Aðventfréttir - mar. 2014, Blaðsíða 15

Aðventfréttir - mar. 2014, Blaðsíða 15
15 M A R S 2014 þessu fólki betur og hvernig það væri í rauninni að vera Sjöunda dags aðventisti. Í byrjun ársins 2014 fór ég á mitt fyrsta GYC mót. Þetta mót hafði miklu meiri áhrif á mig en ég bjóst við. Allt í kringum mig var æðislegt fólk. Gott fólk sem þægilegt var að vera í kringum. Ræðumennirnir voru ekki af verri endanum. Ég vildi að ég hefði getað mætt á alla fyrirlestrana sem voru í boði. Öll umræðuefnin voru áhugaverð og ræðumennirnir komu þeim vel til skila. Það sem mér fannst áhugaverðast var stemningin og andrúmsloftið á mótinu. Langflestir voru tilbúnir að læra eitthvað nýtt til þess að láta gott af sér leiða. Það var greinilegt að Guð var þarna með okkur. Þetta var mitt fyrsta GYC mót, en ekki mitt síðasta. Þetta var lífsreynsla sem ég mun ekki gleyma. Ég hlakka til þess að fá að komast aftur á GYC mót og ég vona að ég geti dregið fleiri með mér næst.“ Þórir Marwan Abed Elísa Elíasdóttir Næsta GYC í Evrópu verður í Linz, Austurríki 23. - 27. júlí 2014. Næsta GYC í Ameríku verður í Phoenix, Arizona 31. des 2014 – 4. jan 2015. Nánari upplýsingar og upptökur eru að finna á www.gycweb.org Hluti hópsins í kanóaferð Hressir strákar, nýkomnir úr morgunbæn. Fairlyn Ditta og Sigrún Ruth

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.