Málfríður - 15.03.1987, Qupperneq 26
Sigurlín Sveinbjarnardóttir:
Nemendaferdir til útlanda
Markmið nemendaferða
í íslenskum skólum, bæði á
grunnskóla- og framhaldsskólastigi,
er lögð mikil áhersla á kennslu í er-
lendum tungumálum. Við höfum
þörf fyrir að kunna mörg tungumál,
því þó að við séum lítil þjóð höfum
við mikinn metnað og viljum gjarn-
an hafa samband við aðrar þjóðir
t.d. á sviði viðskipta og menningar-
mála. Við ferðumst mikið út um
allan heim, margir fara í framhalds-
nám erlendis eða á ráðstefnur og
fundi. Jafnvel þó að við förum ekki
út fyrir landsteinana mætum við er-
lendum tungum á hverjum degi í
bókum, t.d. í fagbókum og náms-
bókum í framhaldsskóla og há-
skóla, tímaritum, ýmis konar notk-
unarleiðbeiningum og í fjölmiðl-
um.
Kennarar standa oft frammi fyrir
þeirri staðreynd að erfitt getur
reynst að halda uppi áhuga nem-
enda. Nemendur byrja oft fullir
áhuga á að læra nýtt tungumál, en
þegar þeir komast að því hve erfitt
það er og hversu mikla æfingu það
kostar að ná færni í erlendu máli,
minnkar oft áhuginn. Því er mjög
mikilvægt að hafa hvetjandi áfanga-
markmið í sjónmáli í kennslu en
ekki bara að segja: ,,Þú hefur þörf
fyrir þetta seinna í lífinu.“
Nemendaferð til þess lands þar
sem málið er talað, hefur ótrúlega
hvetjandi áhrif á áhuga nemenda.
Markmiðið með nemendaferðum
til útlanda er fyrst og fremst að
auka áhuga nemenda á að læra er-
lenda málið og að kenna þeim um
land og þjóð.
Hvernig fjármögnum við og
undirbúum slíkar ferðir?
Þetta er mjög erfið spurning þar
sem það er mjög dýrt að ferðast frá
Islandi (en aftur á móti ekki dýrt
þegar komið er yfir Atlantshafið).
Undirbúningurinn krefst líka mik-
ils, ekki síst af kennurunum. Eins
og málin standa núna fara u.þ.b. 10
íslenskir bekkir bæði á grunnskóla-
og framhaldsskólastigi til Norður-
landa á hverju ári og jafn margir
bekkir koma hingað frá þessum
löndum. Um nemendaheimsóknir
milli annarra landa hef ég ekki töl-
ur.
Yfirleitt byggjast slíkar heim-
sóknir á kunningsskap, stundum á
vinabæjakerfi Norræna félagsins.
Oftast hefst undirbúningurinn með
því að nemendur í tveim löndum
komast í bréfasamband. Það hvetur
reyndar mjög til náms á erlenda
málinu að fá bréf og þurfa að svara
því. Síðan fara nemendur af stað að
safna peningum með ýmsu móti og
að sækja um styrki. Þó nokkrir nor-
rænir aðilar veita styrki til slíkra
ferða en mikilvægt er að undirþúa
umsóknirnar vel og sækja tíman-
lega um. Upplýsingar um hvert
hægt er að sækja má t.d. fá í
menntamálaráðuneytinu eða Nor-
ræna húsinu. Eins þarf að kanna
ódýrustu og bestu ferðatilboðin á
hverjum tíma. Undirbúningstíminn
er mjög mikilvægur og lærdómsrík-
ur fyrir nemendur og ástæða til að
vanda þann hluta vinnunnar sem
best þar sem það er forsenda fyrir
velheppnaðri ferð. Ekki er hægt að
hugsa sér að undirbúningurinn taki
minna en eitt ár.
Ábendingar og dæmi
Áður en lagt er af stað þarf að
gera ítarlega áætlun í samvinnu við
nemendur og þá aðila sem eiga að
taka á móti hópnum. Sem dæmi
sýni ég hér áætlun fyrir ferð sem
nemendur í Menntaskólanum við
Sund fóru í febrúar s.l. til Dan-
merkur.
Rejseplan for ekskursion til Dan-
mark
Lordag den 7/2: Ankomst til
Kastrup Lufthavn kl. 13.40 — til
Niels Steensens Gymnasium ca. kl.
16. Indkvartering i skolen. Rund-
gang i Kobenhavns centrum, bio-
graftur. Overnatning i skolen.
Sondag den 8/2: Formiddag fri.
Ankomst til hytten ved Bastrup so
ca. kl. 14. Omrádet besigtiges. De
danske elever sorger for middags-
mad. Om aftenen socialt samvær,
fællessang m.v. primært arrangeret
af de danske elever.
Mandag den 9/2: Gamle byg-
ninger i Allerod, Farum og Birke-
rod besigtiges. Opgaver om kalk-
malerier i Birkerod kirke. Sammen-
ligning med moderne bygninger i
disse byer f.eks. Farum Midtpunkt.
En tur i Farum svommehal. Om
aftenen sorger de islandske elever
for middagsmad (medbragt islandsk
mad). Islandsk program med lys-
billeder, sang og dans.
Tirsdag den 10/2: Orienterings-
lob i skoven med opgaver fra bio-
logi. Ca. kl. 14 tager eleverne hjem
til privat indkvartering hos deres
pennevenner fra Niels Steensens
Gymnasium.
Onsdag den 11/2: De islandske
elever folger med deres danske
venner i skole og folger undervis-
ningen i diverse værtsklasser. Efter
skole museumstur, f.eks. National-
museet, Rosenborg Slot. Eftermid-
dagskaffe i Islands Kulturhus. Fri
om aftenen.
26