Morgunblaðið - 12.12.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.12.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is S tarfsemi nýsköpunarfyrirtækisins Margildis hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og fyrirtækið náð fótfestu á erlendum mörkuðum með vörur sínar. Fram- leiðslan grundvallast á einkaleyfisvarinni kaldhreinsiaðferð sem Snorri Hreggviðsson og Magnús Valgeir Gíslason þróuðu til full- vinnslu hrálýsis úr uppsjávartegundum á borð við síld, makríl og loðnu. „Lýsið sem Margildi framleiðir er unnið úr fersku hráefni sem tryggir mikil bragðgæði þannig að lýsisneysla verður eintóm ánægja,“ segir Snorri. „Hugmyndin kviknaði við tveggja manna tal sem ég átti yfir rauðvínsglasi með vini mínum sem veit eitt og annað um lýsisvinnslu og ómega-3-fitusýrur,“ segir Snorri söguna. „Samtalið barst út í það hvernig mætti nýta betur og fullvinna til manneldis það frábæra hráefni sem skapast við veiðar og vinnslu á ís- lenskum uppsjávarfisktegundum.“ Erlingur Viðar Leifsson gekk fljótlega til liðs við Snorra og saman stofnuðu þeir Margildi til að fylgja hugmyndinni eftir. Með vægt bragð og lykt Það lýsi sem verður til við vinnslu uppsjáv- artegunda er ríkt að eftirsóknarverðum nær- ingarefnum en hafði, þar til Margildi hóf starf- semi, aðallega nýst til framleiðslu dýrafóðurs fyrir fiskeldi því ekki var hægt að fullvinna það til matvælaframleiðslu. Hefur Margildi í dag fengið einkaleyfi fyrir hreinsunaraðferð sinni bæði á Íslandi og í Evrópu og stendur umsóknarferli yfir í Bandaríkjunum, Kanada, Kína og víðar. Með hreinsunninni fæst lýsi í hæsta gæða- flokki sem hefur ýmsa kosti fram yfir hefð- bundið lýsi sem unnið er úr lifur bolfiskteg- unda eins og þorsks og ufsa. „Uppsjávar- fisktegundir hafa styttri líftíma og fyrir vikið er fiskurinn að miklu leyti laus við snefilefni á borð við þungmálma og þráavirk efni sem ella þyrfti að fjarlægja með ýmsum hreinsunar- aðferðum. Mestur er samt munurinn á bragð- gæðunum og hefur lýsi úr uppsjávarfiski mild- ara bragð, m.a. vegna þess að það er unnið úr mjög fersku hráefni,“ upplýsir Snorri en vörur félagsins hafa hlotið „Superior Taste Aw- ards“-viðurkenningu hinnar virtu alþjóðlegu matargæðastofnunar International Taste Institute fyrir lyktar- og bragðgæðin. Þar sem varan hefur vægt bragð og angan hentar hún vel til íblöndunar í önnur matvæli og byggist viðskiptalíkan Margildis meðal annars á að selja lýsið til framleiðenda sem vilja auka hlutfall hollra fitusýra í matvælum sínum. Hefur lýsi frá Margildi verið notað til að bæta ómega-3-fitusýrum í skyr, ferskt pasta, hnetusmjör, matarolíur og smjörva og gefið góða raun. „Þá hefur lýsið okkar þann eiginleika að halda gæðum sínum ríflega tvö- falt lengur en hefðbundið lýsi því það er ein- staklega stöðugt og þránar því seint.“ Ofurfæðutegundum blandað saman Á alþjóðamarkaði selur Margildi vörur sínar undir vörumerkinu Fiskolía (www.fisk- olia.com) en á Íslandi selur fyrirtækið Pure Arctic-síldarlýsi (www.purearctic.is) undir sínu nafni. „Jafnframt seljum við lýsi á tunn- um eða pakkað í neytendaumbúðir undir vöru- merkjum annarra. Gaman er að segja frá því að við höfum náð góðum árangri í sölu síld- arlýsis til Suður-Kóreu en höfum einnig selt til fjölda landa allt frá Nýja-Sjálandi og Kína til Noregs, Þýskalands, Írlands, Bretlands og Bandaríkjanna þar sem við hófum nýverið markaðsátak með opnun eigin söluskrifstofu í Connecticut,“ segir Snorri. „Gæludýramark- aðurinn lofar einnig góðu þar sem síldarlýsinu er blandað saman við gæðafóður til að bæta næringarinnihald eða notað sem fæðubót- arefni og lystauki fyrir gæludýr.“ Erlendum neytendum standa í dag til boða fjórar vörur: óbragðbætt og bragðbætt síld- arlýsi í flöskum, síldarlýsi í perlum og astax- anthín-blandað síldarlýsi. Íslenskir neytendur fá til viðbótar barnalýsið Krakkagott sem inni- heldur minna magn vítamína í takt við daglega vítamínþörf smáfólksins. Astaxthantín-lýsið er kallað SportOmega hérlendis en AstaxOmega erlendis og er ein- stök vara sem samanstendur af tveimur teg- undum ofurfæðu. Íslensk fyrirtæki hafa náð góðum árangri við framleiðslu astaxthantíns sem unnið er úr þörungum sem ræktaðir eru í stýrðu umhverfi. Astaxthantín er kröftugt an- doxunarefni sem þykir hafa margvísleg heilsu- bætandi áhrif rétt eins og og ómega-3- fitusýrurnar sem fást úr lýsi. „Íþróttafólk hef- ur m.a. greint það að blanda ómega-3 og astaxthantíns hjálpar líkamanum að jafna sig eftir krefjandi æfingar, dregur úr harð- sperrum, bólgum og eymslum í liðamótum,“ útskýrir Snorri. „Það væri ekki hægt að blanda astaxthantín saman við hefðbundið lýsi því að oxunaráhrifin myndu valda rýrnun á as- taxanthíninu en þegar því er blandað við síld- arlýsi heldur það styrk sínum og útkoman er vara sem sameinar alla bestu kosti lýsis og as- taxthantíns.“ Samtals hefur Margildi aflað um 250 millj- óna króna frá engilfjárfestum og úr opinber- um styrktarsjóðum, s.s. tækniþróunarsjóði og AVS. Fram undan er að sækja viðbót- arfjármögnun svo að fyrirtækið geti komið upp sinni eigin verksmiðju en samkvæmt áætlunum félagsins verður sjóðstreymi þess jákvætt á næsta ári og veltan mun a.m.k. þre- faldast. Sóknarfærin eru víða og er t.d. útrás til Bandaríkjanna og Kanada hafin og eins fyr- irhugað að leita tækifæra í Noregi: „Noregur er nokkurs konar Kísildalur ómega-3- framleiðslu á heimsvísu en fyrirtækin þar framleiða lýsi einkum úr hráefni á borð við an- sjósur og sardínur sem er flutt inn frá Suður- Ameríku og norðvesturströnd Afríku. Norð- menn veiða heilmikið magn af makríl og síld og vert að skoða hvort megi ekki leigja norsk- um aðilum aðgang að einkaleyfi okkar til að framleiða lýsi úr þessu hágæðahráefni, eða jafnvel að Margildi byggi upp eigin fram- leiðslu á Noregsmarkaði þegar fram líða stundir.“ Vaxandi skilningur á mikilvægi lýsis Er ekki útlit fyrir annað en að lýsismarkaður- inn muni fara stækkandi. Neytendur verða æ betur meðvitaðir um heilsubætandi áhrif þeirra fitusýra sem fást úr lýsi auk þess að lýsi er ríkt að vítamínum. Í kórónuveiru- faraldrinum hefur mikið verið fjallað um góð áhrif D-vítamíns á ónæmiskerfið og líklegt að eftirleiðis muni margir gæta þess að taka lýsi reglulega til að fá nægilegt magn D-vítamíns í kroppinn. Nýverið hefur í auknum mæli verið horft til virkni lýsis í baráttunni við veirusýk- ingar og nefnir Snorri að Norðmenn hófu ný- verið rannsókn á þessu með um 70.000 þátt- takendum. „Rannsóknir hafa sýnt fram á að ómega-3-fitusýrur lýsis geta brotið niður hjúp umhverfis veirur og þannig stuðlað að eyðingu þeirra. Þessari rannsókn er ætlað að sanna þær vísbendingar sem þegar liggja fyrir og hafa verið vel þekktar í áratugi að þeir sem taka lýsi fái síður kvef, hálsbólgu eða flensu. Það virðist mikilvægt að vinna á veirunum í öndunarvegi og því best að neyta fljótandi lýs- is. Við lítum á þetta sem stórt tækifæri og okkar framlag til að stuðla að bættri lýðheilsu með því að gera fólki kleift að geta neytt bæði holls og bragðgóðs lýsis.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Með augastað á lýsisrisunum í Noregi Margildi selur í dag lýsi til kaup- enda um allan heim. Lýsi úr uppsjávartegundum hefur ýmsa kosti og er astaxthantín-bland- aða lýsið mjög áhugaverð vara. Á erlendum mörkuðum selur Margildi fjórar vörur. Astaxanthín-lýsið sameinar tvær gerðir af ofurfæðu í einni flösku. Snorri Hreggviðsson og Erlingur Leifsson stýra Margildi í dag. Þeir sjá fram á áhugaverð tækifæri í Noregi fyrir lýsisframleiðslu úr uppsjávarfiski.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.