Málfríður - 15.09.1998, Síða 18
Dæmi:
Outside, we were______
by the fresh air.
___ resumed
___ retained
___ revived
___ refmed
Svo er þess að geta að próf af þessu tagi
prófa aðeins skilning en ekki notkun. Það
má telja krossaprófum til tekna að það er
fljótlegt að fara yfir þau, og þau eru áreið-
anleg ef þau eru rétt hönnuð, en það geta
varla talist nægileg rök þar sem hægt er að
draga réttmæti þeirra í efa.
Orðaforðakannanir
Enda þótt flestir séu sammála því nú, að á
opinberum prófum og skólaprófum sé
eðlilegast að prófa og meta orðaforða í
tengslum við færniþætti málsins en ekki
einan og sér, er fyllsta ástæða til að fylgjast
einnig með þróun orðaforða hjá nemend-
um með orðaforðakönnunum af ýmsu
tagi. Markmiðin geta verið margs konar:
• að mæla hversu mikill orðaforðinn er,
• að mæla dýpt orðaforðans,
• að bera saman orðaforða við upphaf og
lok námsáfanga,
• að fylgjast jafnt og þétt með framforum
nemenda,
• að hvetja nemendur nreð því að setja
skammtíma markmið.
En veljum okkur sem dæmi það mark-
mið að fylgjast jafnt og þétt með því
hvernig nemendur ná valdi á þeim orða-
forða sem námsefnið gerir ráð fýrir að
þeir læri. Þetta gæti farið fram reglulega
(vikulega, hálfsmánaðarlega, allt eftir að-
stæðum) og þyrfti ekki að taka langan
tíma í senn.
Allir kennarar ættu að kannast við cloze-
test, þar sem orð eru tekin út úr texta með
vissu millibili (fimmta hvert, sjötta hvert,
sjöunda hvert) og nemendur fylla inn í
myndina. Það hefur verið um það deilt
hvað slíkt próf mælir. Það hefur oft verið
notað til að prófa lesskilning, en margir
eru á því að það mæli fýrst og fremst al-
menna málfærni. Þetta form prófsins er
kannski ekki það heppilegasta til að prófa
orðaforða.Afbrigði þess,þar sem tekin eru
út orð sem sérstaklega á að láta reyna á,
getur hins vegar verið býsna gott til að
fýlgjast með orðaforða. Þá er valinn texti
sem nemendur hafa þegar lesið eða texti
með orðaforða sem nemendur „eiga“ að
hafa lært, ljósritaður eða vélritaður upp og
viss orð tekin út og nemendur fylla í eyð-
urnar. I sumum tilfellum mætti gefa orðin
upp neðanmáls, en ef svo er verður að
gæta þess að hafa fleiri orð en þau sem
passa í eyðurnar.
Annað próf, sem er raunar afsprengi
cloze-test og prófar orðaforða í samhengi,
er svokallað C-test. Það er þannig upp-
byggt að tekinn er burtu helmingur ann-
ars hvers orðs:
Hvert er mark-
miðið, hvernig á
að velja orðin, á
að leggja áherslu
á skilning eða
notkun?
18
Ef það að á að fylgjast reglulega með nem-
endum, þarf kennarinn að halda lista yfir
þann orðaforða sem tekinn er fýrir. Oft er
það kennslubókin sem ræður því hvaða
orðaforði er lagður til grundvallar, en oftar
en ekki bætir kennarinn við lesefni og hlust-
unarefni og þar með nýjum orðaforða.
Þá koma upp spurningar eins og: Elvert
er markmiðið, hvernig á að velja orðin, á
að leggja áherslu á skilning eða notkun?
Eins og minnst var á í áðurnefndri grein,
þá getur orðakunnátta verið mjög breið:
frá því að þekkja orðið og skilja það og allt
til þess að geta notað allar myndbirtingar
þess og merkingar — og allt þar á milli.
The best way to learn is to teach.
Th______ is th___________ message
emer________ from experi________ in
seve__________schools i______ which
teen______ pupils wh have
prob________ at sch______ themselves
are tutoring younger children.
Elér er fyrsta setningin látin halda sér og
endirinn á þeirri síðari, eins og raunar er
oft gert í cloze test. Eins og cloze-test var C-
test fýrst notað til að kanna almenna mál-
færni, en málvísindamenn hafa komist að
því að það er nokkuð góður mælikvarði á
orðaforða. Vandinn hér eins og annars