Aðventfréttir - Mar 2014, Page 10
10
Lagt var fram fjárhagsyfirlit Kirkjunnar fyrir janúar - mars
2013.
Að Dovile Vaiciuliene taki að sér starf ritara á skrifstofunni
frá 1. september til 30. nóvember 2013.
Að nefndin sem fjalla á um framtíð Hlíðardalsskóla/
Breiðabólstaðar verði virkjuð og henni gefin tímamörk til 28.
febrúar 2014 til að skila skýrslu til stjórnar Kirkjunnar.
Að þar sem SED býður upp á að greiða prentun á bókinni
Experiencing the Joy í tengslum við verkefnið Great Hope
Project, að biðja um að fá það magn sem er í boði fyrir
Kirkjuna á Íslandi á ensku.
Að Bogi Arnar Finnbogason taki að sér þýðingu á Escape
tímaritinu (sem er hluti af Great Hope verkefninu), að nýta
Connect tímaritið á ensku, þar sem stjórnarmenn álíta að
blaðið nái alveg eins vel til ungs fólks á ensku.
Að stefna á rafræna útgáfu á bókinni Ministry of Healing
sem Bogi Arnar Finnbogason hefur þýtt og sækja um styrk
til Deildarinnar. Kostnaður vegna þýðingarinnar er kr.
2.400.000.
Móttekið beiðni frá Adrián López Guarneros um að fá að
taka þátt í námskeiðinu Field School of Evangelism á vegum
SED sem haldið verður 10.-21 október 2013. Að kanna hjá
Deildinni hvort mögulegt sé fyrir Adrián López að vera
viðbótar þátttakandi í frá Íslandi á þessu námskeiði. Að
Kirkjan greiði ferðakostnað hans ef svo er.
Þóra Jónsdóttir kynnti kvennastarfs-ráðstefnu sem haldin
verður árið 2014 í Rogaska, Slóveníu. Ísland hefur möguleika
á að senda 5 þátttakendur. Þátttakendur verða að standa
straum af kostnaði en verðið er að hluta niðurgreitt af SED.
Lagt var fram fjárhagsyfirlit Kirkjunnar fyrir janúar-júní
2013.
Að þar sem Steinunn H. Theodórsdóttir og Jón Erling
Ericsson hafa sagt sig úr Æskulýðsráði, að biðja Sigrúnu
Ruth López Jack og Sigrúnu Ellu Magnúsdóttur að taka sæti
í ráðinu í þeirra stað. Að biðja Hörpu Theodórsdóttur að
aðstoða ráðið við skipulag á starfi sínu í áframhaldi.
Að stefna að því að vera með B3D sýningu í Vestmannaeyjum
í tengslum við 90 ára afmælishátíð safnaðarins í janúar 2014.
Að Njörður Ólason fái ferðastyrk frá Kirkjunni vegna
mánaðarlegra ferða hans til Vestmannaeyja 2013 sem
safnaðarformaður.
Að skuld Reykjavíkursafnaðar við Kirkjuna, kr. 1.459.223
(í lok júní 2013) verði afskrifuð um leið og stjórninni
berst áætlun frá söfnuðinum um hvernig hægt sé að eyða
viðverandi mánaðarlegu rekstrartapi.
Að styrkja Hafnarfjarðarsöfnuð úr útbreiðslusjóði um 50% af
áætluðum kostnaði vegna opinberra fyrirlestra.
Að Kirkjan kaupi upptökuvél (ásamt aukahlutum) sem sé
eign Kirkjunnar en geymd í Loftsalnum, Hafnarfirði.
Samþykkt að kaupa tölvuturn og skjá fyrir skrifstofuritara.
Að biðja Jón Hjörleif Stefánsson að vinna handrits- og
prófarkalestur á þýðingu bókarinnar Ministry of Healing
gegn greiðslu.
Móttekin bréf frá Elisabeth Saguar og Ómari Torfasyni
varðandi samkirkjulega viðburðinn Hátíð vonar. Að þeim
verði svarað með vísan í samþykkt og umræður stjórnar,
þar sem ákveðið var að Kirkjan tæki ekki formlega þátt, en
söfnuðum og safnaðarmeðlimum væri frjálst að taka þátt í
þessum viðburði.
Að áætlun að boðunarátaki á Íslandi verði tekin fyrir á
prestafundi.
Manfred Lemke og Sigurgeir Bjarnason greindu stjórn
Kirkjunnar frá stöðu mála í Reykjavíkursöfnuði.
Fjárhagsstaða er bág og nær söfnuðurinn ekki að standa
undir reglulegum rekstrarkostnaði. Fyrirspurn kom varðandi
styrk til Barnakirkjunnar í Reykjavíkursöfnuði og einnig var
spurt um formlegt svar við bréfi til stjórnar Kirkjunnar um
húsnæðismál safnaðarins og nauðsynlegt viðhald .
Móttekin skýrsla frá launanefnd varðandi akstursmál og
vinnustað/vinnuaðstöðu starfsmanna. Skýrslunni vísað aftur
til launanefndar til endurskoðunar.
Að sumarmót 2014 verði haldið 31. maí – 2. júní og Tihomir
Lazic beðinn um að vera ræðumaður mótsins.
Að Alexander Friðriksson flytji safnaðarbréf sitt frá söfnuði
dreifðra til Skotselv í Noregi.
Að veita Alfa á Akureyri styrk úr boðunarsjóði vegna
auglýsingu fyrir basar þeirra.
Fyrirspurn frá Sólveigu Hjördísi Jónsdóttur varðandi
stöðu mála í kjölfar almenns safnaðarfundar Kirkjunnar
(Þjóðfundar). Að svara henni hvað gerst hefur í kjölfar
fundarins, og setja einnig frétt um þetta í Aðventfréttir.
Heimsóknir frá SED 2014:
Janos Kovacs-Biro, B3D sýningin í Eyjum, febrúar
Paul Thompkins, Skáta-/æskulýðsstarf, 22. febrúar
Claire & John Sanchez, hjóna- og fjölskylduhelgi, 28. mars –
7. apríl
Steven Cooper, ADRA/Heilsa, maí
Nenad Jepuranovic , fjármálafundur, 26. janúar
Að halda pallborðsumræður 12. janúar 2014, að tillögu
Ómars Torfasonar. Að prestar Kirkjunnar skipi pallborð og
málin sem tekin verði til umræðu séu:
1) Út frá hvaða forsendum kom kirkjan fram á sjónarsviðið?
2) Hver eru tengsl kirkjunnar við Ísrael/Júda til forna?
3) Hver er heimsslitakenning kirkjunnar og hvernig
skilgreinir hún hlutverk sitt í nútímasamfélagi í ljósi þess
sannleika líðandi stundar sem hún er kölluð til að boða?