Aðventfréttir - mar. 2014, Blaðsíða 9
9
að endurskoða safnaðarstarf á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Hugsanlega gæti nýtt húsnæði við Suðurhlíð orðið í
tímans rás kveikjan að nýju upphafi í stærra samhengi og
sameiningu safnaða í nágrenni Reykjavíkur. Erindinu fylgir
einnig teikning að nýju húsnæði við Suðurhlíðarskóla sem
hýsir kirkju, skrifstofuhúsnæði aðventista og íþróttahús
fyrir skólann. Að Eric svari bréfi safnaðarstjórnar
Reykjavíkursafnaðar og skrifi bréf til safnaðarstjórnar
Hafnarfjarðarsafnaðar til að fá viðhorf hennar varðandi
þetta mál.
Að ráða Leó Blæ Haraldsson sem ritara á skrifstofu
aðventista í sumar. Hann hefur störf 10. júní.
Að ráða Dovile Vaiciuliene sem ræstitækni á skrifstofunni
frá 1. maí. Að hún taki einnig að sér hlutastarf í
bókhaldsaðstoð fjármálastjóra .
Stjórn Kirkjunnar hefur fengið tillögu að boðunaráætlun
fyrir Ísland, í tengslum við vinnu stjórnar og skipulagsráðs
að markmiðsáætlunargerðar fyrir Kirkjuna. Að stofna
nefnd sem skoði þessa áætlun og vinni hana áfram til að
leggja fram fullmótaða tillögu til stjórnarinnar. Að nefndin
geri einnig fjárhagsáætlun vegna þessarar boðunaráætlunar
og hana skipi: Elías Theodórsson, Elísa Elíasdóttir, Kristján
Ari Sigurðsson, Sigrún Ruth López Jack og Stefán Rafn
Stefánsson.
Að Kirkja sjöunda dags aðventista taki ekki formlega þátt í
Hátíð vonar, samkirkjulegu verkefni trúfélaga á Íslandi sem
verður haustið 2013.
Að veita styrk til Hafnarfjarðarsafnaðar úr útbreiðslusjóði,
sem nemur 50% af kostnaði vegna kaupa á bókinni Getum
við enn trúað Biblíunni? vegna boðunarnámskeiðs.
Að styrkja eftirfarandi einstaklinga úr ferða- og námssjóði
Kirkjunnar vegna ferðar á General Youth Conference í
Flórída janúar 2014: Björn Hanan Abed, Sverrir Salam
Abed, Þórir Marwan Abed, Jóel Matchett (Youth for Jesus),
Irene Matchett (Youth for Jesus) og Emil Brynjarsson.
Þar sem Harpa Theodórsdóttir er tilnefndur fulltrúi af
SED á Secular & Postmodern Conference í Svartfjallalandi
í tengslum við vetrarfund SED, að Kirkjan greiði
ferðakostnað hennar á umrædda ráðstefnu.
Fjárhagsstaða Suðurhlíðarskóla er ekki stöðug vegna
erfiðra skólaára 2010-2011 og 2012-2013. Í kjölfarið
verða færri hópar næsta ár sem talið er að muni laga
rekstrarstöðu skólans. Kirkjan veitir skólanum vilyrði fyrir
skammtímaláni í millitíðinni ef þörf reynist.
Að skipulagsráð vinni í smærri hópum aðgerðaráætlun
fyrir þá þrjá liði sem fram koma í uppkasti frá Raafat
Kamal.
Að vinnuhópur safni saman upplýsingum um byggingar
Kirkjunnar til að í kjölfarið sé hægt að gera mat á stöðu
Kirkjunnar hvað varðar byggingar hennar. Að hópurinn
samanstandi af Marinu Candi, Hörpu Theodórsdóttur,
Söndru Mar Huldudóttur og Eric Guðmundssyni. Að
hópurinn fái aðstoð frá Pétri I. Guðmundssyni sem fái
greitt fyrir þá vinnu.
Að Linda María Jónsdóttir taki að sér að vera
bókhaldsaðstoð fjármálastjóra í 40% starfshlutfalli frá 1.
september 2013.
Að Stefán Rafn Stefánsson hefji störf sem prestur hjá
Kirkjunni 14. júní 2013 í 100% starfi.
Að Þóra S. Jónsdóttir verði í u.þ.b. 50% starfi hjá
Suðurhlíðarskóla frá ágúst 2013. Að skólinn kaupi vinnuna
af Kirkjunni.
Að Stefán Rafn Stefánsson og Kristján Ari Sigurðsson
verði fulltrúar Kirkjunnar í Field School of Evangelism
sem verður í London 10.-21. október 2013. Kirkjan greiðir
ferðakostnað og Deildin (SED) greiðir gistingu og uppihald
í London.
Að biðja sömu aðila og áður að skipa launanefnd: Guðna
Kristjánsson, Indro Candi, Ólaf B. Kristinsson og Söndru
Mar Huldudóttur (starfsmann nefndar) og fara þess á leit
við nefndina að hún endurskoði handbók starfsmanna og
uppfæri ef þarf, sérstaklega með tilliti til vinnustaðar og
vinnuaðstöðu starfsmanna.
Að flytja safnaðarbréf Lilju Sigurðardóttur til safnaðar
dreifðra (frá Reykjavíkursöfnuði).
Að veita Hafnarfjarðarsöfnuði styrk (50% af kostnaði)
vegna viðbótarkostnaðar safnaðarins í tengslum við
boðunarátak.
Að færa 400.000 kr. úr útbreiðslusjóði í ferða- og námssjóð
Kirkjunnar.
Að styrkja eftirfarandi einstaklinga úr ferða- og námssjóði
Kirkjunnar vegna ferðar á æskulýðsmót í Serbíu sumarið
2013: Sigrún Ella Magnúsdóttir, Jón Þór Magnússon, Anna
Marý Magnúsdóttir og Kristján Ari Sigurðsson.
Að styrkja Róbert A. López Jack úr ferða- og námssjóði
Kirkjunnar vegna Youth for Jesus námskeiðs í
Bandaríkjunum sumarið 2013.
Að Eden Mining fái leyfi stjórnar til að bjóða þeim sem
taka að sér stækkun á Hellisheiðarvegi að kaupa efni úr
námunni. Þá myndi það efni sem er tilbúið (búið að harpa
og vinna) verða selt samkvæmt samningi við Kirkjuna og
síðan fengi Kirkjan að fullu það verð sem fæst fyrir það efni
sem er óunnið. Ef samningar nást við verktaka mun þetta
samkomulag verða gert skriflegt milli Eden Mining og
Kirkjunnar.
Að Kirkjan kanni fyrirspurn sem henni hefur borist
varðandi að fá úthlutaðan (leigðan) 15 ha skika úr landi
Breiðabólstaðar til atvinnustarfsemi í tengslum við
ferðamennsku.
M
A
R
S 2014