Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 13

Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 13
13 tapa 1000 dollurum og að þau vissu að foreldrar þeirra myndu komast að því. Ef við spöruðum aðeins 5 dollara á mánuði frá því að þau voru 5 ára þar til þau urðu 20 ára (með vöxtum) vorum við komin með 1000 dollarana. Á tvítugsafmæli Jakobs spurðum við hann hvað hann ætlaði að gera við 1000 dollarana sína og hann sagði í gamni: „Fara út og halda bjórpartí fyrir alla vini mína“. En sagði svo, talandi í alvöru: „Mamma og pabbi, ég vil að þið vitið að ég hef aldrei prófað tóbak, áfengi né ólögleg fíkniefni. Og ég er enn þá hreinn sveinn og er stoltur af því!“ Ég horfði yfir á yngri bróður hans og sagði: „Þetta er líka innifalið í 1000 dollurunum þínum!“ 3. Framfleytið ykkur á einum tekjum eins lengi og mögulegt er. Þegar Lois og ég giftum okkur ákváðum við að læra að lifa aðeins á kaupi annars okkar. Við áttum vini sem urðu vön því að lifa á kaupi beggja en þegar þau áttu fyrsta barnið sitt upplifðu þau alls kyns fjárhags- og tilfinningalegan þrýsting vegna minni tekna og aukinna gjalda. Á útborgunardegi skilaði Lois inn tíund og gaf gjafir og setti svo afganginn inn á bankabók. Það var ótrúlegt hversu hratt sparnaðurinn óx. Með því að forðast skuldir og byggja upp sparnað gátum við staðgreitt notaðan bíl aðeins nokkrum árum síðar. Við lifðum á látlausari hátt en sumir kunningjar okkar. Við keyrðum ekki jafn nýjum bíl og bjuggum ekki í jafn dýrri íbúð eða húsi en við fundum ekki fyrir fjárhagsþrýstingi og við lærðum að fresta hlutum þar til við gætum staðgreitt þá. Þegar við svo eignuðumst börn hætti konan mín að vinna í nokkur ár til þess að vera heima með þeim en við fundum ekki fyrir mikilli fjárhagsklípu vegna þess að við vorum vön að lifa aðeins á einum tekjum. Þegar börnin byrjuðu í skóla fór konan mín aftur að vinna. Á þessu stigi í lífinu var okkur byrjað að finnast erfitt að lifa aðeins á einum tekjum en nú voru tekjurnar hennar í boði til þess að hjálpa við að halda börnunum okkar í aðventistaskólum. Með því að lifa aðeins á einum tekjum fyrstu ár hjónabands okkar og þegar börnin okkar voru að alast upp lærðum við margar lexíur í einföldu, ánægjulegu lífi sem við vonum að hafi skilað sér til barna okkar sem góð fyrirmynd. Innblásin leiðbeining Þar sem við færumst nær og nær endurkomu Jesú er það mikilvægara en nokkurn tíma fyrr að fjármál okkar séu undir stjórn Heilags Anda og að við þjálfum börnin okkar í því að stjórna peningunum sínum á þann hátt sem mun færa Guði dýrð. Hlustaðu á þessa innblásnu leiðbeiningu úr The Adventist Home eftir Ellen White: „Þegar börn eru mjög ung á að kenna þeim að lesa, skrifa, að skilja tölur og færa þeirra eigin tekjur og fjárútlát í bók. Þau munu þroskast skref fyrir skref í þessari þekkingu. En á undan öllu öðru ætti þeim að vera kennt að upphaf visku er ótti Drottins“.3 „Foreldrar eiga að ala upp, mennta og þjálfa börnin sín í vanabundinni sjálfsstjórn og sjálfsafneitun. Þau eiga ávallt að brýna fyrir þeim skyldu þeirra að hlýða orði Guðs og að lifa lífinu í þeim tilgangi að þjóna Jesú. Þau eiga að mennta börnin sín í því að það er mikilvægt að temja sér einfaldar venjur í daglegu lífi og að forðast dýran klæðaburð, dýrt mataræði, dýr hús og dýr húsgögn.“4 „Ef eyðslusemi einkennir líf þitt, reyndu þá að vinna bug á þeim vana sem fyrst. Ef þú gerir þetta ekki munt þú verða gjaldþrota að eilífu. Venjubundin starfsemi, vinna sem og reglusemi er betri arfleið fyrir börn ykkar en fúlgur fjár“.5 „Foreldri áminnt fyrir eyðslusemi – þú kannt ekki að nýta fjármuni þína á hagnýtan hátt og lærir ekki að stilla þörfum þínum í hóf innan marka tekna þinna …. Þú hefur sterka löngun til að afla fjár þannig að þú getir eytt því að eigin geðþótta og kennsla þín og fordæmi hefur reynst bölvun börnum þínum. Hve lítið þeim er annt um meginreglur! Guð tekur upp minna og minna rými í huga þeirra og þau eru minna óttaslegin við það sem vekur vanþóknun Guðs og sýna æ meira óþol gagnvart aga. Því mun auðveldara sem það er að afla fjár því minna finnur maður fyrir þakklæti.“6 „Besti arfur sem foreldrar geta skilið eftir s i g h a n d a börnunum sínum er þekking á nytsömu starfi og fordæmi um líf sem einkennist af velvild sýnd án tillits til eigin hagsmuna. Með þess konar lífi sýna þau hið sanna gildi peninga, að gildi þeirra verður eingöngu metið í tengslum við það góða sem þeir geta komið til leiðar við að sjá þeim sjálfum farborða, koma til móts við þarfir annarra og í að efla framgöngu málefnis Guðs.“7 Það er arfurinn sem ég vil skilja eftir mig fyrir börnin mín. Hvað um þig? 1 Jenna Goudreu, „Nearly 60 percent of Parents Provide Financial Support to Adult Children,“ Forbes, May 20, 2011, www.forbes.com/sites/ jennagoudreu/2011/05/20/parents- provide-financial-support-money-adult- children/. 2 Biblían, heilög ritning ©Hið íslenska Biblíufélag 2011. 3 Ellen G. White, The Adventist Home (Nashville: Southern Pub. Assn., 1952), bls. 386. 4 Sama rit. 5 Sama rit, bls. 375. 6 Sama rit. 7 Sama rit, bls. 375. Greinin er eftir Dan Serns sem er prestur í Texas, Bandaríkjunum. Mynd eftir D. Sharon Pruitt M A R S 2014

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.