Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 12.12.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Ljósmynd/Ægir Gunnarsson Tæmt úr pokanum þar sem uppistaðan voru þorskur, ýsa og einstaka rauður karfi. Aflinn er unninn, frystur og honum pakkað um borð svo gæðin haldast alla leið frá miðum í maga neytendanna. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á höfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK hefur fiskað vel síðustu daga, en togarinn er nú á Stranda- grunni en svo heita mið djúpt norður af Vestfjörðum. Stærstur hluti togaraflotans hefur verið þar að und- anförnu, enda á vísan að róa um góðan afla. „Einn, tveir, þrír … já, mér sýnast hérna vera nærri tuttugu skip svona við lauslega talningu,“ sagði Ægir Óskar Gunn- arsson 1. vélstjóri þegar Morgunblaðið ræddi við hann fyrr í vikunni. Fyrir norðan land nýtur birtu aðeins skamma stund um miðjan daginn nú þegar komið er fram í desember. Menn eru því nánast alltaf í myrkri, nema hvað heil ljósa- borg er á hafinu þegar togararnir eru allir á svipuðum slóðum. Akureyrartogarar og Suðurnesjaskip „Hér eru Vestfjarðaskip, Akureyrartogarar og aðrir sem gerðir eru út frá Reykjavík og Suðurnesjum. Hingað stefna flestir og sækja í þorsk og ýsu. Það er fiskurinn sem markaðurinn kallar eftir og hér um borð er aflinn verkaður, frystur og settur í umbúð- ir. Þetta er mikil vinna og tarnirnar oft mjög hressilegar – þegar við fáum góð höl,“ segir Ægir. Eins og á öðrum frystitogurum eru í hverjum túr alls 26 manns í áhöfn Hrafns Sveinbjarnarsonar. Nú standa vaktina Val- ur Gunnarsson skipstjóri og hans gengi, valinn maður í hverju rúmi. Í hinni áhöfn- inni er Kristján Ólafsson skipstjóri. Allir vinir og veiðin er góð Skipstjórnarmenn og vélstjórar á togar- anum standa tólf tíma vaktir, en lotur há- setanna eru átta klukkustundir. „Hver túr hjá okkur er yfirleitt fjórar vikur, en þessi verður reyndar aðeins skemmri,“ segir Ægir Óskar. „Í byrjun mánaðarins var bræla á miðunum sem við biðum af okkur í landi. Fórum svo út 3. desember og þá strax hingað norður fyrir Vestfirði. Verð- um hér sjálfsagt meðan gefur, en ætlunin er að koma í land 22. desember. Við svona rétt náum í skötuveisluna á Þorláksmessu og heim til fjölskyldunnar áður en hátíðin gengur í garð. Og það er fínt að vera á sjónum; því hér um borð er fínn mann- skapur og mórallinn er góður. Allir vinir og veiðin er góð.“ Djúpt norður af Vestfjörðum Stór hluti togaraflotans var í vikunni á Strandagrunni og veiðin var með ágætum. Þorskur og ýsa eru uppistaða aflans sem er frystur og pakkað um borð. Strákarnir á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK koma í land daginn fyrir Þorláksmessu. Ljósmynd/Ægir Gunnarsson Horft í roðann í norðurhöfum. Nú þegar svartasta skammdegið gengur yfir nýtur birtu á miðunum aðeins skamma stund, þó upplýst skipin myndi sannkallaða ljósaborg þegar mörg eru á miðunum. Ljósmynd/Ægir Gunnarsson Lipulega gert að möskvum úti á dekkinu. Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson Hrafn Sveinbjarnarson siglir út frá Grindavík. Alls eru 26 manns í áhöfn togarans, en hver túr tekur um það bil einn mánuð. Sá sem nú stendur yfir verður þó heldur skemmri. Ægir Örn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.