Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020
Ljósmynd/Ægir Gunnarsson
Tæmt úr pokanum þar sem uppistaðan voru þorskur, ýsa og einstaka rauður karfi. Aflinn er unninn,
frystur og honum pakkað um borð svo gæðin haldast alla leið frá miðum í maga neytendanna.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Á
höfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni
GK hefur fiskað vel síðustu daga,
en togarinn er nú á Stranda-
grunni en svo heita mið djúpt
norður af Vestfjörðum. Stærstur
hluti togaraflotans hefur verið þar að und-
anförnu, enda á vísan að róa um góðan afla.
„Einn, tveir, þrír … já,
mér sýnast hérna vera
nærri tuttugu skip svona
við lauslega talningu,“
sagði Ægir Óskar Gunn-
arsson 1. vélstjóri þegar
Morgunblaðið ræddi við
hann fyrr í vikunni.
Fyrir norðan land nýtur
birtu aðeins skamma
stund um miðjan daginn
nú þegar komið er fram í
desember. Menn eru því
nánast alltaf í myrkri, nema hvað heil ljósa-
borg er á hafinu þegar togararnir eru allir
á svipuðum slóðum.
Akureyrartogarar og Suðurnesjaskip
„Hér eru Vestfjarðaskip, Akureyrartogarar
og aðrir sem gerðir eru út frá Reykjavík og
Suðurnesjum. Hingað stefna flestir og
sækja í þorsk og ýsu. Það er fiskurinn sem
markaðurinn kallar eftir og hér um borð er
aflinn verkaður, frystur og settur í umbúð-
ir. Þetta er mikil vinna og tarnirnar oft
mjög hressilegar – þegar við fáum góð höl,“
segir Ægir.
Eins og á öðrum frystitogurum eru í
hverjum túr alls 26 manns í áhöfn Hrafns
Sveinbjarnarsonar. Nú standa vaktina Val-
ur Gunnarsson skipstjóri og hans gengi,
valinn maður í hverju rúmi. Í hinni áhöfn-
inni er Kristján Ólafsson skipstjóri.
Allir vinir og veiðin er góð
Skipstjórnarmenn og vélstjórar á togar-
anum standa tólf tíma vaktir, en lotur há-
setanna eru átta klukkustundir. „Hver túr
hjá okkur er yfirleitt fjórar vikur, en þessi
verður reyndar aðeins skemmri,“ segir
Ægir Óskar. „Í byrjun mánaðarins var
bræla á miðunum sem við biðum af okkur í
landi. Fórum svo út 3. desember og þá
strax hingað norður fyrir Vestfirði. Verð-
um hér sjálfsagt meðan gefur, en ætlunin
er að koma í land 22. desember. Við svona
rétt náum í skötuveisluna á Þorláksmessu
og heim til fjölskyldunnar áður en hátíðin
gengur í garð. Og það er fínt að vera á
sjónum; því hér um borð er fínn mann-
skapur og mórallinn er góður. Allir vinir
og veiðin er góð.“
Djúpt norður af Vestfjörðum
Stór hluti togaraflotans var
í vikunni á Strandagrunni
og veiðin var með ágætum.
Þorskur og ýsa eru uppistaða
aflans sem er frystur og
pakkað um borð. Strákarnir
á Hrafni Sveinbjarnarsyni
GK koma í land daginn
fyrir Þorláksmessu.
Ljósmynd/Ægir Gunnarsson
Horft í roðann í norðurhöfum. Nú þegar svartasta skammdegið gengur yfir nýtur birtu á miðunum
aðeins skamma stund, þó upplýst skipin myndi sannkallaða ljósaborg þegar mörg eru á miðunum.
Ljósmynd/Ægir Gunnarsson
Lipulega gert að möskvum úti á dekkinu.
Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson
Hrafn Sveinbjarnarson siglir út frá Grindavík. Alls eru 26
manns í áhöfn togarans, en hver túr tekur um það bil einn
mánuð. Sá sem nú stendur yfir verður þó heldur skemmri.
Ægir Örn
Gunnarsson