Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 17

Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 17
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/18 17 kvað Ragnhildur þörf á að bæta gagnsæi við skipun dómara, einkum varðandi störf dómnefndar sem er falið að meta hæfi umsækjenda um dómarastöður. Aðkoma Alþingis neyðarhemill Björg Thorarensen tók næst til máls og fjallaði um aðkomu Alþingis að skipun dómara hér á landi. Björg benti m.a. á að nefnd sú sem fékk það hlutverk að gera tillögur að nýju fyrirkomulagi við skipun dómara árið 2010 hafi lagt til að aðkoma Alþingis ætti að verka sem eins konar neyðarheimill og ef mál færu í þann farveg þyrfti samþykki aukins meirihluta þingmanna. Þetta hefði þó ekki ratað inn í löggjöfina þar sem aðeins væri gert ráð fyrir einföldum meirihluta. Björg vék jafnframt að því að hún teldi fyrir- komulagið hér á landi andstætt þeim kröfum sem gerðar væru til sjálfstæðis dómara í lýðræðisríkjum, sem væri og ein forsenda réttlátrar málsmeðferðar. Að síðustu lýsti Björg þeirri afstöðu sinni að aðkoma þingsins að skipun dómara væri vanhugsuð. Í þessu samhengi greindi hún frá því að skipun dómara væri stjórnarathöfn samkvæmt 13. og 14. gr. stjórnarskrárinnar. Í því fælist að ábyrgð ráðherra á skipun dómara væri stjórnarskrárbundin. Ábyrgð ráðherra væri þó gerð innihaldslaus með þessu fyrirkomulagi sem Björg taldi andstætt 2. gr. stjórnarskrárinnar, sem væri falið að tryggja að uppfyllt væru fyrirmæli 70. gr. stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð. Vakti Björg máls á því að skipun í dómarastöður hér á landi hefði ítrekað valdið deilum í þjóðfélaginu sem væru til þess fallnar að draga úr trausti almennings á dómstólum. Hún benti á að það væri nær óþekkt vandamál á öðrum Norðurlöndum. Hún taldi lítið stoða að endurskoða reglur um þetta efni á nýjan leik ef pólitískir valdahafar vantreystu sífellt þeim sem væri falið að meta hæfi umsækjenda um dómarastöður hverju sinni. Dómaraskipun má ekki vera pólitísk skiptimynt Þátttakendur í panil tóku að mestu undir með framsögu- mönnum og lýsti Reimar Pétursson yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem nú væri uppi. Ingibjörg Þorsteinsdóttir ræddi um lagaumgjörðina á Norðurlöndum og taldi að vandi okkar varðandi skipun dómara ætti fremur rætur í framkvæmd heldur en lagaumhverfi. Í kjölfarið sköpuðust talsverðar umræður þar sem áheyrendur ýmist spurðu spurninga eða komu á framfæri sínum sjónarmiðum. Í dæmaskyni má nefna að einn nefndarmaður í dóm- nefndinni, sem hafði það hlutverk að gera tillögu að skipun dómara við Landsrétt, lýsti þeirri skoðun sinni að huga þyrfti betur að sjónarmiðum úr mannauðsstjórnun við vinnu nefndarinnar. Vék nefndarmaðurinn einnig að því að tilgangurinn með því að gera tillögu að 15 dómara- efnum um 15 dómaraembætti við Landsrétt hefði í raun verið að létta ráðherranum lífið. Þá tók einn þingmaður til máls og taldi að krafa um aukinn meirihluta á Alþingi við dómaraskipun væri ekki endilega góð hugmynd þar sem þingmönnum gæti dottið í hug að nýta sér þetta sem pólitíska skiptimynt fyrir önnur mál. Framsögumenn og þátttakendur í panil svöruðu jafnframt spurningum og ábend ingum áheyrenda og kom m.a. fram í svörum Reimars að hann teldi að það fyrirkomulag væri ákjósanlegast að nefndar álitið yrði bindandi nema það væri beinlínis í andstöðu við lög. Ritnefnd Andri Árnason, hrl. Edda Andradóttir, hrl., LL.M. Finnur Magnússon, hrl., LL.M. Halldór Jónsson, hrl. Lárus L. Blöndal, hrl. Sigurbjörn Magnússon, hrl. Simon David Knight, solicitor Stefán A. Svensson, hrl., LL.M. Vífill Harðarson, hrl., LL.M. Borgartúni 26 105 Reykjavík 580 4400 www.juris.is

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.