Aðventfréttir - mar. 2014, Side 18
18
Pallborðsumræður með Daniel Duda
Þann 11. janúar s.l. kom kirkjan saman til að ræða á
sameiginlegum grunni hlutverk kirkjunnar í nútíma
samfélagi með áherslu á baksýn og framsýn. Við
urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að dr. Daniel Duda,
menningarmálafulltrúi Stór-Evrópudeildarinnar, sá sér
fært að leggja málinu lið, en Eric lagði málið fyrir hann á
sameiginlegum haustfundi kirkjunnar. Daniel er tékkneskur
prestssonur og þekkir kirkjuna frá blautu barnsbeini.
Tungumál, hvort heldur indó-evrópsk eða slavnesk, eru
honum engin fyrirstaða.
Segja má, að öllum öðrum ólöstuðum, að aðkoma
hans að þessari sameiginlegu stund kirkjunnar, bæði í
Aðventkirkjunni og í Suðurhlíð, sé enn ein staðfesting
þess hve rík við erum af heilsteyptum og vel upplýstum
einstaklingum sem vinna heimavinnuna sína grundaða á
orði Guðs. Það er hin skarpa sýn einfaldleikans sem ristir
dýpst. Það efni sem hann tók fyrir í Suðurhlíð hefur honum
verið hugleikið til fjölda ára, og kvaðst hann hafa lagt það
fyrir sig síðustu þrjátíu árin.
Það er von mín að hann sjái sér fært að koma hingað á ný
og hvet ég alla að láta það tækifæri ekki fram hjá sér fara. Þá
er vert að hugað verði að þeim möguleika að koma saman á
þennan hátt á ný á þessu ári. Kirkja sem ekki talar saman er
að vænta má illfær um að vinna saman.
Þá má benda á vefslóðina www.pineknoll.org (Audio
Resources) þar sem hægt er að nálgast nokkrar af ræðum
hans, auk annarra.
Hafi hann þökk fyrir góða aðkomu.
Ómar Torfason
Fyrirlestrar með Mark Howard
Í janúar fengum við góða heimsókn til Íslands. Mark
Howard prestur í Michigan fylki Bandaríkjanna, og
yfirmaður Immanuel Institute of Evangelism (www.
emmanuelinstitute.org) stoppaði stutt hjá okkur á leið
sinni heim frá Svíþjóð. Hann hélt stutta fyrirlestraröð
í Loftsalnum frá mánudegi til fimmtudags um hlutverk
og stöðu Anda Spádómsgáfunnar í kirkju Sjöunda
dags aðventista. Hann hefur um árabil kennt um Anda
Spádómsgáfunnar og Ellen White og ritverk hennar í
heimalandi sínu við góðan orðstír.
Mark minntist á að tilgangur allra náðargjafa væri
að vinna að einingu trúarsamfélagsins, ekki til að
sundra því (Ef 4.11-13). Mark talaði líka um kennivald
spámannanna á þeim tíma sem þeir rituðu sín verk, og
hvernig þeir voru oftar en ekki mjög óvinsælir og illa
þokkaðir af samtímamönnum sínum (Mat 23.29-31)
sem áttu erfitt með að taka við nýju ljósi (Jóh 9.28-29).
Hann talaði líka stuttlega um Ellen White og hvernig rit
hennar blessuðu hann sjálfan og voru áhrifaríkur þáttur
til að leiða hann til Jesú Krists og ritningarinnar.
Ég held að flestir þeir sem hafi mætt á þessar samkomur
hafi verið sammála um það að Mark hafi farið vel með
efnið og að það sé tímabært að tala meira og opinskárra
um þessi málefni innan kirkjunnar.
Stefán Rafn Stefánsson
Bækur eftir Ellen G. White fást hjá
Frækorninu. Á íslensku eigum við
eftirfarandi titla: Vegurinn til Krists,
Ættfeður og spámenn, Þrá Aldanna og
Deilan mikla og Drottinn kemur. Einnig
eigum við ýmsar bækur eftir hana á
ensku, meðal annars Testimonies to the
Church (9 bindi), The Minstry of Healing
og Education.