Málfríður - 15.09.1998, Qupperneq 7
Málstofa um námskrárvinnu í Graz í Austurríki
Síðastliðið vor átti undirrituð þess kost að
sækja málstofu um námskrárvinnu sem
haldin var í Graz í Austurríki á vegum
Evrópumiðstöðvar tungumála.
Markmið nrálstofunnar var fyrst og
fremst að sýna hvernig nota megi svo-
nefnda rammaáætlun Evrópuráðsins í er-
lendum tungumálum í námskrárvinnu.
Jafnframt var nokkuð fjallað um notkun
viðmiðunarskala við mat á kunnáttu í er-
lendum tungumálum.
Stjórnendur málþingsins voru sérfræð-
ingar á sínu sviði og höfðu til að bera
mikla reynslu af námskrárvinnu, skólastarfi
og kennslu.
Þátttakendur voru 33 frá ýmsum Evr-
ópulöndum. Allir unnu þeir að námskrár-
gerð í erlendum tungumálum í sínu
heimalandi, sumir í fullu starfi, aðrir með
kennslu.
Rammaáætlunin var kynnt frá ýmsum
sjónarhornum og efnið síðan skoðað í
hópum. Vinnuferlið var ævinlega það
sama, fyrst var kynningin, síðan hópvinna.
Að henni lokinni var gerð grein fyrir um-
ræðum, sem farið höfðu fram í hópunum,
síðan voru almennar umræður. Stjórnend-
ur breyttu hópunum oft þannig að flestir
þátttakendur náðu að vinna einhvern tím-
ann saman.
Hin mikla bók, rammaáætlun Evrópu-
ráðsins í erlendum tungumálum, er gagn-
leg við margt annað en námskrárvinnu.
Þar má til dæmis finna hugmyndir að út-
færslum ýmissa þátta í kennslu erlendra
tungumála og einnig má nota upplýsingar
úr bókinni til að athuga hvort ákveðnum
atriðum séu gerð viðeigandi skil í
kennslu.
A málþinginu var einnig kynnt notkun
viðmiðunarskala þar sem kortlögð er stig-
vaxandi kunnátta og færni í erlendum
tungumálum. I rammaáætluninni er
gnægð skala til að meta marga þætti í
málanámi. Með því að skoða viðmiðunar-
skalana má fá hugmyndir um áhersluatriði
í kennslu, ekki síður en hvaða atriði á að
meta samkvæmt skölunum. Má nefna
munnlega færni, samskiptaþátt, nákvæmni
í framsetningu á rituðu máli og margt
fleira.
Athyglisvert er að kynnast því að í
námskrárvinnu í öðrum löndum er glímt
við svipuð mál og hérlendis og reynt að
fmna svör við spurningum eins og hvar
eigi að byrja námskrárvinnu, hvað eigi að
vera í námskrá, hversu langt eigi að ganga,
hversu bindandi hún eigi að vera o.s.frv.
Stjórnendur voru sammála um að ætíð
væri nauðsynlegt að miða við þarfir í
hveiju landi. Því væri engin allsherjarupp-
skrift að því hvernig vinna ætti að nám-
skrá.
Gerður Guðmundsdóttir
Gerður Guðmundsdóttir.
Athyglisvert er
að kynnast því
að í námskrár-
vinnu í öðrum
löndum er
glímt við svipuð
mál og hér-
lendis
7