Bæjarins besta - 08.01.1992, Qupperneq 5
BÆJARINSBESTA • Miðvikudagur 8. janúar 1992
5
Reykjavík:
Sólarkaffi
ísfirðingafélagsins
s
ISFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík gengst fyrir sínu
árlega Sólarkaffi 17. janúar næstkomandi að Hótel ís-
landi. Arshátíð Isfirðingafélagsins er tengd þeim gleðilegu
tímamótum þegar fyrstu sólargeislarnir taka að teygja sig
yfir fjallabrúnirnar fyrir vestan og steypast yfir Pollinn og
inn um glugga húsanna.
Sólarkaffið er haldið með I eða viku fyrr en venjulega. I
fyrra móti að þessu sinni I fyrra var hátíðin haldin að
• íshúsfélag ísfirðinga hf.
Á síðustu áratugum hefur
íshúsfélag ísfirðinga hf.,
ráðist í margvíslegar fram-
kvæmdir og ber þar hæst
byggingu hraðfrystihússins
við Eyrargötu, fyrst á árun-
um 1959-1962 og svo stækk-
un á árunum 1975-1980. Á
síðasta ári nam framleiðslu-
verðmæti þess fisks, sem
unnin var í húsinu rúmlega
fimm hundruð milljónum
króna. Alls vinna hjá fyrir-
tækinu 100- 140 manns, sem
fer nokkuð eftir árstíðum.
íshúsfélagið er aðili að
fjölmörgum fyrirtækjum.
Félagið á t.d. helming í
Mjölvinnslunni hf., í Hnífs-
dal á móti Hraðfrystihúsinu
hf. í Hnífsdal, helming í
Arnarnúpi h.f., á Pingeyri á
móti Fáfni hf., 1/4 hlut í
Vestra hf., á ísafirði, hlut í
Olíufélagi Útvegsmanna
hf., Togaraútgerð ísafjarðar
hf., Magna hf., Trygginga-
miðstöðinni h.f., og fleiri
fyrirtækjum. Pá er Ishúsfé-
lagið stofnandi Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna
og aðili að Umbúðamið-
stöðinni hf.
Stjórnarformenn fyrir-
tækisins frá því að bæjar-
sjóður seldi það útgerðar-
fyrirtækjum í bænum hafa
verið, Ragnar Ásgeirsson
læknir, til ársins 1960, Guð-
mundur Guðmundsson út-
gerðarmaður frá 1960 til
1987, Magnús Reynir Guð-
mundsson frá 1987 til 1991
en þá var Þorleifur Pálsson
kosinn stjórnarformaður.
Framkvæmdastjórar hafa
verið frá sama tíma Baldur
Jónsson til ársins 1960,
Helgi G. Þórðarson 1960 til
1963, Marías Þ. Guðmunds-
son frá 1963 til 1974 og Jó-
hannes G. Jónsson frá 1974.
Haraldur Valdimarsson var
yfirverkstjóri þar til hann
lést árið 1963, en síðan hef-
ur Jón Kristmannsson verið
yfirverkstjóri, en hann hóf
störf hjá fyrirtækinu árið
1958.
-s.
Ofangreindar upplýsing-
ar um ágrip af sögu Ishúsfé-
lags Isfirðinga hf. eru fengn-
ar hjá Jóhannesi G.
Jónssyni, framkvæmda-
stjóra fyrirtœkisins en milli-
fyrirsagnir eru blaðsins.
Blaðið óskar eigendum og
starfsfólki fyrirtœkisins til
hamingju með afmœlið.
Breiðvangi, þá var húsfyllir,
um 700 manns og urðu á
annað hundrað manns frá
að hverfa. Nú ættu ekki að
verða húsþrengsli og vel fyr-
ir öllu séð.
Húsið opnar klukkan 20
en kl 20,30 hefst hefðbundin
og fjölþætt dagskrá með
kaffi og rjómapönnukökum.
Sverrir Hermannsson,
bankastjóri flytur ávarp.
Hljómsveit hússins leikur
fyrir dansi til kl 03.00.
Forsala aðgöngumiða fer
fram að Hótel íslandi laug-
ardaginn 11. janúar kl. 13-
16. Miða- og borðapantanir
auk þess í síma 91-687111
dagana 11.-17. janúar milli
klukkan 13- 18. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.800.
Stjórn Isfirðingafélagsins
hefur kynnt áform um að
koma upp orlofshúsi eða
gestaíbúð á Isafirði og hafið
fjáröflun í því skyni. Liður í
þeirri viðleitni er útgáfa fé-
lagsritsins Vestanpóstsins
sem kemur nú út í 5 sinn,
44.bls. og flytur gamalt og
nýtt efni af ísfirskum toga.
Það er sent til yfir 1200
brottfluttra ísfirðinga um
land allt.
Stjórn ísfirðingafélagsins
skipa nú: Einar S. Einars-
son, formaður, Guðfinnur
R. Kjartansson, varafor-
maður, Gunnar Sigurjóns-
son, gjaldkeri, Rannveig
Margeirsdóttir, ritari,
Bjarni Brynjólfsson, rit-
stjóri, Jóhannes Jensson og
Helga Þ. Bjarnadóttir, með-
stjórnendur.
-fréttatilkynning.
ísafjörður:
Umferðarlagabrotum
fjðlgaði um nær helming
s
ISAMANTEKT lögregl-
unnar yfir lögreglumál á
síðasta ári kemur fram að
umferðarlagabrotum fjölg-
aði um nær helming á milli
áranna 1990 og 1991. Munar
þar mest um hraðaksturs-
brot sem fjölgaði um 117 á
árinu 1991, úr 240 málum í
357. Þá var einnig mikil
aukning á því að skráning-
arnúmer væru tekin af bifr-
eiðum. Árið 1991 voru núm-
er tekin af 296 bifreiðum á
móti 112 árið 1990.
Ökutækjum var lagt ólög-
_ r
N;-
• Fjórðungssjókrahúsið.
ísafjörður:
Þrjár fæðing-
aráfíutímum
EIR óvenjulegu at-
burðir gerðust á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Isafirði að þrjár fæðingar
áttu sér stað frá kl. 9 á
mánudagskvöld og til kl. 7
á þriðjudagsmorgun.
Að sögn Þorsteins
Njálssonar læknis eru
þetta þrjú stúlkubörn og
fæddist það fyrsta um níu-
leytið á mánudagskvöld.
Önnur stúlkan leit dagsins
lj ós kl 11 sama kvöld og hin
síðasta kl. 7 á þriðjudags-
morgun. Tvær stúlknanna
eru frá Suðureyri og ein er
frá ísafirði. Þorsteinn
sagði að svipað atvik hefði
gerst fyrir fjórum árum á
Sjúkrahúsi ísafjarðar að
þrjár fæðingar hefðu átt
sér stað á svipuðum tíma
og nú.
-GHj.
lega 50 sinnum á árinu 1991
á móti 22 sinnum árið 1990.
Brotum vegna stöðvunar-
skyldu fjölgaði úr 5 í 16 og
ölvun við akstur jókst um 23
mál milli ára, úr 53 málum í
76. Þá stóðu aðrar ölvunar-
kærur í stað á milli ára en
mál tengd þeim voru 99 tals-
ins á árinu.
Kynferðisafbrot stóðu í
stað á milli ára og var aðeins
um eitt mál að ræða í þeim
málaflokki. Þar var um að
ræða misneytingu. Eitt mál
kom inn á borð lögreglunn-
ar vegna flugslyss og var þar
um að ræða flugvél sem
hlekkst hafði á. Skotvopna-
málum fækkaði úr 10 í 3 og
sjóslysamálum fækkaði um
eitt á milli ára og tollamál
stóðu í stað.
-s.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Þorgils Árnasonar
Fjarðarstræti 32, ísafirði
sem lést á Sjúkrahúsi Isafjarðar 27. desember sl.
Lára Magnúsdóttir,
Ágústa Þorgilsdóttir, Gunnlaugur Jóhannsson,
Ragnheiður Þorgilsdóttir, Ársæll Hermannsson,
Árni Þorgilssson, Sigríður Matthíasdóttir,
Magnús Þorgilssson, Sesselja Þórðardóttir,
Ásbjörn Þorgilsson, Eva Sigurbjörnsdóttir,
Ingibjörg Þórhallsdóttir,
Valdís Þorgilsdóttir,
Hjördís Þorgilsdóttir, Jón S. Ásgeirsson,
Helga Þorgilsdóttir, John M. Chavaró,
barnabörn og barnabarnabörn.
Takiðeftir!
Erum búnir aö opna vélsmiðju að
Suðurgötu 9. Einnig seljum við vöru-
birgðir Vélsmiðjunnar Þórs og Rör-
verks með mjög góðum afslætti.
Allt á að seljast. Þar höfum við t.d.
Metabo verkfæri og varahluti, reiðhjól
og garðáhöld.
Sjón ersögu ríkari.
ÞRYMUR HF., vélsmiðja
Suðurgötu9-sími3711
SMÁ
Til leigu er herbergi á Isafirði. Upplýsingar í 0 4403.
Til leigu er 3ja herb. íbúð að Stórholti 9. Laus 1. feb. Uppl. í 0 985-29026. Grétar,-
Óska eftir notuðu píanói fyrir byrjanda. Uppl. 107808.
Barnahúfa með stórum dúski og Ijósu vínrauðu og grænu mynstri og fléttum í kanti tapaðist á Isaf. í nóv,- des. Finnandi hringi í 0 7908.
Óska eftir herbergi með eldunaraðstöðu á ísafirði. Upplýsingar í 0 7506.
Óska eftir nothæfri Ijósritun- arvél fyrir lítið. Upplýsingar í 0 3049. Get tekið að mér að passa börn eftir hádegi. Upplýsing- ar (0 4445.
Kassavanir kettlingar fást gefins. Upplýsingar í 0 4548.
Óska eftir að taka á leigu 2ja herb.- eða einstaklingsíbúð á Isafirði eða í Hnífsdal. Upp- lýsingar Gunnar á Slökkvi- stöðinni í 0 3300.
Félagsfundur í vélsleðafé- laginu Snæfara verður fim. 16. jan. kl. 21 í Súðavík. Nán- ari upplýsingar gefur Sverrir í 0 4940. Stjórnin.
Óska eftir ódýrri notaðri kassagítartösku. Upplýs- ingarí 0 6281.
Þeir sem fundu hvolpinn minn hafi samband. Hann er lítill Labrador sem heitir Dóri, hann eltir hringi og körfubolta. Upplýsingar i 0 4327.
Ég er svartur Vá mánaðar kettlingurog mig vantarfóst- urheimili. Vel siðaður og hef ættartölu í móðurætt. Upplýs- ingar í 0 4046 eftir kl. 19.
Til leigu er 3ja herb. íbúð á Eyrinni. Upplýsingar gefur Rakelí 0 95-13206.
Get tekið að mér smáverk, s.s. múrviðgerðir, flisalagnir o.fl. Upplýsingar gefur Her- mann í 0 4061 eða 3351.
Til sölu eru varahlutir ( Yamaha MR 50 skellinöðru óskast. Uppl. í 0 4201.
Til sölu er Engjavegur 32, 150 m2 á tveimur hæðum m. bílskúr. Upplýsingar í 0 3644 á kvöldin.
Vil kaupa barnaskíði, 100- 130 cm á lengd, með eða án bindinga. Uppl. í 0 3178.
Kettlingar fást gefins. Upp- lýsingar 1' 0 3957.
Get bætt við mig einu barni i pössun fyrir hádegi. Upplýs- ingar í 0 3957.
Til sölu er MMC Galant, stat- ion ’81. Upplýsingar i 0 4016.
Til sölu er blár barnavagn á 10.000.-Uppl. 10 4016.
Til sölu eru nokkrir varahlutir í SAAB 99 ’81, s.s. blöndung- ur, mælar, spyrnur, rúður, hurðir o.fl. Upplýsingar gefur Björn í 0 4560 og 4792.