Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 14

Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 14
14 GYC í Orlando, Flórída 2014 GYC mótið (Generation of Youth for Christ) var haldið í Orlando, Flórída dagana 1.-5. janúar á þessu ári. 14 manna hópur Íslendinga lagði leið sína á þessa fjölmennustu árlegu samkomu ungmenna sem tilheyra Kirkju sjöunda dags aðventista. En áður en að mótið hófst, ákvað hluti hópsins að skoða sig aðeins um í þessu framandi fylki sem er heimili fjölmargra dýrategunda. „Við byrjuðum ferðina á því að fara til Silver Springs þar sem við hittum Jay og Rosu Cameron, sem við kynntumst á Hlíðómóti síðasta vor. Í þessum afgirta þjóðgarði er straumlítil á sem rennur þar í gegn. Við fórum ellefu saman á fjórum kanóum og þræddum ána fram og til baka. Það var ótrúlegt lífríki bæði í ánni og í þéttvöxnum skógunum frá árbökkum sem og í vatninu sjálfu. Við sáum fullt af krókódílum, skjaldbökum, syndandi og stökkvandi fiskum. Við árbakkann sátu allskonar tegundir af fuglum í öllum stærðum og gerðum, en á trjágreinunum yfir vatninu sátu tugir apa að klípa úr hvor öðrum lús og gera allskonar klifurkúnstir og tókst okkur að greina á milli tveggja apategunda.“ Daníel Þór Þorgrímsson Ungmennamótið hófst 1. janúar. Þátttakendur á hápunkti mótsins voru 6500 og komu frá 60 löndum. Þeir voru sammála því að besta leiðin til að byrja nýtt ár væri með því að rannsaka ritningarnar, leita Guðs og tilbiðja með trúsystkinum sínum. Dagskrá mótsins var þéttskipuð. Fyrir utan sameiginlegar samkomur voru fjölmörg námskeið í boði. Valkvíðinn gerði vart við sig enda voru 20 fyrirlestrar í gangi samtímis. „Það sem mér fannst standa mest uppúr var þegar ég fór á fyrirlestur með Anil Kanda. Hann talaði um „Angelic Psychology“ eða „Engla Sálfræði“ sem fjallaði um hegðun og hlutverk engla, bæði fallinna og ófallinna, samkvæmt Biblíunni. Það var rosalega mikil upplifun að fara á GYC og það hjálpaði mér að styrkja trúna. Ég mæli með fyrir alla sem geta, sérstaklega unga fólkið að fara á GYC og upplifa hvað þessi hreyfing er að gera.“ Emil Bynjarsson Það er heillandi að sjá að allur undirbúningur mótsins er unninn af ungu fólki. Þessi ungmenni hafa skapað vettvang fyrir trúsystkini sín til þess að hittast og styrkja hvert annað í trúnni. Þema mótsins í ár var „Frammi fyrir mönnum og englum“ sem vísar í 1. Korintubréf 4:9. Áherslan var á deiluna miklu milli góðs og ills og þá sérstaklega hvernig hún hefur áhrif á líf okkar sem einstaklinga. Einn eftirmiðdag mótsins var þátttakendum boðið að fara út og deila trú sinni með íbúum Orlando. Þetta er samstarfsverkefni GYC og safnaðanna á svæðinu. Í ár var bankað á 22.622 dyr og 216 manns óskuðu eftir biblíulexíum. 2238 eintök af Deilunni miklu voru gefin áhugasömum og það söfnuðust 15,000 dollarar til neyðaraðstoðar fyrir heimilislausa í Orlando. „Þrátt fyrir að hafa farið þrisvar sinnum á GYC áður vildi ég fara aftur í ár vegna þess að ég hef alltaf lært eitthvað nýtt og áhugavert þar og tekið mikilvægar ákvarðanir í lífi mínu. Ráðstefnan er frábært tækifæri fyrir aðventista til þess að læra meira um trúna sína og til þess að vaxa andlega. Það er líka svo hvetjandi að sjá allt þetta unga fólk samankomið til þess að læra meira um orð Guðs og vera með trúsystkinum. Á kvöldin er svo alltaf hægt að að kynna sér margs konar tækifæri sem eru í boði til þess að taka þátt í trúboðsverkefnum eða skrá sig í biblíuskóla. Ég myndi hvetja alla til þess að fara á GYC!“ Sigrún Ruth López Jack „Þetta var í fyrsta sinn sem ég fór á GYC. Mér fannst mótið mjög skemmtilegt og ég lærði mikið. Andlega líf mitt mun aldrei vera eins. Fyrirlestarnir voru mjög áhugaverðir og ég hef aldrei séð svo marga Sjöunda dags aðventista á einum stað. Bara æðislegt. Ef þú vilt vera með þúsundum ungmenna sem elska Guð og vilja gera vilja hans, í samræmi við viðhorf SDA og það verkefni að taka boðskap englanna þriggja út í heiminn þá mæli ég með að þú skellir þér á næsta mót.“ Björn Hanan Abed „Mig hafði alltaf langað að fara á GYC frá því ég heyrði um það fyrst. Mig langaði að komast í burtu frá hversdagsleikanum og prófa eitthvað nýtt. Mig langaði að komast að því hvort það væru virkilega svona margir sem deildu sömu trúarskoðunum og ég sjálfur. Mig langaði að kynnast „Þetta var mitt fyrsta GYC mót, en ekki mitt síðasta. Þetta var lífsreynsla sem ég mun ekki gleyma.“

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.