Aðventfréttir - mar. 2014, Side 6

Aðventfréttir - mar. 2014, Side 6
6 samanstendur af mörgum limum sem hafa ólíkan starfa. Séð frá mismunandi sjónarhornum getur sami líkami litið út á mismunandi vegu. Stefnir þetta einingu kirkjunnar í hættu? Veitum eftirfarandi tilvitnun frá Ellen White athygli: „Við getum ekki haldið því fram að eining kirkjunnar standi og falli með því að við skiljum sérhverja ritningargrein á nákvæmlega sama hátt. Kirkjan getur samþykkt yfirlýsingu á yfirlýsingu ofan til þess að setja niður öll ósætti sem spretta af mismunandi skoðunum, en við getum ekki þvingað hugann eða viljann sem er uppsprett ágreinings okkar. Þessar samþykktir geta hulið ágreining okkar, en þeim er ógerlegt að eyða honum eða að koma á fullkominni einingu. Ekkert getur fullkomnað einingu kirkjunnar nema andi umburðarlyndis eins og hann birtist í Kristi.“³ Með öðrum orðum, Ellen White segir að mismunandi sjónarmið séu að fullu samrýmanleg einingu kirkjunnar. Hún undirstrikar að viðmót umburðarlyndis í anda Krists sé afgerandi hvað það snertir að viðhalda einingu kirkjunnar. Þessi mikilvæga sýn á málið gæti bent okkur á að við þurfum kannski ekki alltaf að hafa rétt fyrir okkur og að aðrir þurfi í raun ekki alltaf að vera sammála okkar hugmyndum. Í þessari tilvitnun aðhyllist Ellen White greinilega fjölbreytileika í skoðunum. En hver eru þolmörk „einingar innan fjölbreytninnar“? Fjölbreytni ætti ekki að verað afsökun fyrir deilur innan kirkjunnar því þá myndi sú synd sýnast dyggð. Fjölbreytni gerir þörfina fyrir einingu enn áþreifanlegri. En fjölbreytni, sem leyfir þó samfélagi að viðhaldast, er ásættanleg. Kristið samfélag er tjáning og tákn um einingu kirkjunnar. Eining þýðir ekki endilega jafnrétti eða aðskilnaður frá þeim sem eru á annarri skoðun. Ímynd líkama Krists hafnar metingi, átökum og klíkumyndun en kallar þess í stað á einingu, eindrægni og samfélag.⁴ Þátttaka – frekar en áhyggjur Ef við höfum áhyggjur af söfnuðinum, teljum hann vera á „rangri braut“ eða óttumst klofning gætum við brugðist við á ýmsa vegu. Sumir í söfnuðinum skrifa safnaðarstjórnum tilfinningarþrungin bréf eða senda bréfin beint á allan póstlista sinn í tölvunni. Aðrir hefja eigið starf samhliða starfi kirkjunnar þar eð þeir álíta hana gallaða og ófullkomna. ⁵ Ég efast um það hvort allt þetta stuðli að samheldni kirkjunnar eða gæti verið þáttur í því að „leiða [yður] í allan sannleikann“ (Jh 16.13) – sem, þess utan, er hlutverk Heilags Anda. Ef við erum einlæglega upptekin og áhyggjufull um einingu safnaðarins þá eru fjölmargar leiðir færar til að efla eininguna. Hér á eftir fara nokkrar tillögur: Einblínum á djúpt og persónulegt samfélag við Jesú. Fjölmargar greinar hafa verið birtar í tímaritum safnaðarins um þetta efni. Það eru líka til margar einstakar bækur um efnið, svo sem Vegurinn til Krists eftir Ellen G. White (og fyrir enskumælandi: Knowing God in the Real World eftir Jon Paulien; Conquring the Dragon Within eftir Marvin Moore eða 95 Thesis on Rightousness by Faith eftir Morris Venden). Smáhópar geta líka stuðlað að andlegum vexti í samfélagi við aðra trúaða. Þannig er stuðlað að einingu innan kirkjunna á andlegan hátt. Talið og prédikið um einingu innan kirkjunnar. Settu þetta mikilvæga efni, í samstarfi við prestinn, á listann yfir prédikunarefni í þínum söfnuði. Hvað er eining innan safnaðarins? Hvers vegna er eining mikilvæg? Hvernig má efla einingu innan safnaðarins? Þessi sameiginlega umfjöllun um einingu safnaðarins gefur okkur vitsmunalega aðkomu að þessu máli. Taktu þátt í félagslegum uppákomum safnaðarins. Hvort sem það er sameiginlegt borðhald, skemmtikvöld, gönguferðir, ferðalög eða tímamótahátíðir innan safnaðarins – taktu þátt í þessum félagslegu viðburðum heimasafnaðarins. Þess konar viðburðir tengja safnaðarfólkið nánari böndum og hjálpar okkur að skilja hvert annað betur. Eining safnaðarins er þannig styrkt á tilfinnalegu sviði. Talið saman um hlutverk safnaðarins. Takið þátt í boðunarstarfi safnaðarins, í starfi í þágu innflytjenda, þeirra sem eru að aðlagast nýju samfélagi, eða þjónustu við þá sem minna mega sín í samfélaginu. Þannig verður þú þátttakandi í starfi Guðs í heiminum í dag. Þess konar þátttaka gefur tilfinningu fyrir tengslum og leiðir til eflingar einingar kirkjunnar á verklegan hátt. Ég bið þess að sálmur 69.9,10 mætti verða minni og minni raunveruleiki innan safnaða okkar. Væri það ekki æskilegra að við yrðum þess í stað þátttakendur í hinum stórkostlega kór Sálms 84.5: „Sælir eru þeir sem búa í húsi þínu, þeir munu ætið lofa þig.“ Ég áforma að syngja þann söng í kirkjunni. 1Stuðst við G.C Berkouwer, the Church: Studies in Dogmatics (Grand Rapids: Eerdmans, 1976), bls. 29-50. 2Þú getur nálgast skjalið á www.adventist.org/ information/official-statements/documents/ a r t i c l e s / g o / o / s t a t e g i c - i s s u e s - f o r - t h e -seventh-day-adventist-church/6/. 3Ellen G. White, Manuscripts Releases (Silver Spring, Md.: E. G. White Estate, 1993), bindi 11, bls. 266. (Skáletrun mín.) 4Berkouwer. 5Lát mig undirstrika að ég tel ekki „stuðningþjónustur“ („Supporting ministries“) vera þessum hópi. Greinin er eftir Thomas Lobitz sem er ritstjóri á Advent-verlag í Lüneborg, Þýskalandi.

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.