Málfríður - 15.09.1998, Qupperneq 19
staðar þar sem verið er að prófa orðaforða
í samhengi er sá að það er erfitt að greina
algerlega á milli hvort það er orðskilning-
urinn einn og sér, hið almenna samhengi
í texta eða samspil beggja sem ræður úr-
slitum um skilning. Þetta sýnir okkur enn
og aftur hversu sanrofnir þættir tungu-
málsins eru og þarna hefur einnig áhrif að
einstaklingar beita mismunandi aðferðum
til að öðlast skilning. Enn hafa menn ekki
fundið hina einu sönnu leið til að mæla
orðaforða á viðunandi hátt og því verðum
við að bíða enn um stund.
Ymsir hafa glímt við þetta viðfangsefni
og meðal þeirra eru tveir kanadískir mál-
vísindamenn T.S. Paribakht og M. B.
Wesche sem hafa hannað próf sem á að
mæla orðaforða á dýptina, bæði skilning
og notkun. Orðin, sem á að prófa, eru gef-
in upp ein og sér.
I íslenskri þýðingu lítur þetta svona út:
1. Eg man ekki eftir að hafa séð þetta
orð_______
2. Eg hef séð orðið, en veit ekki hvað það
þýðir_______
3. Ég hef séð þetta orð áður og ég held að
það þýði________________
4. Ég þekki þetta orð. Það þýðir
5. Ég get notað þetta orð í setningu þar
sem merkingin kemur skýrt fram
Ef nemandi svarar fimmtu spurningu,
verður hann einnig að svara þeirri fjórðu.
Gallinn við þetta próf er sá að einungis er
hægt að prófa taknrarkaðan fjölda orða
nema maður hafi ótakmarkaðan tíma. Það
gæti hins vegar verið heppilegt að prófa á
þennan hátt þau orð sem kennarinn álítur
að nemendur verði að kunna til hlítar,
þ.e.a.s. bæði að skilja og geta notað. Ann-
ar galli við próf af þessu tagi er sá að orð
hafa oft mismunandi merkingar og nem-
endur gætu komið með merkingu sem
kennarinn er ekki að fiska eftir. En svona
er þetta; ekkert er fullkonrið.
Auk þess að nota kannanir af því tagi
sem nefndar hafa verið hér, er hægt að
nota ýmsar gerðir af æfingum sem nem-
endur eru vanir að fást við til að fýlgjast
með þróun orðaforðans. Einnig geta
kennarar látið nemendur halda eigin
orðaskrá eða orðalista og fylgst með því
verki.
Fyrir utan beinar orðaforðakannanir er
eðlilegt að orðaforði nemenda sé jafnt og
þétt metinn í skriflegum og munnlegum
verkefnum sem þeir eru að fást við. Þá
þarf að setja upp viss viðmið og meta eft-
ir því hve breiðan orðaforða nemendur
nota, orðaval, hversu rétt er farið nteð orð
og orðatiltæki, hversu viðeigandi orða-
forði er notaður og annað í þeim dúr.
Að lokum er rétt að árétta að þeir, sem
hvað mest fjalla um orðaforða þessa dag-
ana, eru á einu máli um að það sé nauð-
synlegt að takast á við hann af fullum
krafti, bæði í samhengi við samfelldan
texta og eins einan og sér.
Auður Torfadóttir,
dósent við Kennaraháskóla
Islands.
Það er erfitt að
greina algerlega
á milli hvort
það er orðskiln-
ingurinn einn
og sér, hið al-
menna sam-
hengi í texta
eða samspil
beggja sem
ræður úrslitum
um skilning.
19