Lögmannablaðið - 2018, Blaðsíða 27
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/18 27
LAGADAGUR AÐ KVÖLDI
Eins og venjulega var mikið um dýrðir að kvöldi Lagadags þegar lögfræðingar landsins
flykktust prúðbúnir í Hörpuna til að njóta samveru, matar, drykkjar og skemmtunar á
heimsmælikvarða. Matur var ekki af verri endanum þar sem reykt lamb, andabringa og
suðræn mangómús komu við sögu.
Jónína S. Lárusdóttir formaður
Lögfræðingafélags Íslands setti
samkomuna og fól Loga Bergmann
stjórnina.
Hljómsveitin Hjartastuðtæki vonda hljómsveitar stjórans, undir styrkri stjórn
Jóhannesar Karls Sveinssonar, tók nokkur lög, þar á meðal gamlan slagara með
nýjum texta sem heitir „Það fær enginn allt sem hann vill (hlutverk lögmanna
og dómara)“. Innihald textans fjallar um klögur og kærur, nágrannaskærur,
umsókn starfa hjá Landsrétti og fleira sem hefur verið í eldlínunni þetta árið.
Vel gert!
Laganeminn Hrafnkell Ásgeirsson
kom, sá og sigraði lögfræðinga
landsins með uppistandi.