Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 20

Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 20
20 B3D í Vestmannaeyjum Nákvæmlega tveimur árum eftir B3D viðburðinn í Hörpu endurtókum við leikinn í Vestmannaeyjum. Var þetta gert til að marka upphaf 90 ára afmælisárs safnaðarins þar. Í grunninn var notast við sömu hugmyndafræði og sýningargögn frá 2012 nýttust nánast óbreytt. Aðstæðurnar í Höllinni voru mjög góðar sem leyfðu okkur að hafa sýninguna tvíþætta, annars vegar saga Biblíunnar og hins vegar sýning á Biblíum sem hafa verið gefnar út á Íslandi. Því miður hefur Hið íslenska Biblíufélag ekki sýnt okkur sama samstarfsvilja og fyrir tveimur árum. Þá fengum við að sýna fágæt eintök af fyrstu Biblíum sem eru aðeins örsjaldan aðgengilegar almenningi. Í staðinn gátum við sýnt mörg áhugaverð eintök sem Bókasafn Vestmannaeyja hefur að geyma auk eintaka úr okkar eigin fórum. Opinberar samkomur voru alls fjórar. Eins og áður höfðum við þríþætta dagskrá. Hún byrjaði á erindi sem tengdist samfélagslegum málefnum og henni lauk með biblíutengdri hugleiðingu. Á milli erinda var tónlistaratriði undir listrænni stjórn Kitty Kovács og Balázs Stankowsky, tónlistarfólki frá Vestmannaeyjum. Við undirbúning viðburðarins kom ýmislegt áhugavert í ljós. Erindin á fyrri sýningunni snérust að miklu leyti um hrunið og afleiðingar þess. Hvernig eldra verðmætamat hafði gengið sér til húðar og hvert væri best að leita til að „endurreisa Ísland“ á grunni þeirrar barnatrúar sem þrátt fyrir allt hefur sterkan sess í þjóðarsál Íslendinga. Þróunin í Vestmannaeyjum á síðasta áratug var ekki með sama hætti, eða allavega ekki eins ýkt og á höfuðborgarsvæði og víðar. Í Eyjum birtist góðærið sem kennt hefur verið við árið 2007 ekki með jafn sterkum eða jafnvel taumlausum hætti og þar af leiðandi var áfall hrunsins heldur ekki jafn sterkt. Auk þess var strax ljóst að í Vestmannaeyjum eru einstaklingar ekki nærri því eins feimnir að tala um kristna trú sína og víða annars staðar. Í tilefni sýningarinnar gafst mér tækifæri til að tala um trúmál við marga einstaklinga af ólíkum kimum þjóðfélagsins. Í grunninn kom þar fram að einstaklingarnir hafa sterka kristna barnatrú og mörgum misbýður illt umtal um trúararf okkar af hálfu sumra stjórnmálamanna nútímans. Gestafjöldi á sýningunni var ekki svo mikill. Það kom greinilega fram að Eyjamenn vissu af sýningunni og vildu allt fyrir hana gera í tengslum við undirbúning og frágang, en að mæta á sýninguna virðist þó hafa verið stærra skref en sumir treystu sér til. Þrír skemmtilegir hópar fermingarbarna glöddu okkur mikið en því miður gátu grunnskólarnir ekki fundið glufu í dagskrám sínum til að heimsækja sýninguna. Kvölddagkrárnar voru nokkuð vel sóttar. Sérstaklega vöktu erindi Eyjamannanna, Víðis Reynissonar og Geirs Jóns Þórissonar, forvitni. Nú erum við búin að halda B3D viðburð í annað sinn. Það var ólíkt auðveldara að endurtaka sýninguna með nokkrum breytingum frekar en að byrja alveg frá grunni. Það er ljóst að við höfum hér í höndum okkar gott verkfæri til að kynna Biblíuna á forsendum íslenskrar menningar, bæði fyrr og nú. Spurningunni um afrakstur viðburðarins verður sem fyrr erfitt að svara. Er nóg að vekja einstaklinga til umhugsunar? Hvert getur einn þanki um Guð leitt? Hefur það ekki oft leitt til sterkrar trúar þegar fram í sækir? Hvað skilur sú reynsla eftir í huga barns að fá að halda í þunga nagla úr járni við stóran trékross? Eða kirkjukórsöngvarinn sem les texta sálmsins eftir Helga Hálfdánarson „Dauðinn dó en lífið lifir“ í myrkvaðri en tómri gröf Jesú? Manfred Lemke

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.