Málfríður - 15.09.1998, Page 27
Færniþættirnir lestur, hlustun, ritun og
tal eru hafðir að leiðarljósi og þá þannig
að nemendur vinni skapandi vinnu og að
þeir sjái tilgang með náminu og tengsl við
raunveruleikann. Með öðrum orðum
jafnframt því sem nemendur læra ensku
þá eru þeir að gera eitthvað skapandi.
Mest áhersla var lögð á aukna orða-
forðakennslu, þar sem tilgangur með því
að læra annað tungumál en móðurmálið
er að geta nýtt það til samskipta og upp-
lýsingaöflunar. Gefur það auga leið að því
meiri tök sem maður hefur á orðaforðan-
um því auðveldara á maður með að tjá sig
og lesa sér til. Kennslubækurnar geta ver-
ið nokkurs konar grunnur eða viðmið en
orðaforði er útvíkkaður með skapandi
starfi nemenda. I fljótu bragði virðist þetta
þýða aukið vinnuálag á kennarann en það
þarf ekki að vera svo. Hægt er að skapa að-
stæður í beinum tengslum við textann í
kennslubókinni sem nemendur vinna síð-
an úr og auka með því orðaforða sinn. Ef
texti kennslubókarinnar þallar til dæmis
um verslunarferð er hægt að kynna efni
og orðaforðann í textanum og síðan vinna
nemendur út frá því sinn eigin innkaupa-
lista og nota þau orð og vöruheiti sem
hentar þeim eða því tilefni sem þeir vilja
fjalla urn.
Mikil áhersla var lögð á undirbúning
nemenda fýrir hvert efni „Pre-teaching“
hvort sem unnið er með lestur, hlustun,
ritun eða tal, kynna íyrir nemendum efn-
ið og fara yfir orðin sem korna fýrir í text-
anum eða viðfangsefninu. Gæta þarf að
því að nemendur nái samhenginu og
einnig þarf kennarinn að reyna að hafa
efnið sem næst áhugasviði nemenda.
Það er hægt að nálgast efnið á ýmsan
hátt: með leikjum, hópvinnu, paravinnu
og síðast en ekki síst, söng. Söngvar hafa
mikið gildi í tungumálakennslu. Þeir þjálta
framburð, orðaforða, uppbyggingu setn-
inga og ítreka (endurtekningar). Auk þess
eru söngvar skemmtilegir og auka á til-
breytingu.
Það væri óðs manns æði að telja upp
allar þær hugmyndir sem við fengum á
námskeiðinu. Enda eru margir kennarar
eflaust búnir að nota þessar aðferðir í sinni
kennslu, því þær hafa verið að ryðja sér til
rúms á undanförnum árum og sérstaklega
aukin áhersla á orðaforða. Það sem okkur
fannst helsti kostur námskeiðsins var hversu
inntaksmikið það var og erurn við í raun
komnar með ágætishandbók fýrir ensku-
kennslu sem var afrakstur námskeiðsms.
Oll aðstaða var með ágætum og vel um
okkur hugsað allan tímann og Walesbúar
rnjög góðir heim að sækja. En sú staða
sem Wales hefur þar sem töluð eru tvö
tungumál gerir landið að mjög ákjósan-
legum stað til að sækja námskeið í ensku,
því við erum að kenna ensku sem annað
tungumál og þess vegna var sérlega áhuga-
vert að kynnast aðstæðum sem þessum.
Bergljót Halldórsdóttir,
skólastjóri Grunnskólans í Súðavík
Monica Mackintosh, kennari
í Grunnskólanum á Isafirði
Það er hægt að
nálgast efnið á
ýmsan hátt: með
leikjum, hóp-
vinnu, para-
vinnu og síðast
en ekki síst,
söng.
27