Morgunblaðið - 28.12.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Bandaríska tónlistarkonan Coco
Reilly kom hingað til lands í sumar
og stóð til að dvölin yrði stutt. Ætl-
unin var að vinna að kvikmyndatón-
list fyrir ónefnt verkefni og halda
síðan aftur heim til Los Angeles.
Reilly er enn þá á Íslandi og langar
ekki aftur heim, vill vera hér sem
lengst. „Þetta er svo dásamlegur
staður, þið hafið allt til alls og fyrir
mér er þetta draumur fullur af bók-
um, rithöfundum, tónlistarmönnum
og listamönnum,“ segir Reilly bros-
andi frá íbúð sinni í gamla Vestur-
bænum. Hún var langt komin með
fyrstu breiðskífu sína þegar hún
kom til Íslands, kláraði hana í byrj-
un vetrar og gaf út nú í byrjun des-
ember. Reilly er söngkona, lagahöf-
undur, hljóðfæraleikari og tónskáld
og hefur þessi fyrsta breiðskífa
hennar, samnefnd henni, þegar vak-
ið athygli miðla á borð við Rolling
Stone sem lýsir tónlist Reilly sem
blöndu af Fionu Apple, Air, George
Harrison og Flaming Lips. Ekki
leiðum að líkjast.
Áður en Reilly flutti til Los Ang-
eles bjó hún í New York og Nash-
ville og þekkir því vel til ólíkra
borga og ólíkrar menningar Banda-
ríkjanna. Hún segist allt frá barns-
aldri hafa samið tónlist og stofnað
hljómsveit á táningsaldri. Núna er
tónlistin atvinna hennar en á tíma-
bili reyndi hún að fara aðra leið. „Ég
hélt að mig langaði að verða læknir
eða taugafræðingur, fór aftur í nám
en sinnti líka hinum ýmsu störfum.
Ég var aðstoðarmaður dýralæknis,
vann í blómabúð, byrjaði og hætti í
námi en endaði alltaf aftur í tónlist.
Ég hitti reglulega tónlistarmenn,
hætti aldrei að semja og ákvað að
gera tónlistina ekki að ævistarfi.
Þetta var um tíu ára tímabil og ég
lærði af mistökum mínum,“ segir
Reilly.
Upptökum lauk vorið 2017
Platan var tekin upp á ýmsum
stöðum og lauk upptökum í Battle
Tapes-hljóðverinu í Nashville vorið
2017. Coco flutti þá til Los Angeles
og hugðist gefa plötuna út þar en út-
gáfunni seinkaði því viðræður við út-
gáfufyrirtæki drógust á langinn.
Lauk Reilly við plötuna í Reykjavík
þremur árum síðar, hljóðblöndun og
masteringu og naut við það liðsinnis
Alberts Finnbogasonar.
Reilly segist ekki hafa bundið
miklar vonir við plötuna sem fór í
gegnum margar umbreytingar og
var tekin upp þrisvar áður en Reilly
varð sátt við hljóðheiminn. „Ég er
hrifin af draumkenndum, róm-
antískum og gróskumiklum hljóm-
heimum en ekki tónlist sem er of
hrein, nútímaleg og fáguð. Ég er
hrifin af tónlist fimmta áratugarins
á borð við The Ink Spots og Julie
London. Og auðvitað er ég hrifin af
Bítlunum og George Harrison,“ seg-
ir Reilly. Hún hafi þó ekki haft ein-
hvern tiltekinn heildarhljóm í huga
fyrir plötuna heldur valið eitt og
annað sem henni líkaði fyrir hvert
lag fyrir sig.
„Ég kalla þessa plötu Franken-
stein-inn. Hún var tekin upp í svo
mörgum húsum, í svo mörgum her-
bergjum og á svo margar tölvur, í
ólíkum ríkjum og löndum. Ég var
svo blönk að við tókum bara upp
þegar ég hafði efni á því,“ segir
Reilly kímin. Ýmsir hljóðfæraleik-
arar tóku þátt í upptökunum, m.a.
gítarleikarinn Jerry Bernhardt sem
Reilly segir gríðarlega færan og
fjölhæfan. „Það er mikil gjöf að fá
slíkan mann til liðs við sig, mann
sem veit hvað maður er að hugsa.“
Heyrn er sögu ríkari og má finna
plötu Reilly á Soundcloud, Spotify
og víðar og einnig má benda á vef-
síðu hennar, cocoreilly.com.
Fékk nóg af blekkingum
– Í tilkynningu segir að þetta sé
konseptplata …
„Já, það var ekki ætlunin hjá mér
en hún reyndist vera það á end-
anum,“ svarar Reilly. „Ég var að
yrkja um að ég vildi að fólk segði
mér sannleikann og að ég ætti líka
að vera heiðarleg við sjálfa mig. Ég
var bara búin að fá nóg af blekking-
arleikjum, að fólk sýndi ekki sitt
rétta andlit og nóg af því að verða
fyrir vonbrigðum. Ég áttaði mig síð-
ar á því að ég hefði líklega sjálf
stundað slíka leiki og ætti því ekki
að ásaka aðra,“ segir Reilly. Hún
hafi kannað eigin sjálf og reynt að
átta sig betur á sjálfri sér.
Lagatextarnir eru sprottnir úr
reynsluheimi Reilly og yrkir hún
meðal annars um samband við fyrri
unnusta sinn. „Það var erfitt sam-
band sem fékk mig til að líta í eigin
barm. Ég sleit trúlofuninni og ákvað
þá að snúa mér aftur að tónlist. Mig
langaði samt ekki að skrifa um ást-
arsamband því slík sambönd eru
hverful,“ segir Reilly og að hún hafi
þurft að kafa í undirvitundina og
átta sig á því hvaðan ákveðnar til-
finningar væru sprottnar.
Textarnir vísa einnig í bandaríska
pólitík og forsetatíð Donalds
Trump; tíma blekkinga, misvísandi
upplýsinga og lyga. Reilly segist á
þessum tíma hafa velt fyrir sér hver
væri að segja sannleikann, hvað
væri raunverulegt og hvort allir
væru meira eða minna að tjá skoð-
anir sínar gegn greiðslu. Í textunum
bendi hún á að fólk geti haft þá
heimsmynd sem því sýnist en á end-
anum muni sannleikurinn alltaf leita
upp á yfirborðið og réttlætið sigra
að lokum.
Ljósmynd/Julie Rowland
Leitandi Coco Reilly býr um þessar mundir á Íslandi og gaf í byrjun mánaðar út fyrstu breiðskífu sína.
Í leit að sannleikanum
„Ég kalla þessa plötu Frankenstein-inn,“ segir tónlistarkonan Coco Reilly um fyrstu breiðskífu
sína sem kláruð var á Íslandi Ekki enn farin heim til Los Angeles og segir Ísland draumi líkast