Lögmannablaðið - 2018, Síða 21
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/18 21
FRAMTÍÐARSÝN
Á FJÁRMÁLAMARKAÐI
Á málstofu um framtíðarsýn á fjármálamarkaði á Lagadeginum 2018 var fjallað um
samspil nýrrar tilskipunar ESB um greiðsluþjónustu (PSD2) við almennu
persónuverndarreglugerðina (PVRG). Málstofustjóri var Jónína S. Lárusdóttir
framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka, og framsögumenn þær Erna
Hjaltested lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, og Helga Þórisdóttir
forstjóri Persónuverndar. Auk þeirra voru þeir Georg Lúðvíksson forstjóri Meniga og
Hallgrímur Ásgeirsson yfirlögfræðingur hjá Landsbankanum í panil.
Aukið aðgengi þriðju aðila að bankaupplýsingum
Greiðsluþjónusta felur fyrst og fremst í sér að færa peninga
frá einum aðila til annars með rafrænum hætti og í
erindi sínu fjallaði Erna Hjaltested um tilskipun ESB um
greiðsluþjónustu sem fyrirhugað er að verði tekin upp í
EES-samninginn á þessu ári. Hinni nýju tilskipun er ætlað
að opna aðgengi þriðju aðila að bankaupplýsingum um
neytendur og tilgangurinn er einkum að efla samkeppni,
örva tækniþróun á netinu og bæta hag neytenda. Með
hinum nýju reglum munu neytendur geta nýtt sér nýjar
tegundir þjónustu, átt auðveldara með að versla á netinu
auk þess sem bankar þurfa ekki að samþykkja aðgang
þriðju aðila, oftast svokallaðra fjártæknifyrirtækja, að
bankaupplýsingum. Innleiðing tilskipunarinnar felur í
sér endurskoðun á núgildandi lögum nr. 120/2011 um
greiðsluþjónustu en meðal nýjunga er útvíkkun á gildissviði
með fleiri þjónustum sem greiðsluþjónusta nær til auk
þess sem tilskipunin mun einnig ná til greiðslna sem eru
að hluta utan EES. Skylt verður að hafa starfsleyfi eða skrá
þjónustuna hjá Fjármálaeftirlitinu ásamt því sem strangar
F.v. Jónína S. Lárusdóttir, Georg Lúðvíksson, Helga Þórisdóttir, Erna Hjaltested og Hallgrímur Ásgeirsson.