, liðsfélagi Bjarka í ís- lenska landsliðinu og leikmaður Stuttgart, er næstmarkahæstur með 105 mörk í fimmtán leikjum. Robert Weber, leikmaður Nord- horn, er þriðji markahæstur með 103 mörk í fimmtán leikjum. Áfram berjast Íslendingarnir Lemgo Markahæstur Bjarki Már hefur skorað 107 mörk í Þýskalandi. Martin Hermannsson átti stórleik fyrir Valencia þegar liðið vann 101:75-sigur á botnliði Gipuzkoa á heimavelli í efstu deild Spánar í körfuknattleik í gær. Martin skor- aði 17 stig og var stigahæsti leik- maður Valencia ásamt Mike Tobey sem skoraði einnig 17 stig. Þá gaf Martin einnig fimm stoðsendingar í leiknum en Valencia er í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig. Haukur Helgi Pálsson skoraði 15 stig fyrir Andorra í 93:81-tapi liðs- ins gegn Tenerife á útivelli en An- dorra er með 14 stig í tíunda sæti. Stigahæstur í stórsigri Valencia Ljósmynd/@YarisahaBasket 17 Martin gekk til liðs við Valencia frá þýska liðinu Alba Berlín í sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.