Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Þ
etta hefur gengið mjög vel og betur
en við þorðum að vona,“ segir Gest-
ur er hann er spurður hvernig hafi
gengið að nýta nýju vinnsluna, en
bundnar eru vonir við að fjárfest-
ingin skili auknum afköstum. „Við erum ekki
búin að ná fullum afköstum, en erum þó komin
töluvert lengra en í gamla húsinu. Erum að
vinna mun meira magn. Þetta lofar góðu en
auðvitað eigum við eftir að fínstilla þetta meira
til þess að ná út úr þessu því sem við ætlum
okkur.“
Unnið var að undirbúningi hússins um þó
nokkurn tíma og hefur tekið nokkur ár að
komast á þann stað sem vinnslan er nú. „Það
er hópur búinn að vera meira og minna í þessu
í þrjú ár. Þetta er eins og að sjá barn fæðast og
byrja að ganga,“ segir Gestur og hlær. Spurð-
ur hvort þetta hafi verið erfið meðganga svar-
ar hann að hún hafi ekki endilega verið erfið en
löng. „Þetta var ákveðinn léttir þegar maður
sá þetta fara í gang og þetta snerist. Maður
fékk að sjá hugmyndir sem voru á blaði verða
að raunveruleika. Maður var alveg svolítið
stressaður.“
Öflugu fólki að þakka
Það er hins vegar ekki lítið verk að sinna „fín-
stillingum“ þar sem viðhafðar eru strangar
sóttvarnir í fiskvinnslunni og aðgengi að hús-
inu takmarkað. „Vegna kórónuveiru-
faraldursins koma engir sérfræðingar á svæð-
ið og það hefur ekki létt verkið að þurfa að
gera þetta í þessu ástandi. Þetta eru mörg
kerfi sem þurfa að tala saman, mörg fyrirtæki
sem koma að þessu og margir þurft að læra ný
vinnubrögð. Þetta hefur verið mikil yfirlega en
það hefur tekist að láta þetta ganga vel hingað
til,“ útskýrir Gestur.
Hann segir það alls ekki þannig að tafir hafi
orðið vegna ástandsins. „Við gáfum okkur að
það myndi taka okkur um sex mánuði að kom-
ast í fullan gír og við stöndum við það. Ein-
hvern tímann í byrjun næsta árs erum við von-
andi komin á þann stað sem við ætluðum
okkur að vera á.“ Spurður hvort það hafi verið
langir dagar svarar hann því játandi. „Já það
hafa verið langir dagar hjá mörgum en allir já-
kvæðir og tekið þátt í þessu. Það er bara svo-
leiðis í svona verkefni að þetta verður aðeins
unnið með því að allir standi saman. Ástæðan
fyrir því að þetta hefur gengið svona vel er að
undirbúningurinn var góður og þetta er öflugt
fólk sem kom að þessu bæði frá okkur og þess-
um fyrirtækjum sem við erum að vinna með.“
Fækka einhæfum störfum
Starfsumhverfið í fiskvinnslunni hefur breyst
töluvert frá því sem var og tengist það ekki
eingöngu markmiði um bætt afköst. „Það var
ein af forsendum hönnunarinnar að gera þetta
að betri vinnustað. Það var verið að fara úr 70
ára gömlu húsi á fleiri hæðum og ákveðið að
leggja mikið upp úr því að gera aðbúnað
starfsfólksins eins og best verður á kosið.
Betri en þekkist víðast hvar annars staðar í
matvælavinnslu í heiminum.
Það er mjög ánægjulegt að fá að heyra í
fólkinu sjálfu hvað það hefur að segja. Það fer
ánægðara heim að loknum vinnudegi og hefur
ekki orðið fyrir jafn miklu álagi og áður var.
Við vorum sérstaklega að horfa til þess að
fækka líkamlega erfiðum og einhæfum störf-
um. Einnig var mikið lagt í að tryggja góða
lýsingu og hljóðvist var í fyrirrúmi. Við lögðum
tugi milljóna í þessa þætti umfram það sem al-
gengast er. Allt þetta var gert til að búa til
betri og skemmtilegri vinnustað og við erum
mjög ánægð með hvernig það hefur tekist,“ út-
skýrir Gestur.
Hann segir ekki nýtt fyrir starfsfólkið að
þurfa að læra á nýjan tækjakost eða breyttar
aðstæður. „Dalvík hefur alltaf verið leiðandi í
tæknibreytingum í fiskvinnslu og starfsfólkið
þekkir það hvernig það er að taka þátt í svona
vinnu. Það hafa allir mætt þessu með jákvæðu
hugarfari.“
Spennandi að sýna
viðskiptavinum möguleikana
Með aukinni sjálfvirknivæðingu er ekki ein-
ungis hægt að auka nákvæmni, nýtingu og af-
köst, heldur er einnig hægt að bjóða fjöl-
breyttara úrval afurða og þannig mæta
síbreytilegum kröfum kaupenda. Það hefur
meðal annars komið að góðum notum núna
þegar hefur þurft að bregðast við breyttum
markaðsaðstæðum í kjölfar Covid. „Markaður-
inn hefur breyst hratt undanfarið, veitinga-
staðir eru lokaðir en stórmarkaðir hafa tekið
við og þeir eru að mörgu leyti kröfuharðari
viðskiptavinir,“ segir Gestur. „Stórmarkaðir
vilja nákvæmari bitaskurð og fjölbreyttari af-
urðir og þar hefur vatnsskurðartæknin algjöra
yfirburði.“
Öll þessi tækni býður upp á að hægt sé að
hagnýta gífurlegt magn gagna. Spurður hvort
það hafi komið að notum svarar fram-
kvæmdastjórinn: „Það er hluti sem hefur
kannski setið aðeins á hakanum til þessa og er
verkefni næsta árs að vinna úr öllum þessu
upplýsingum sem maður hefur aðgang að. Ég
sé mikið af möguleikum í framtíðinni með að
tengja þessi gögn saman; vinnsluna, söluna og
jafnvel veiðarnar.“
Gestur kveðst vona að þessu faraldurs-
ástandi fari að linna á komandi misserum
þannig að starfsemin geti farið í eðlilegra horf.
„Þá verður næsta verkefni að taka á móti okk-
ar viðskiptavinum og sýna þeim hvað við erum
að gera. Við erum bara búin að senda þeim
myndir og myndbönd. Það hefur enginn komið
í húsið og það verður spennandi að geta sýnt
alla þá möguleika sem við getum boðið upp á.
Á venjulegu ári erum við með nokkra við-
skiptavini í hverjum mánuði sem koma í heim-
sókn til viðbótar við fjölda erlendra úttekt-
araðila. Það hefur ekkert verið núna, en höfum
samt fengið samþykki hjá öllum okkar við-
skiptavinum. Þeir treysta því að allir hlutir séu
í lagi enda Dalvíkingar verið leiðandi í gæða-
málum fiskvinnslunnar á heimsvísu í áratugi.“
„Dalvík alltaf verið
leiðandi í tækni-
breytingum“
Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja,
segir það hafa gengið mjög vel að taka nýja hátæknivinnslu
fyrirtækisins á Dalvík í notkun. Verkefnið hefur verið
krefjandi og er enn nokkuð í að takist að nýta alla
möguleika þess búnaðar sem komið hefur verið fyrir.
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, kveðst ánægður með árangurinn hingað til.
Ljósmynd/Þórhallur Jónsson
Starfsumhverfið er mun betra í nýja frystihúsi
Samherja enda tók hönnunin sérstaklega mið að
því að fækka einhæfum og líkamlegum störfum.
Frystihúsið er 9.000 fermetrar að stærð.
Fjárfestingin hleypur á sex milljörðum
króna.
Mörg fyrirtæki koma að verkefninu. Þar á
meðal Valka, Frost, Samey, Skaginn 3X,
Baader Ísland, Slippurinn Akureyri, Vélfag,
Raftákn og Marel.
Frystihús Samherja