Aðventfréttir - mar. 2014, Side 25
25
M
A
R
S 2014
Kvennabrekkukirkju að viðstöddu
fjölmenni. Undirritaður jarðsetti í
samstarfi við sóknarprestinn, sr. Önnu
Eiríksdóttur.
Blessuð sé minning hins látna.
Eric Guðmundsson
Reykdal Jónsson
F. 11. október 1918
D. 23. september 2010
Fanný Guðmundsdóttir
F. 12. október 1924
D. 10. nóvember 2013
Guðbrandur Reykdal Jónsson og
Sesselja Fanný Guðmundsdóttir létust
bæði í Greenridge Estates í Oregon-fylki
í Bandaríkjunum, hann 23. september
2010 og hún þann 10. nóvember 2013.
Reykdal fæddist 11. október 1918
í Reykjavík. Foreldrar hans voru Jón
Ásbjörn Jónsson frá Bergi á Akranesi,
sjómaður og Jónheiður Guðbrandsdóttir.
Reykdal átti 4 systkini: Holberg, sem er
látinn, tvíburabróðirinn Adolf og Ester
og Kristrúnu.
Reykdal ólst upp fyrstu ár ævi sinnar
í Reykjavík en foreldrar hans voru bæði
meðlimir aðventsafnaðarins í Reykjavík.
Snemma á ævinni tók Reykdal
þátt í sjóróðrum með föður sínum
og bræðrum en faðir þeirra gerði út
trillu frá Reykjavík. Árið 1933 dvaldist
fjölskyldan ýmist á Siglufirði, í Sandgerði
eða fyrir vestan á Hnífsdal allt eftir
aflabrögðum á erfiðum tímum en árið
1934 fluttust þau svo til Vestmannaeyja.
Sem 17 ára, á skírnarári sínu í Eyjum,
hóf Reykdal að vinna við skósmíðar
á skóverkstæði Odds Þorsteinssonar.
En fljótlega fór að gera vart við sig hjá
honum löngunin til að hefja
sjálfstæðan atvinnurekstur, þá í netagerð.
Þarna hófst farsæll starfsferill sem stóð
alla hans starfsævi.
Á þessum árum stóð safnaðarstarfið
með miklum blóma í Eyjum og upp
úr 1941, þegar byrjað var að halda
ungmennamót fyrir allt safnaðarfólk
aðventista í landinu var það eitt mesta
tilhlökkunarefni unga fólksins í Eyjum,
sem og þeirra sem eldri voru, að sækja
þessi mót. Þarna var líka tækifæri fyrir
ungt fólk að kynnast og á einu slíku
móti var það að Reykdal kynnist ungri
sveitastúlku, henni Fanný.
Fanný átti þá heima á Hólum í
Biskupstungum eða var í þann veginn
að flytja þangað frá Breiðumýrarholti í
Flóa. En Sesselja Fanný Guðmundsdóttir
er fædd 12. október 1924 í Garði.
Foreldrar hennar voru Sigríður
Guðmundsdóttir og Guðmundur
Einarsson frá Nýlendu í Garði. Þau
eignuðust 12 börn, 6 drengi og 6 stúlkur
en tveir drengjanna dóu stuttu eftir
fæðingu og elsti sonurinn lést einugis
16 ára að aldri. Nöfn barnanna sem
komust upp eru Elsa Guðríður, Katrín
Guðdís, Inga Steinþóra, Lillý Steinunn
Guðmunda, Tómas Borgfjörð, Sesselja
Fanný, Daníel Guðni, Kristrún og Jósep
Smári. Nú eru þau tvö eftirlifandi af
systkinunum: Inga og Tómas.
Tíu barnanna fæddust í Garðinum
þar sem fjölskyldan bjó fyrstu átta
búskaparár sín. En frá 1926 bjuggu þau
í ein níu ár í Hafnarfirði. Þar kynntust
þau hjónin aðventboðskapnum og tóku
skírn 1927.
Fanný ólst upp í foreldrahúsum í
Hafnarfirði til 11 ára aldurs en þá, árið
1935, fluttist fjölskyldan búferlum austur
fyrir fjall til Hveragerðis. Síðar hófu þau
búskap og bjuggu á nokkrum bæjum í
Ölfusinu og í Flóanum.
Árið 1937 tók Fanný skírn og fylgdi
söfnuðinum af trúmennsku upp frá því.
Það var svo 1941 að þau Guðmundur
og Sigríður festu heiðarjörðina Hóla
í Biskupstungum. Þau hjónin voru
harðdugleg og þeim tókst að koma
sér upp húsakosti á Hólum og afla sér
lífsviðurværis með búskap og með því
að Guðmundur tók sér vinnu á vertíðum
og sem vinnumaður þegar færi gafst. Það
voru yngstu börnin fjögur, Lillý, Fanný,
Kristrún og Smári, sem enn voru heima
þegar fjölskyldan settist að á Hólum, en
Fanný dvaldist þar einungis skamman
tíma.
Vinnusemi einkenndi Fanný alla ævi
svo og systkini hennar öll. En hjá henni
var líka að finna einstaka manngæsku og
auga fyrir hinu fallega.
Svo var það á hinu örlagaríka
ungmennamóti að hún kynnist þessum
myndalega unga manni frá Eyjum
honum Reykdal. Þau giftust 1943 og
hófu búskap í Vestmannaeyjum á
Reynivöllum í húsi foreldra Reykdals. Í
Eyjum bjuggu þau til ársins 1957 er þau
fluttust til Reykjavíkur og Reykdal hóf
að reka netaverkstæði þar, í Kópavogi
og síðar við Nýlendugötu, sem óx og
dafnaði og þjónaði viðskiptavinum um
allt land.
Reydal og Fanný varð 4 barna auðið:
Heiðar, kvæntur Helgu Jósefsdóttur.
Seinustu árin hafa þau hjónin rekið
dvalarheimili fyrir aldraða, Greenridge
Estates, þar sem Fanný og Reykdal
dvöldust seinustu árin. Þau eiga börnin
Eddu og Reyni; Jón Víðir, kvæntur Janice
Jónsson, þau eiga börnin Eric, Helenu,
Tony, Jeremy og Joni; Sigfríður Ester,
sem giftist Elíasi Langholt en hún lést
1991. Þeirra börn: Elías, Inga Fanný og
Benedikt; og yngstur er Þröstur Reykdal,
giftur Lísu, þau eiga einn son, Alex. Allt
þetta fólk býr í Bandaríkjunum.
Árið 1976 fluttust þau hjónin til
Bandaríkjanna og hafa búið þar síðan,
ýmist í Kaliforníu eða Washington og
síðast í Oregon fylki.
Fanný og Reykdal áttu alltaf einstaklega
fallegt heimili enda Fanný skapandi
manneskja. Eitt af verkefnum hennar var
bútasaum fyrir munaðarleysingaheimili.
Hún prjónaði líka fyrir heimilislausa og
fyrir börnin í fjölskyldunni. Verkefnin
voru fjölbreytt: postulínsmálning,
kortagerð, bródering, saumaskapur,
bakstur alls kyns kræsinga.
En söfnuðurinn naut einnig hæfileika
hennar og náðargjafa. Hún var formaður
Systrafélagsins Alfa hér í Reykjavík
til margra ára og einnig þar sem þau
bjuggu erlendis. Þannig vann hún til
fjölda ára óþreytandi við fjáröflun og
matar- og fataúthlutanir fyrir fólk sem
minna mátti sín í samfélaginu.
Nú eru þau sofnuð þessi góðu og
trúuðu hjón sem stóðu sem máttarstólpar
kirkjunnar og merkisberar hins góða
og bíða kalli frelsarans: „Gakk inn til
fagnaðar Herra þíns.“
Trúsystkinin og söfnuðurinn kveður
með virðingu og innilegu þakklæti og
vottar ástvinum samúð.
Minningarathöfn fór fram um þau
hjónin í Aðventkirkjunni í Reykjavík þ.
25 janúar s.l. í umsjá undirritaðs.
Blessuð sé minning hinna látnu.
Eric Guðmundsson
Sesselja Fanný Guðmundsdóttir
&
Guðbra dur Reykdal Jónsson
Minningarathöfn
Nú legg ég augun aftur.
Ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Sveinbjörn Egilsson– P.C. Krossing
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir sálu mina,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
Matthías Jochumsson - P.C Krossing
Aðventkirkjan í Reykjavík
25 janúar 2013
Kveðjur
Bæn - Faðir vor
Dag í senn, eitt augnablik í einu.
Ó, sú huggun stormum lífsins í.
Ég stend aldrei ein í stríði neinu,
ef ég kvíðalaus til Drottins flý.
Hann mér föðurást og umsjá heitir,
út mér hlutar sérhvern nýjan dag
þörfum lífsins; þreytu, hvíld hann veitir,
þrautir, gleði, sorg og unaðshag.
Sérhvern tíma sjálfur hjá oss er hann,
sýnir hverjum degi vissa náð.
Sorg og dagsins mæðu með oss ber hann.
Mundu barn, að hann á kraft og ráð.
Morgundagsins þraut ei þarf að kvíða,
þó að brautin ótrygg reynist mér.
Treysta forsjón Drottins, biðja’ og bíða,
boðorð það af honum gefið er.
Veit þú mér, að hvíld og frið ég finni
fyrirheitum þínum Guð minn í.
Heilagt orð þitt svali sálu minni,
sundur leysi öll mín harmaský.
Gef að þiggi ég með hjarta hreinu
hverja náðargjöf, sem veitist mér,
dag í senn, eitt augnablik í einu,
unz til landsins góða heim ég fer.
Lína Sandel Einar Marel Jónsson
Blessun
Eftirspil
Ísland er land þitt
Prestur: Eric Guðmundsson
Organisti: ?
Kór: Sönghópur Aðventkirkjunnar
Viðstöddum boðið að þiggja
veitingar í Suðurhlíðarskóla