Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 25

Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 25
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/18 25 Að útskýra internetið fyrir maur Heimir Örn Herbertsson hóf erindi sitt á léttum nótum og vék að þeim ævintýralegu breytingum sem orðið hafa á samfélaginu einungis á einum áratug. Byltingarkenndar breytingar gerist sífellt hraðar og verði sífellt stórbrotnari en fræðimenn hafa spáð því að þegar árið 2050 verði heimurinn óþekkjanlegur frá því sem nú er. Heimir fjallaði á skeleggan hátt um mismunandi tegundir gervigreindar og þróun þeirrar tækni sem að hans mati mun ráða langmestu um það hvað okkar bíður á næstu árum. Öll þekkjum við gervigreind á afmörkuðu sviði, s.s. skáktölvur. Almenn gervigreind er í þróun sem ætlað er að vera ,,á pari“ við greind manneskju en svokölluð ofurgreind kemur væntanlega í kjölfarið þegar almenn gervigreind hefur litið dagsins ljós. Fyrirbæri búið slíkri greind myndi hafa greiningargetu á við allt mannkynið en Heimir tók fram að álíka auðvelt væri að úrskýra fyrirbærið fyrir okkur sem lifum nú og að útskýra internetið fyrir maur. Ólögmætt samráð tveggja algríma í Öskjuhlíð? Heimir sagði að í dag verði til jafnmikið af gögnum á tveggja daga fresti og öll gögn samanlagt sem urðu til frá upphafi mannskyns til ársins 2000. Við skiljum eftir okkur stafræn fótspor með öllu sem við gerum á internetinu, þau eru svo færð inn í tölvuforrit sem geta spáð fyrir um hegðun okkar, breytni og ákvarðanir. Þetta gefur mikla möguleika til markaðssetningar sem og til að hafa bein áhrif á breytni okkar, til dæmis sem kjósenda og ekki síst sem neytenda. Upplýsingar, auk stjórnunar og yfirráða á gagnasöfnum og gagnabönkum, verða augljóslega sífellt þýðingarmeiri. Á sviði samkeppnisréttar geta fyrirtæki sem dæmi nýtt sér tæknina til að spá fyrir um verðlagningu keppinauta, neytendum til tjóns en samkeppnin er almennt drifin áfram af óvissu. Sjá mætti fyrir álitaefni í tengslum við bann við ólögmætu samráði þegar fyrirtæki geta notað algrími (e. algorithm) til að spá fyrir um hegðun og verðlagningu keppinautana. Eftir fjörlega og ævintýralega umfjöllun sem minnti á vísindaskáldsögu færðust efnistökin ,,nær jörðu“ eins og Heimir komst sjálfur að orði. Lauk hann framsögu sinni á gamansömum nótum með dæmum um lögfræðileg álitamál sem sprottið gætu af tækniframförum og þátttöku róbóta í atvinnulífinu. Tækifæri og þróun Helga Kristín Auðunsdóttir er doktorsnemi við Fordham háskólann í New York en hún fjallaði um mikilvægi þess að við lögfræðingar nýtum tæknina okkur í hag og þau tækifæri sem hún veitir til að verða ,,ódrepandi“ stétt. Helga benti á það að þróun starfa og munur milli lögfræðinga og lögmanna yrði sífellt óljósari með tilkomu fjórðu iðnbyltingarinnar. Atvinnuleysi meðal lögfræðinga og annarra undanfarin ár, hérlendis og erlendis, hefði leitt af sér ýmsa nýsköpun og frábærar hugmyndir sem hefðu ekki orðið nema vegna þess að hæft fólk án atvinnu hefði fundið sig knúið til að skapa sér eigin verkefni. Þannig hefðu lögmenn og lögfræðingar í góðu starfi engan hvata til að breyta núverandi kerfi. En þegar löglærður hittir ólöglærðan – þá gerist hlutirnir! Útvistun innanhúslögmanna Mårten Janson er fyrrum lögmaður í Finnlandi og kom inn í umræðuna í gegnum fjarfundabúnað en hann stofnaði fyrirtækið Fondia ásamt eiginkonu sinni, sem var jafnframt lögmaður, árið 2004. Þau sáu þörf fyrir nýsköpun á sviði lögfræðiþjónustu á markaðnum og fóru að bjóða upp á lögfræðiþjónustu í áskrift. Fyrirtæki greiða þeim fast mánaðargjald og lögfræðingar Fondia sjá um öll lögfræðileg málefni þeirra á föstu verði. Þá greindi hann frá því að Fondia hafi aldrei verið meðlimur í Lögmannafélagi Finnlands en þarlendis gilda áþekkar reglur og hérlendis um einkarétt lögmanna. Lögmannafélagið í Finnlandi gerir engar athugsemdir við starfsemina og mun áfjáð í að fá þau sem meðlimi. Þau hafa lýst því yfir að svo verði ekki fyrr en lagaumhverfinu verði breytt. Stödd í miðri byltingu Næstur tók til máls Bjarni Þór Bjarnason en Deloitte hefur verið leiðandi á sviði sjálfvirkni og að nýta tæknina til að auka skilvirkni innanhúss. Hann minnti á það að fjórða iðnbyltingin væri ekki handan við hornið, líkt og margir héldu fram, heldur værum við stödd í henni miðri. Afar mikilvægt væri að við gerðum okkur grein fyrir því og nýttum þau tækifæri sem í því felast. Bjarni fjallaði um þær breytingar sem fyrirséð væri að iðnbyltingin hefði í för með sér fyrir rekstrarumhverfi lögmanna og lagði ofuráherslu á þýðingu þess hvernig þessi tækni öll skapaði nýjar væntingar til umbjóðenda lögmanna og lögfræðinga. Breytt rekstrarumhverfi viðskiptavina lögfræðinga og lögmanna gegndi lykilhlutverki sem og sú staðreynd að regluverk og lagaumhverfið allt er sífellt að verða flóknara. Kæmi þar til að mynda til áhrif hins stafræna hagkerfis og aukinn alþjóðavæðing markaða sem einnig yrðu stærri og einkum óáþreifanlegri. Bjarni galt varhug við þeirri tilhneigingu okkar til að ofmeta áhrif tækniframfara til skamms tíma en vanmeta langtímaáhrifin. Loks sýndi Bjarni áhrifaríkt myndband með dæmum um hvernig Deloitte væri þegar

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.